Útvarpstíðindi - 27.08.1945, Blaðsíða 11

Útvarpstíðindi - 27.08.1945, Blaðsíða 11
'ÚTVARPSTÍÐINDI 179 en nauðsynlegur siðalærdómur. Þið flaggið með eintómum vísdómi eft- ir heimsfræga höfunda. Slíkar kynn- ingar eru orðnar næsta hversdagsleg- ar, og gefa það fyllilega í skyn að þar er ekkert nýnæmi á ferðinni, en maður býst þó við að eitthvað sé til þar fyrir neðan, sem gæti þó verið til tilbreytingar við og við. Það virðist eins og sá misskilning- ur hafi slæðst inn í herbúðir útvarps- ins, að þær eigi að vera nokkujskon- ar útverðir máls- og menningar, en það er nú raunar ekki meiningin. Ut- varpið á að skemmta þjóðinni með sem fjölþættustu efni, vitanlega fyrst og fremst með skemmtilegum fróð- leik, en það á alls ekki að knésetja hana eða verða nein menntastofnun. Það er talið að gamalmenni og sjúkl- ingar séu tryggustu hlustendur út- varpsins, og að einmitt það fólk hlusti á það dag hvern í hundraða tali. Sök- um elli og sjúkleika getur það þó ekki talist nemendur. En slík alþjóð- arstofnun sem útvarpið er, ætti þó að taka tillit til þessa fólks. Ég heyrði einu sinni á það minnst, að útvarps- lesurum hætti til að gleyma íslandi utan Reykjavíkur, og má þá varla minna vera, en að þeir muni eftir Reykvíkingum. Þá er það margmælgin um virsa menn, hún gengur oft út í öfgar. Þó maðurinn eigi allt það mögulega skil- ið, þá er það bjarnargreiði einn, að láta það allt leysast upp í tómahljóðs upphrópunum og endurtekningum. Raunar varð nú ekki endirinn sá með Jónas Hallgrímsson, því Helgi Hjör- var flutti þar lokaþáttinn af hinni mestu snild, en margt var áður búið að segja um Jónas, sem hefði mátt segja betur um slíkan mann. Eitt af síðustu orðum Jónasar var spáin um það, að hann yrði ekki grát- inn, og var það viturlega mælt, sem flest það er fram kom af hans munni. Yfirleitt hygg ég að íslendingar hafi lítið gjört að því að gráta Jónas Hall- grímsson. Þeir flagga fyrir dánardegi hans eins og fullveldisdeginum og fæðingardegi Jóns forseta. Enda er það sitt hvað, að gráta góðan dreng og að heyja kapphlaup í þeirri list að heiðra minningu hans með hliðsjón til sinna eigin metorða. Eitt nýmæli var á döfinni þessa Jónasar daga og var það að vonum að lærðir menn vildu heiðra minningu hans með frumlegum orðum. Þá ný- íslenzku sem hér um ræðir hefði ég ekki skilið, ef ég hefði ekki notið annarra að, sem gátu þýtt hana á gamla íslenzku. Gott væri að B. S. vildi lofa manni að heyra hvaða rök mæla með því að orðið ,,ártíð“ tákni ævilok eða afmæli, og í þessu tilfelli dáins afmæli. Eftir líkum að dæma hefði maður talið að orðið þýddi upp- haf frekar en endi, samanber „Ár vas alda.“ Eins um uppruna orðsins og frá hvaða landshluta það er komið. En úr því ég minntist á Björn Sig- fússon, þá vildi ég geta þess að ég hefði kosið hans hlutverk í útvarpinu á annan veg en er. Hans þáttur þykir mér einn sá skemmtilegasti, máske þó að undanteknum lestri íslendinga- sagnanna. Björn er einn hinn prýðilegastr fræðari, hann fullyrðir sjaldan og *hefur því þeim mun meiri tiltrú. Hann heldur sig fast við forna málið og fer

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.