Útvarpstíðindi - 27.08.1945, Page 18

Útvarpstíðindi - 27.08.1945, Page 18
186 ÚTVARPSTIÐINDI Steindórs, því að Finn má telja me'Sal mein háttar fræðaþula úr alþýðustétt. Miðvikudaginn 5. september flytur Árni Óla blaSamaður erindi um Hólma- vík í tilefni af 50 ára afmæli staðar- ins. Fyrir réttum 50 árum var fyrsta húsið byggt þarna, þar sem þá var hrjóstug eyðimörk. Nú eru íbúarnir orðnir nokkuð á 4. hundrað talsins. Ræðumaðurinn, Árni Óla, er útvarps- hlustendum að góðu kunnur. Sunnudaginn 9. sept. talar Þórhallur Þorgilsson bókavörður um franska skáldið Cierre de Ronsfird, en Þórhall- ur þekkir manna bezt hér á landi til rómanskra bókmennta. Pierre de Ronsard (f. 1524 — d. 1585?) var hið mest áberandi skáld Frakka í upphafi viðreisnaraldarinnar (renaissance-tímanna), og bar ekki meira á öðru ljóðskáldi um þær mund- ir í allri álfunni, ef Comöes hinn portú- galski er undanskilinn. En þeir voru jafnaldrar. Ronsard var foringi þess skáldaskóla, sem kallaði sig „sjöstirn- ið“ — la Pléiade, sem innleiddi forn- menntastefnuna í franskan skáldskap og tók sér hin ítölsku skáld — Pet- rarca, Aretino, Sannazaro o. fl. — mjög til fyrirmyndar. Þeir félagar voru í rauninni fyrirrennarar hins franska ,,klassicisma“ og undirbjuggu jarðveginn fyrir hin glæsilegu verk Corneilles og Racines, sem ljóma bar af um alla Norðurálfu. Miðvikudaginn 12. sept. flytur Geir Jónasson sagnfræðingur erindi, en efni þess var ekki að fullu ákveðið, er Útvarpstíðindi fóru í prentun. Af innlendum hljómlistaratriðum má geta einsöngs Bjarna Bjamasonar læknis frá Geitabergi, mánudaginn 3. S 9 Kristinn Ingvarsson. sept. Bjarni hefur sjaldan látið heyra til sín í útvarp, en um skeið tók hann mikinn þátt í sönglistarlífi Reykja- víkurbæjar og hvað þá mikið að hon- um. Ungfrú Kristín Einarsdóttir syngur viku seinna, mánudaginn 10. sept., syngur þá lög eftir Sigurð Þórðarson, Grieg og Schubert. Kristín hefur sung- ið fjölmörgum sinnum í útvarpið á undanförnum árum og hefur hlotið miklar vinsældir fyrir hina þýðu og fögru rödd sfna. Þá er í ráði að Birgir Halldórsson söngvari syngi fyrir útvarpið í fyrri hluta septembermánaðar. Birgir fór 8 ára að aldri til Vesturheims og hefur dvalið þar þangað til í vor að hann kom f kynnis- og söngför til lslands, * en fer utan aftur seint í september, Það eru 17 ár síðan Birgir fór af landi burt, Ias hann læknisfræði við háskóla vestur í Kanada en byrjaði þá jafnframt á söngnámi. Hreif sönglistin

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.