Jazzblaðið - 01.11.1950, Síða 16
BANDARÍKIN
★ Count Basie er enn með litla hljóm-
sveit og hefur tenóristinn Wardell Gray
nýlega verið ráðinn í hljómsveitina, en
hann er í hópi beztu tenór-saxófónleik-
aranna. Clark Terry er á trompet og
enginn annar er hinn óviðjafnanlegi
Buddy DeFranco á klarinet.
★ Alvin Burroughs trommuleikari,
sem leikið hefur með mörgum ágætum
negrahljómsveitum (Earl Hines, Red
Allen, Lionel Hampton o. fl.), lézt í
Chicago fyrir nokkrum vikum. Hann
var tæplega fertugur að aldri.
★ JATP, sem er skammstöfun á
hljómleikaflokk Norman Granz, Jazz at
the philharmonic, byrjaði hljómleikaleið-
angur sinn um Bandaríkin frá New
York í lok september. Þeir, sem nú eru
í flokknum, eru m. a. Ella Fitzgerald,
Bill Harris, Flip Phillips, Buddy Rich,
Oscar Peterson og nokkrir fleiri. Flokk-
urinn mun sennilega fara til Evrópu
og leika þar næsta ár, og stendur til að
byrja 1 Kaupmannahöfn í byrjun marz-
mánaðar.
★ Dizzy Gillespie lagði fyrir nokkru
niður hljómsveit sína eins og áður hefur
verið nefnt hér í blaðinu. Hann hefur
leikið með lítilli hljómsveit undanfarið
og hefur hann nú engan fastan samning
við plötufyrirtæki. Ekki einungis tón-
listarblöð um heim allan hafa minnst á
þetta, heldur og dagblöð, en tónlistar-
gagnrýnendur og ritstjórar þeirra eru
allir á klassísku hliðinni og hlakkar
mjög í þeim, að svona er komið fyrir
„konungi Be-bopsins“. En ekkert er að
óttast. Dizzy verður bráðlega búinn að
gera eitthvað, sem færir jazzheiminum
enn á ný sannanir um, að hann er
fremstur allra nútíma-jazzleikara.
ENGLAND
★ London. Margir frægir amerískir
listamenn hafa verið i London undan-
farið, svo sem Frank Sinatra, Lena
Horn, hinir frægu dansarar Nicholas
bræður, og fleiri og fleiri. Enn bætist í
hópinn, því að King Cole er nýlega kom-
inn þangað með tríóið sitt og einnig
hafa negrasöngkonurnar Rose Murphy
og Nellie Lutcher verið þar undanfarið.
Ástralska hljómsveitin Grahame Belle
og hollenzka hljómsveitin The Sky-
masters, eru báðar í Englandi sem
stendur.
★ Danslög. Fimm vinsælustu dans-
lögin í Englandi um þessar mundir eru:
Bewitched, My Foolish heart, Dearie,
Silver Dollar og Let’s do it again. —
í Bandaríkjunum er Bewitched einnig
fremst, en næstu fjögur eru: Bona-
16 JasilMj