Jazzblaðið - 01.11.1950, Síða 19
ast. Sjáið Ellington. Hann fær ekki einu
sinni að leika það, sem hann vill. Þegar
hann var í Frakklandi var honum skip-
að að breyta efnisskránni.
— Framtíðaráætlanir? Það er ekki
gott að segja. Maður lætur sér nægja
að vita að orðið er til. — Uppáhalds-
hljómsveitir ? Stan Kenton kemur helzt
til greina í því sambandi. — Uppáhalds-
einleikari? Auðvitað Buddy DeFranco.
Og síðan lagði ég fyrir hann spurn-
inguna: „Hvaða plötu þína álítur þú
bezta?“ Erfið spurning, en með því að
ganga að honum:
.... Sennilega „Ghost of a change“.
Hún hefur ekki verið gefin út enn. Var
nýlega leikin inn fyrir Sonora plötu-
fyrirtækið. Það er aúett með Reinold
Svensson á píanó og mér á klarinet.
Nú er vissulega kominn tími til að
ég segi ykkur frá hinum í hljómsveit-
inni, en þeir eru: Reinold Svensson,
píanó; Bosse Kallström, vibrafónn;
Kalle Löhr. guitar, Roland Bengtsson,
bassi; og nýr meðlimur í hljómsveitinni,
Sture Kallin, sem tók við af trommu-
leikaranum George Odnner.
Þetta eru allt mjög færir hljóðfæra-
leikarar og leika hinar erfiðustu útsetn-
ingar eins og ekkert sé.
Putte Wickmann fremsti klarinet-
leikari okkar, gæti ekki kosið betri
menn með sér, þeir eru hvort sem er
ekki til í Svíþjóð.
FRÉTTIR OG FLEIRA
Framh. af bls. 17.
húsið í Reykjavík hefur nýlega gefið út
lagið „Þriðji maðurinn“ úr samnefndri
kvikmynd, er hefur verið sýnd í Reykja-
vík undanfarið. Lagið nær áreiðanlega
miklum vinsældum, en þeim aldrei lang-
varandi, því að það er ekkert sérstakt.
★ Jazzlclúbbur íslands hefur nú hafið
starfsemi sína á ný. Þegar þetta er rit-
að hefur einn fræðslufundur verið hald-
inn, þar sem nýar amerískar plötur voru
leiknar og skýrðar. Þá er aðalfundur
klúbbsins nýafstaðinn, en hann var hald-
inn 10. okt. Stjórnin gaf lauslega
skýrslu yfir starfsemi klúbbsins á ár-
inu. Gjaldkeri las upp reikninga og
síðan hófust kosningar. Þær fóru þann-
ig, að formaður klúbbsins var kosinn
Svavar Gests, ritari Sigríður Guðmunds-
dóttir, gjaldkeri Helgi Helgason, með-
stjórnendur Róbert Þórðarson og Gísli
Jakobsson. Varamenn Olafur H. Jóns-
son og Inga Maríusdóttir, endurskoð-
endur Magnús Pétursson og Skafti
Ólafsson. Að kosningum loknum ræddu
félagsmenn um starfsemi klúbbsins og
bar þar m. a. á góma, að sameina að
einhverju leyti starfsemi klúbbsins og
Jazzblaðsins og var stjórninni falið að
athuga möguleika á slíku.
* AÐ ÞESSU SINNI verður hvorki
hægt að hafa Texta né Harmonikusíð-
una, þar sem svo mikið lá fyrir af að-
kallandi efni, en þær verða báðar í
næsta hefti. Einnig var ekki hægt að
birta „Athugasemd Nilckara“ við At-
hugasemd A. Lorange í síðasta hefti,
þar sem hún barst of seint, en hún kem-
ur í næsta blaði.
GERIZT ÁSKRIFENDUR AÐ JAZZBLAÐINU
JazMaíiJ 19