Útvarpstíðindi - 27.08.1945, Side 4

Útvarpstíðindi - 27.08.1945, Side 4
172 ÚTVARPSTÍÐINDI fréttastofu blaðamanna, sem sér um fréttaútsendingar útvarpsins, og hann fræddi mig nokkuð um starfsemi danska útvarpsins undir hernámi Þjóð- verja. Ég heimsótti einnig hina glæsi- legu Útvarpshöll Dana og skoðaði hana eins og föng voru á. Ég ætlaði mér að skrifa grein um hana fyrir Útvarps- tíðindi og einnig um danska útvarpið undir oki Þjóðverja, en ég fann að ég liafði ekki tíma til að kynna mér það efni eins og ég óskaði og bað því Per Björnsson- Soot að slcrifa þessa grein. pyrir nokkru barst mér svo grein hans. Hún er í tveimur köflum. Hinn fyrri, sem byrtist í þessu hefti, fjallar um útvarpsrekstur Dana almennt og Út- yarpshöllina og kennir þar margra grasa og hinn síðari fjallar um danska útvarpið undir oki Þjóðverja. Ég vil geta þess að Per Björnsson- Soot dvaldi hér á landi all lengi fyrir mörgurn árum og að hann er Kaup- imannahafnarfréttarritari útvarpsins. Má og segja að liann hafi lialdið upp, á styrjaldarárunum, eina sambandinu, sem var milli Danmerkur og -íslands og þá fyrst og fremst milli íslendinga búsettra í Danmörku og okkar heima, því að skeyti hans og fréttabréf fjöll- uðu fyrst og fremst um þá og þeirra störf. — Per Björnsson- Soot nýtur og mikils trausts meðal danskra blaða- manna. Sagði Peter Tabor, aðalritstjórr Social- Deinokratens við mig að Per Björnsson- Soot væri hinn ágætasti Inaður og hefði undir hernámi Þjóð- Verja sýnt frábæra starfshæfileika. — 1 greinum hans, sem byrtast í þessu hefti og því næstá, er ekki getið um framlag hans í baráttu dönsku þjóð- arinnar í sambandi við útvarpsrekstur- inn — og finst mér því skylt að láta þessi orð fylgja um leið og fyrri grein hans kemur í Útvarpstíðindum. V. S. V. í júlímánuði, þegar þessi grein er skrifuð, er tilkynnt, að úlvarpsnotend- •um í Danmörku hafi fækkað síðustu 12 mánuði um 4000 — og að tala þeirra sé því nú að eins 1.009.735. Þetta er í fyrsta skipti sem útvarps- notendum fækkar í Danmörku síðan danska ríkið tók útvarpsreksturinn í sínar hendur árið 1925. Þessi mikla fækkun útvarpsnotenda stafar fyrst og fremst af því að mikill skortur er á rafmagni. Þessir 4000 útvarpsnotendur iiafa selt útvarpstæki sín, vegna þess, að þeir hafa ekki haft ráð á að nota rafmagnsskamt sinn til þess að hlusta á útvarp — en ekki treyst sér til þess að standast freistinguna, ef þeir ættu tæki sín áfram. Hin svokallaða rafmagnsskömtun hefur lika orðið þess valdandi, að út- sendingartímum danska útvarpsins hef- ur fækkað stórkostlega. Áður var út- varpað nær allan daginn, en nú er hlé í marga tíma. Útvarpið hefur sjálft ákveðið þessi hlé af frjálsum Ivilja, vegna rafmagnsskortsins og án þess að það hafi fengið fyrirmæli um það. Það er ekki lengra síðan en 4. maí síðast liðinn, að útvarpið varð, næst- um þvi daglega, að grýpa inn í ákveðna dagskrá með tilkynningunni: „Kaup- mannahöfn—Kalundborg. Vér verðum að stöðva útsendingar um stund.“ — !Og nokkru siðar heyrðust flugvéladrun- ur og nokkrum sinnum áköf skothríð. 'En að eins í tvö skipti var sprengjum kastað á Kaupmannahöfn, en aldreí var þeim stefnt að „Útvarpshöllinni“ Við Rosenörns Allé, þrátt fyrir það að hún, var eins og svo margar aðrar opinberar byggingar í Kaupmannahöfn, hertekin af Þjóðverjuin. Þegar Vilhjálmur S. Vilhjálmsson ritstjóri Útvarpstíðinda var staddur hér i Kaupmannahöfn heimsótti hann „Útvarpshöllina“ og talaði við mig sem starfsmann fréttastofu blaðamanna, en þannig köllum við í heild frétla- þátt útvarpsins. Ritstjórinn bað mig að skrifa grein fyrir íslensku Útvarps- tíðindin, sem fjallaði um hvorttveggja í senn, háborg danska útvarpsins: Út- varpshöllina í Rosörns Allé og aðstöðu danska útvarpsins meðan styrjöldin

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.