Musica - 01.03.1950, Blaðsíða 10
VAGN KAPPEL:
Saga tónlistarinnar
10. grein.
Óratóríu Hándels.
Handel hafði mistekist, vegna öfundar og ill-
vilja englendinga, að skapa fasta ítalska óperu-
senu í London, óvinir hans er höfðu stofnað
söngleikjahús til að leggja Hándel að velli, höfðu
fallið á sjálf síns bragði, en Hándel hætti við söng-
leikjaáform sín og snéri sér að óratóríunum.
Að sönnu voru óratóríin ekkert nýnæmi fyrir
Hándel, því hann hafði samið óratóríu á Ítalíu, en
millibilið milli óratórísins og söngleiksins var á
köflum nokkuð óskyrt eins og sést á því, að óra-
tórí Hándels „Acis og Galatea“ var uppfært á
söngleikjahúsi hans sviðslega.
Enn biskupinn í London bannaði uppfærslu
órtórísins „Esther“, eftir Hándel á söngleikjahús-
inu, og þarmeð fóru mörkin milli söngleiksins og
óratórísins að skýrast.
Hándel var ekki faðir þeirrar hugmyndar að
byggja tónverk á kirkjulegum eða sagnfræðilegum
grundvelli og uppfæra það án leiktjalda eða leik-
enda í þessa orðs réttu merkingu.
Óratóríið er því aðallega byggt á tónlistinni og
athyglin beinist aðallega að henni.
íslenzkra tónverka, einkum varðandi útvarpið, því
að öðrum kosti hlýtur það að baka þjóðinni tals-
verð útgjöld í erlendum gjaldeyri, þar sem við,
fyrir tilveru þess verðum nú að greiða fyrir flutn-
ing erlendra tónverka, sem áður voru okkur sjálf-
boðin til flutnings. Það segir sig þess vegna sjálft,
að tónflutningar útvarpsins og enda allra túlkandi
vinnukrafta þjóðarinnar verður að taka stór-breyt-
ingum í þjóðnýtari átt til að sporna við kannske
fullkomnum tekjuhalla á okkar hlið. Engu skal hér
spáð um það, hver gifta kann að fylgja þessu fyrir-
tæki. Má vera að betur rætist úr því en til var
stofnað, og vonir standa til. Hins vegar er það
Er Hándel hóf að byggja upp sinn eiginn stíl,
leitaði hann í hin litlu, en fallegu og stílhreinu
óratórí ítalans Giacomo Carissimis, en annars
minna óratórí Hándels, ef frá er tekið hið sviðs-
lega, mikið á söngleikina.
Óratóríið er eins og söngleikurinn byggt upp á
þátum og þáttunum oft skift í deildir (hluta), en
það er aðallega skilur óratórí Hándels frá söng-
leikjunum er kórinn, sem ber upp atburðarrás og
framvindu sjálfs leiksins.
í janúar árið 1739 leigði Hándel Haymarked
leikhúsið, og var salur hússins leigður til skiftis
Hándel fyrir óratóríumuppfærslur sínar og fyrir
grímudansleiki.
Aðsókn var mest að grímudansleikjunum, fólk-
ið skildi ekki vel þýðingu óratóríanna, og það
kom helst til að hlusta á er meistarinn improviser-
aði á orgelið milli atriða.
Árið 1741 ákvað Hándel að taka á móti boði frá
Dublin um að koma þangað, en borgin var þá mið-
stöð mikillar tónmenningar.
Áður hafði hann á tveim vikum samið tvö af
sannfæring mín, að eins og sakir standa hefði
verið hægt að gera ýmislegt þarfara íslenzkri tón-
menningu til eflingar og farsældar. Enda væri það,
því miður, í allt of miklu samræmi við starfshætti
íslenzkra listamanna-samtaka, að þetta síðasta
fyrirtæki þeirra yrði til þess eins, að íþyngja þjóð-
inni, á kreppu-tímum, með erlendum skuldakröf-
um, sem hún gat verið laus við, og afla sjálfum
sér óvinsælda.
En þá væri líka erindi okkar í Bernhard-sam-
bandið verra en íllt.
Akureyri á gamlársdag 1949.
Björgvin Guðmundsson.
10 MUSICA