Jazzblaðið - 01.11.1950, Side 15
Það kann að þykja nokkuð erfitt, að
ferðast með svo þungt og dýrt hljóð-
færi sem píanettu, en þeim þykir það
erfiði borga sig í betri músík en ella
yrði.
Þá má geta þess, að sumarið 1948
söng með hljómsveitinni Jón Sigur-
björnsson (nú leikari og söngvari) og
varð það aíarvinsælt .
Haustið 1949 urðu skipti á trommu-
leikurum. Kom Bjarni G. Sigurðsson í
stað Reynis, og hljómsveitin þannig
skipuð nú (sbr. mynd).
Aðaláhugamál þeirra félaga nú, er að
bæta einum manni í hljómsveitina og
fá þannig betri aðstæður til að leika
meira af útsettri músík. Hafa þeir góð-
ar vonir um að það takist bráðlega.
Þeir hafa allir mikinn áhuga fyrir
hinum nýja stíl í jazz, þ. e. be-bop, og
dást að þeim frumlegu hugmyndum og
gífurlegu tækni, sem sumir útlendir
be-bop leikarar hafa yfir að ráða í hljóð-
færaleik sínum.
Hljómsveitin bað mig svo ennfremur
að láta þess getið, að hún vildi nota
þetta tækifæri til að þakka Borgnes-
ingum, ungum og gömlum, og reyndar
öllum öðrum, er ætíð hafa sýnt hljóm-
sveitinni vinsemd og velvilja, „en án
þessa hefði ekki verið eins ánægjulegt
að leika fyrir þetta fólk og raun hefir
borið vitni um“ sögðu þeir að endingu.
Róbert Þórðarson.
OR ýmsum áttum
Framh. af bls. 7.
trommur. 7. febr. 1940. — Tommy Lind-
sey og Joe Guy trompetar, Earl Hardy
trombón, Jackie Fields og Eustis Moore
altóar, Hawkins tenór, Gene Rodgers
píanó, William Oscar Smith bassi og
Arth. Herbert trommur (’39). 5. Shelton
Hemphill, Cat Anderson, Taft Jordan,
Ray Nance og Rex Stewart trompetar,
Claude Jones, Joe Nanton og Lawrance
Brown trombónar, Jimmy Hamilton
klarinet, Otto Hardwick og Johnny Hod-
ges altóar, A1 Sears tenór, Harry Carney
barytón, Fred Guy guitar, Junior Raglin
bassi, Sonny Greer trommur og Elling-
ton píanó. Leikið inn 30. júlí 1945.
TO BE. Ég vildi gera fyrirspum um,
hvaða tenór-saxófónleikari sé á plöt-
unni „Up in Dodo’s room“ með Howard
McGee sext., og hinum megin á plötunni
með Sonny Berman. — Fáfróður.
SVAR. Tenóristinn með McGee heitir
Teddy Edwards, en hinn heitir Flip
Phillips.
TiL ÁSKRiFENifA
Áskrifendur blaösins, þeir, sem emi skulda
fyrir þennan árgang, eru enn einu sinni
áminntir um að greiða hið fyrsta. Útkoma
biaðsins er nú eingöngu háð því, hvort áskrif-
endur greiða strax eða ekki. Það hefur komið
í ljós, að fóik reynir að' koma sér undan því að
borga blaðið, eftir að því hefur verið sent það
í heilt ár. Þeir, sem ekki kæra sig um að fá
blaðið, cru beðnir um að segja því upp, en láta
ekki senda sé það mánuð eftir mánuð og neita
svo að borga, þegar reikningurinn kemur,
Næsta liefti blaðsins verður jóiaheftið og
verður það eins og undanfarin ár stórt að
vanda — jafnvel stærra en áður. Efni þess
verður óvenju fjölbreytt og fjöldi mynda verða
birtar.
Á það skal bent, að kosningaseðiliinn f sam-
bandi við kosningar blaðsins um vinsælustu
íslenzku hljóðfæraleikarana, veröur sendur
SKULDLAUSUM áskrifendum með næsta
hefti. Þeir einir, sem ekki skulda, njóta þeirra
sérréttinda að kjósa. — Seðillinn verður ekki i
blaðinu, heldur PRENTAÐUR SÉR.
Þeir, sem enn ekki hafa gerzt áskrifendur
að blaðinu, ættu að gera það liið fyrsta, og
vllji þeir kjósa um vinsælustu liljóðfæralelk-
arana, þá verða þeir að vera áskrifendur.
Þeir nýir áskrifendur, sem borga kr. 40,00
fyrirfram fyrir næsta árgang, fá jólaheftið
fritt og urn leið kosningaseðilinn. R i t s t j .
^usMaM 15