Prentarinn - 01.10.1966, Blaðsíða 7

Prentarinn - 01.10.1966, Blaðsíða 7
S K U L D I R : 1. Sjóður og sparisjóðsinnstæða .................... kr. 831.579,03 2. Fasteignin við Hverfisgötu 21, Rvík................ — 115.000,00 3. Jörðin Miðdalur í Laiigardal ...................... — 933.732,20 4. Orlofsheimilið í Miðdal ........................... — 614.609,14 5. Veðdeildarbréf Landsbankans....................... —- 20.000,00 6. Sknldabréf Byggingarsamvinnufél. Rvíkur......... — 30.000,00 7. Skuldabréf Byggingarsamvinnufél. prentara .... — 209.500,00 8. Skuldabréf Byggingarsamvinnufél. starfs- manna stjórnarráðsins ............................. — 38.100,00 9. Skuldabréf Lánasjóðs .............................. — 1.321.186.00 10. Hlutabréf í Eimskipafélagi íslands ................ — 1.000,00 11. Ýmsar eignir .................................... — 48.523,15 Samtals kr. 4.163.229,52 Reykjavík, 8. febrúar 1967 Pélur Stejánsson kvarðist hverju sinni ýmist með samkomulagi milli ríkisvaldsins og beildarsamtaka launamanna og at- vinnurekenda, eða milli ríkisvalds- ins og ýmissa sambanda innan heildarsamtaka launamanna og at- vinnurekenda. Hvor leiðin sem farin er útilokar einstaka smáhópa frá sjálfstæðum samningum, eins og til dæmis verulegum breytingum á grunnkaupi og vinnutímalengd. Nú stendur þannig á, eins og yð- ur mun kunnugt, að flestir eða allir kjarasamningar verkamanna og iðn- aðarmanna í landinu falla úr gildi 1. október n.k. Ekki er kunnugt, að neitt þeirra fjölmörgu félaga, sem bér um ræðir, aðrir en bókagerðar- menn, hafi gert grein fyrir óskum sínum varðandi breytingar á samn- ingunum. Meðan ekki er vitað um þær óskir, getur fámennur hópur at- vinnurekenda, sem enn stendur ut- an við Vinnuveitendasamband Is- lands, ekki tekið forustuna í því til- tölulega stóra máli, sem hér um ræðir. Þetta væntum vér að þér skiljið og viðurkennið. Af þessu leiðir, að félög þau, sem mynda Samband bókiðnaðarins, telja sig knúin til þess að liafa sam- ráð við heildarsamtök atvinnurek- enda, Vinnuveitendasamband ís- lands og Vinnumálasamband Sam- vinnufélaganna, í þessum efnum, eins og reyndar liefur verið gert s.l. tvö ár. Með tilvísun til þess, sem að framan greinir, teljum vér oss ekki fært að hefja samninga um nefndar óskir yðar fyrr en línurnar skýrast, að því er snertir samskonar samn- inga við hliðstæða aðila á vegum Vinnuveitendasambands íslands.“ Bréf þetta var tekið fyrir á fundi í samstarfsnefnd bókagerðarfélag- anna og þar samþykkt að svara ekki bréfi þessu, lieldur bíða og sjá, hvort einhverjar breytingar yrðu á afstöðu atvinnurekenda til samningaviðræðna. Næst gerist það í þessum málum, að sáttasemjari ríkisins boðar til sáttafundar með deiluaðilum laug- ardaginn 1. október. Á þeim fundi, sem stóð yfir í rúmlega 3 klst., bar sáttasemjari m. a. fram ósk um frestun verkfallsins, þar til í ljós kæmi, bvaða stefnu verkalýðshreyf- ingin tæki í launamálum. Þessari málaleitan sáttasemjara svöruðu bókagerðarfélögin á þá leið, að meðan atvinnurekendur fengjust ekki til að ræða kröfurnar, væri ekki að vænta frestunar á þeg- ar boðuðu verkfalli. Annar fundur með sáttasemjara var haldinn í Alþingishúsinu mið- vikudaginn 5. október. Formaður og ritari H. I. P. ræddu á þessum fundi við formann F. I. P. og forstjóra Gutenbergs. En það kom í einn stað niður. Svörin voru sem fyrr þau, að ekki væru mögu- leikar á samningum við bókagerðar- félögin, meðan önnur verkalýðsfélög settu ekki fram kröfur og séð yrði, hvaða stefna mundi tekin í launa- málum. Lauk því þessum fundi einnig án árangurs. Þriðji og síðasti sáttafundurinn var haldinn 7. október kl. 2 e. h. Eftir nokkrar umræður, sem voru efnislega hinar sömu og á fyrri fundum, lögðu atvinnurekendur fram eftirfarandi tilboð: „Samband bókaiðnaðarins getur fallist á að leysa yfirstandandi kjaradeilur við Hið íslenzka prent- arafélag, Offsetprentarafélag ís- lands, Bókbindarafélag Islands og Prentmyndasmiðafélag Islands, á eftirgreindan hátt: 40 stunda vinnuviku allt árið verði komið á í áföngum á sex ár- um, þannig: Við bætist laugardagsfrí, árið 1967 16.—30. apríl og maí- mánuður, árið 1968 marzmánuður og 1.—15. apríl, árið 1969 16.—31. janúar og febr- úarmánuður, árið 1970 1.—15. janúar og sept- embermánuður, árið 1971 októbermánuður og 1.— 15. nóvember, árið 1972 16.—30. nóvember og desembermánuður. Ákvörðun um kaupgjald verði frestað, þar til í ljós kemur, hver heildarstefnan verður í launamál- um almennt á næstunni. Að öðru leyti framlengist samningar til 1. október 1967.“ Tilboð þetta var fyrst rætt innan samstarfsnefndarinnar. En eftir að fulltrúar livers félags höfðu ræðzt við einslega, varð niðurstaðan sú, að PRENTARINN 45

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.