Útvarpstíðindi - 27.08.1945, Blaðsíða 10
178
ÚTVARPSTÍÐINDI
Best væri að raða þannig efni, að
sem minnst bæri á samskeytum og
blanda sem minnst saman fjærskildum
efnum, þá gæti hver og einn notið
sinna hugðarefna, án þess bakreiknings
að missa tíma til ónýtis, eða þreyta
hlustirnar um of. Það er margt fleira
en baunirnar hans Arna, sem getur
orðið að ómeti með því að annað
enn betra sé sett saman við. Ef einn
bóndi á góða stör og gott eltingarhey,
þá getur hann alið kýrnar á störinni
og hestana á eltingarheyinu, en á því
fóðri samanhristu mundi hvorugt lifa.
Það er nú svo með útvarpið, eins
og dagblöð og tímarit. það byrjar
allt með skemmtilega fjölþættilegum
efniviði, en allt fer það sömu leiðina.
Það verður með tíð og tíma einhliða,
hefðbundið og persónulegt, — nokkr-
ir menn og viss málefni ná yfirtök-
unum.Fjölþætt smáatri komast ekki
að, svo endirinn verður sá að les-
endur og hlustendur verða bókstaf-
lega hundleiðir. Hvað skildu t. d. ein-
söngvarar koma mörgum sinnum oft-
ar að hljóðnemanum en skáld, að
ég nú ekki nefni hagyrðinga, sama er
að segja um íþróttafólk, það virðist
vera búið að meintaka öll málgögn
þjóðarinnar og er það þó mjög vafa-
söm menningarstofnun. Margt af slíku
á rætur að rekja til svörtustu tíma
þióðskipulaganna, og er því and-
streymi í því þjóðskipulagi sem nú
er barist fyrir um allan heim.
Mér er það fyllilega ljóst að þið
útvarpsstjórnendur eruð mjög háðir
menningunni og vitið betur en ég
hvað er menning, en ég veit það
að mörg þessi nútímamenning er
mjög leiðigjarn yfirdrepskapur, meira
RÍKISÚTVARPIÐ
Takmark Ríkisútvarpsins og œtlmiarverk
er að ná til allra þegna landsins meC hveri-
konar fræðslu og skemmtun, sem því er unnt
að veita.
AÐALSKRIFSTOFA ÚTVARPSINS
annast um afgreiðslu, fjárhald, útborganir,
samningagerðir o. s. frv. — Útvarpsstjóri er
venjulega til viðtals kl. 2—4 síðd. Sími sknf-
stofunnar er 4993. Sími útvarpsstjóra 4999.
INNHEIMTU AFNOTAGJALDA
annast sérstök skrifstofa. — Sími 4998.
ÚTVARPSRÁÐIÐ
(Dagskrárstjórnin) hefur yfirstjóm hinnar
menningarlegh starfsemi og velur útvarps-
•fni. Skrifstofan er opin til viðtals eg af-
greiðslu frá kl. 2—4 síðd. Sími 4991.
FRÉTTASTOFAN
annast um fréttasöfnun innanlands og frá
útlöndum. — Fréttaritarar em í hverju hér-
aði og kaupstað landsins. Sími fréttastofu
4994. Sími fréttastjóra 4846.
AUGLÝSINGAR
Útvarpið flytur auglýsingar og tilkynningar
til landsmanna með skjótum og áhrifamikl-
um hætti. Þeir, sem reynt hafa, telja út-
varpsauglýsingar áhrifamestar allra anglýs-
inga. Auglýsingasími 1095.
VERKFRÆÐINGUR ÚTVARPSINS
hefur daglega umsjón með útvarpssteðinni,
magnarasnl og viðgerðastofu. Sími verk-
fræðings 4992.
VIÐGERÐARSTOFAN
annast um hverskonar viðgerðir og breyt-
ingar viðtækja, veitir leiðbeiningar og
fræðslu um not og viðgerðir viðtœkja. Simi
viðgerðarstofunnar 4995.
TAKMARKIÐ ER:
Útvarpið inn á hvert heimilil Allir lands-
menn þurfa að eiga kost á því, að hlusta £
æðaslög þjóðlífsins; hjartaslög heimsins.
Bíkisútvarpid.