Tímarit Tónlistarfélagsins - 01.06.1938, Side 15
Tímarit Tónlistarfélagsins
lands og treystu því, að þar væri sól og sumar, hvernig sem
viðraði sunnanlands.
í förinni voru 37 manns. Flestir ungir að árum, en allir
ungir að anda. Allar ójöfnur á veginum voru jafnaðar með
spaugsyrðum og glaðvæi’ð, svo ferðin gekk ágætlega.
Fyrsta kvöldið var haldið til Blönduóss og gist þar. Næsta
dag héldum við áfram til Akureyrar og komum þangað um
sexleytið þann dag. Allan þann dag var mönnum mikið í
hug, því þetta var merkisdagur. Margar leikferðir hafa að
visu verið farnar til Akureyrar, en þetta var fyrsta skiptið,
sem þar var leikin óperetta og auk þess fyrsta leikför Tón-
listarfélagsins. Menn voru að sjálfsögðu hálf kvíðnir, en
allt fór þó vel. Aðsókn var ágæt og móttökurnar enn betri.
Hjálpaði þar allt til. Sjaldan eða aldrei mun sýning á
þessari óperettu hafa tekizt jafnvel og áttu þar jafnan hlut
að máli hljómsveitin og leikararnir, sem skiluðu hlutverkum
sínum í hrifningu allan leikinn til enda, en áheyrendur
blésu þeim guðmóði í brjóst með hinum innilegu móttökum.
Er þar skemmst af að segja, aö hverju atriði var fagnað með
fádæma lófataki og varð að endurtaka alla söngva og
dansa. Að síðustu var hljómsveit og leikurum þakkað svo,
að elztu menn í Eyjafirði muna slíks engin dæmi. Að lokum
var Pétur Jónsson kallaður fram sérstaklega og varð að
leysa sig út með aukalagi, og síðan allir aðalleikararnir og
leikstjórinn.
Kvöldinu lauk þannig með fullkomnum sigri, og er þess að
vænta, að þessi kynningarferð Tónlistarfélagsins megi verða
til uppörvunar og blessunar íslenzku tónlistarlifi.“
LEIÐBÉTTING.
Þau mistök urðu í prentun síðasta heftis, að í skýringunum hafa
dæmin ruglazt. Fyrstu fjögur dæmin eru úr orgelkonsertinum, en síð-
ustu fjögur dæmin úr Gambasónötunni. Einnig hefir þar á einum stað
misritazt: Busoni fyrir d’Albert.
47