Prentarinn - 01.10.1966, Blaðsíða 13

Prentarinn - 01.10.1966, Blaðsíða 13
Orlofsheimilisnefndin vill hér með flytja félagsmálaráðherra Eggerti G. Þorsteinssyni, þakkir sínar fyrir já- kvæða afgreiðslu hans á erindi nefndarinnar. Við þetta er litlu að bæta. Stjórn H. I. P. var afhent féð, og kemur fram í reikningum félagsins og einnig í rekstrarreikningi orlofs- heimilisins, hvernig hún ráðstafaði því, og er ekki ástæða til að endur- taka það hér. Orlofsheimilisnefndin var þannig skipuð á starfsárinu: Jón Agústs- son og Kjartan Olafsson, kosnir á síðasta aðalfundi til eins árs, og Pálmi A. Arason, tilnefndur af fast- eignanefnd. Hittumst heil í Miðjum-dal. Kj. Ó. Skýrsla fulltrúa H. í. P. í stjórn Bygginga- félagsins Miödalur Allt frá árinu 1942, þegar fyrst voru mynduð samtök innan H. I. P. um að hyggja sumarbústaði í Mið- dal, hefur stjórn H. í. P. átt full- trúa í stjórn þess félags, sem fyrst var nefnt Byggingarfélag prentara og síðar breytt í Byggingarfélagið Miðdalur. Félagið var í upphafi myndað í þeim tilgangi „að koma upp sumar- bústöðum fyrir meðlimi sína á jörð H. í. P. í Miðdal", og kom það í framkvæmd byggingu 14 bústaða. Þó margir bústaðir hafi verið byggðir síðan hefur það ekki verið gert á vegum félagsins. Engu að síður hefur félagið alla tíð verið með nokkru lífsmarki og haft um- sýslu með sameiginlegum málefn- um sumarbústaðaeigenda í Miðdal, án þess að talin væri brýn þörf á miklum fundahöldum. Eftir að Orlofsheimilið var byggt á árinu 1960 og félagsmenn H. I. P. áttu þess almennt kost að kynnast af eigin raun þeirri andlegu og líkamlegu hressingu, sem dvöl þar hefur mörgum veitt, vaknaði áhugi ntargra fyrir því að reisa eigin bú- stað. Jafnframt hefur vaknað áhugi bú- staðaeigenda fyrir ýmsunt sameigin- legum framfaramálum. Hefur það leitt til þess að nú hafa lög Bygg- ingafélagsins Miðdalur verið endur- skoðuð og færð til samræmis við breyttar aðstæður. Hafa lögin verið send stjórn H. I. P. og verið stað- fest. A þessu ári varð félagið 25 ára. Af því tilefni var efnt til veglegs afmælishófs í febrúarmánuði og til þess boðið fyrrverandi og núverandi ábúendum Miðdals. Sóttu það hóf um 90 manns. Núverandi stjórn félagsins skipa: Guðjón E. Long, formaður, Ellert Ag. Magnússon, ritari, Jón Otti Jónsson, gjaldkeri, Valur Jóhannsson og Pjetur Stefánsson. Frá Lífeyrissjóði prentara Reikningar sjóðsins fyrir árið 1966 verða væntanlega birtir í næsta blaði Prentarans, og verður því aðeins getið hér þeirra liða í rekstri sjóðsins, sem næstum full niðurstaða er fengin um. Alls voru veitt 54 fasteignaveðs- Ián á árinu, 38 ný lán og 16 viðbót- arlán, sem skiptast þannig eftir bú- setu sjóðfélaga (fyrri talan ný lán, síðari viðbótarlán): Reykjavík ................ 26—8 Kópavogur................. 6—4 Akureyri ................. 3—2 Hafnarfjörður............. 2—1 Akranes .................. 1-—1 Samtals voru þessi lán að fjárhæð kr. 6.920.000,00, og er það tvöfalt hærri upphæð en varið var til fast- eignaveðslána á árinu 1965. Nú eru liðin sjö ár síðan útlán úr sjóðnum hófust, og hafa verið lánaðar á þessu tímabili samtals kr. 19.384.000,00, en tala útgefinna veðskuldabréfa mun vera um 220. Verði eftirspurn svipuð eða meiri á þessu ári en 1966, má búast við að sjóðstjórnin áskilji sér rétt til að afgreiðslu- frestur verði lengri en hann hefur verið til þessa, og ennfremur, að nýir sjóðfélagar öðlist ekki rétt til lántöku úr sjóðnum fyrr en eftir tvö ár, í stað eins árs, eins og var fram að s.l. áramótum. Innheimt iðgjöld á árinu munu vera að fjárhæð kr. 4.100.000,00. Endurgreiðslur og afborganir af lánum nema um kr. 1.190.000,00. Vextir af fasteignaveðslánum kr. 920.350,00 og aðrar vaxtatekjur kr. 96.570,00, eða allar vaxtatekjur sjóðsins kr. 1.016.920,00. Endurgreiðslur úr A-deild námu alls kr. 61.011,87. Barnah'feyrir A- deildar kr. 55.808,00. Lífeyrir úr B- deild kr. 26.000,00. Kj. Ó. 51 Prentarar! Munið Styrktarsjóð Kvenfélagsins Eddu. Minningarspjöld sjóðsins eru seld í skrifstofu H. I. P., sími 16313, hjá Elínu Guðmundsdóttur, simi 42059, hjá Nínu Hjaltadóttur, sími 37416, og í Bókaverzlun Snæbjarnar Jónssonar & Co., Hafnarstræti 9. v_____________________________________________________) PRENTARINN

x

Prentarinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Prentarinn
https://timarit.is/publication/732

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.