Jazzblaðið - 01.11.1950, Síða 17
parte’s retreat, Count every star og
Goodnight Irene.
SKANDINAVÍA
★ Fréttabréf frá Benny Aaslund.
Rolf Erickson, sænski trompetleikarinn,
sem leikið hefur með Bandarískum
hljómsveitum undanfarið, er nýkominn
heim til Svíþjóðar, þar sem hann mun
leika i nokkra mánuði. — í athugun er,
hvort hægt verður að fá bandaríska
trommuleikarann Gene Krupa með
hljómsveit sína til Skandinavíu. —
Nokkrar plötur með sænskum jazzleik-
urum hafa verið gefnar út í Brazilíu.
-— Fyrir nokkru voru gefnar út tvær
plötur í Noregi með norskri Be-bop
hljómsveit, en þær voru brátt teknar úr
umferð, því að sala á þeim var svo
lítil. — King Cole tríóið lék í Stokk-
hólmi í miðjum október.
INNLENT
★ Haukur Morthens hefur sent ritstj.
blaðsins bréf, þar sem hann segir m. a.,
að hann hafi hlustað á marga fræga
söngvara, söngkonur og hljómsveitir í
Englandi, og einnig komist í kynni við
nokkra. — Hann söng í BBC fyrir
nokkru, en ekkert hefur frétzt nánar um
það. Þess má geta, að brezkir söngvarar
telja það himnaríkissælu, að fá að
syngja í BBC, enda fáir aðrir en þeir
allra beztu, sem þar komast að, svo af
þvi má marka, að söngur Hauks hefur
likað vel, þegar hann var „prufaður“.—
Strax og Haukur kemur heim mun blað-
ið birta viðtal við hann.
★ Danslagasamkeppni. Efnt var til
danslagasamkeppni í Góðtemplarahús-
inu nú fyrir stuttu. Alls bárust 17 lög
og voru þau leikin, og um þau kosið tvo
sunnudaga í röð, og voru það einskonar
undanrásir. Fyrstu þrjú lögin, sem kos-
in voru sinn hvorn sunnudaginn mættu
síðan til úrslita næsta sunnudag á eftir
(15. okt.). — Valdimar Auðunsson átti
lagið, er hlaut fyrstu verðlaun og heitir
það „Ástartöfrar“. Helgi Ingimundar-
son átti næsta lag og Jan Morávek það,
er hlaut þriðju verðlaun. Þeir Eyþór
Stefánsson, Valdimar og Guðmundur
Norðdal áttu hin þrjú lögin. Veitt voru
verðlaun fyrir „undanrásir" og voru
það 200, 100 og 50 kr. Fyrir úrslit voru
veittar 500, 300 og 200 krónur.
★ Eyþór Þorláks-
son, bassa- og guit-
arleikari, kom heim
fyrir nokkrum vik-
um frá námi í Eng-
landi. Hann lagði
aðallega stund á
kontrabassanám, en fékk sér þó einnig
nokkra tíma í guitarleik. — Hann lék
íiokkrum sinnum með hljómsveitum í
Manchester og London og komst í kynni
við marga fremstu jazzleikara Breta.
★ Nótnaforlagið Tempó hefur nýlega
sent frá sér þrjú danslög. Má þar fyrst
nefna hin vinsælu lög „Cruising down
the river“ og „My foolish heart“. Lög
þessi eru bæði með íslenzkum texta eft-
ir Eirík Karl Eiríksson og hafa þau
hlotið nöfnin: „Eg líð með lygnum
straumi" og „Glitra gullin ský“. Þriðja
lagið er eftir Valdimar Auðunsson og
hlaut það fyrstu verðlaun í danslaga-
samkeppni SKT nú fyrir nokkru. Lagið
heitir Ástartöfrar og er textinn við það
einnig eftir E. K. E., en píanóútsetn-
ingin er eftir Carl Billich. — Hljóðfæra-
FRAMH. á bls. 19.
17