Prentarinn - 01.10.1966, Blaðsíða 10
ina. Nefndin skipti þannig með sér
verkum: Formaður Pálmi Arason;
ritari Sigurðiir Guðgeirsson; gjald-
keri Guðbjörn Guðmundsson.
Á liðnu ári beindust verkefni
nefndarinnar aðallega að tvennu,
fasteign félagsins að Hverfisgötu 21
og sumarbústaðalandinu í Miðdal.
Hverfisgata 21
Eins og getið er um í síðustu
skýrslu nefndarinnar fóru fram all-
miklar lagfæringar á húsinu að inn-
an á árinu 1965. Eftir var að mála
og gera við búsið að utan, en þá
voru liðin 10 ár frá því að húsið var
málað og var því ýmislegt sem gera
þurfti við áður en málun hússins
hæfist, svo sem sprungur í húsinu,
skipta um og kítta rúður o. fl. Mál-
un hússins hófst svo strax og veður
leyfði s.l. vor og tók Halldór Magn-
ússon málarameistari verkið að sér.
Með utanhússmálun lauk gagngerðri
viðgerð, sem duga ætti um langan
tíma.
Sumarbústaðalandið í Miðdal
Á síðasta framhaldsaðalfundi
H.l.P. var samþykkt ný reglugerð
um lóðir og byggingar í sumarbú-
staðalandinu í Miðdal. I þessari
nýju reglugerð eru ýmsar breyting-
ar frá hinni eldri, meðal annars er
ákvæði um, að nefndinni beri að
gera lögformlegan samning (lóða-
samning) við lóðarhafa. I því sam-
bandi ákvað nefndin að tilkynna
þeim félagsmönnum sem lóðaút-
hlutun höfðu fengið í Miðdal og
ekki hafið byggingu sumarbústaðar
á s.l. ári, að nefndin hefði ákveðið,
samkv. ákv. reglugerðar að svifta þá
lóðarréttindum og yrðu þeir því að
sækja um lóðir á ný á grundvelli
liinnar nýju reglugerðar. Þess skal
getið hér, að allir þeir menn sem
nefndin ákvað að tilkynna framan-
greint, höfðu liaft lóðir allt frá
tveimur til sjö ára, en í eldri reglu-
gerð sagði: „Réttindi til lóðar falla
niður ef ekki er hafin bygging bú-
staðar innan eins árs frá úthlutun
lóðar“. Þessi ákvörðun nefndarinn-
ar olli miklum úlfaþyt meðal þeirra
er þarna áttu hlut að máli, og reynd-
ar fleirum. Endalok þessa máls urðu
þau, að 7 af þeim 10 félagsmönnum,
sem nefndin tilkynnti framangreinda
lóðaruppsögn liafa fengið lóðir sínar
á ný og eru sumir þegar byrjaðir
byggingu sumarbústaða sinna. Auk
framangreindra félagsmanna sóttu
þrír aðrir um lóðir og hefur einn af
þeim fengið úthlutað lóð.
Eins og sjá má af framanrituðu er
mikill áhugi hjá prenturum að koma
sér upp eigin sumarbústöðum í Mið-
dal, enda ekki óeðlilegt í slíkri para-
dís sem við eigum þarna. Verður
því félagið að búa sig undir enn
meiri eftirspurn eftir lóðum og búa
svo um hnútana að félagsmenn eigi
þess kost að geta fengið lóðir strax
og þeir sækja um. Ber því brýna
nauðsyn til að láta skipuleggja það
land sem félagið hefur til umráða
undir sumarbústaði, þannig að fast-
eignanefnd geti hverju sinni úthlut-
að lóðum eftir fyrirfram gerðu
skipulagi. I sambandi við hina nýju
reglugerð var nefndinni falið að
gera uppkast að lóðarsamningi í
samráði við lögfr. félagsins, sem hún
og gerði og lagði fyrir stjórn félags-
ins 20. ágúst s.l. til sarnþ. en þar
hefur hann ekki hlotið afgreiðslu
enn.
P. A. A.
Skýrsla
skemmtinefndar
Þessir félagar voru kosnir í
skemmtinefndina á aðalfundi H. I.
P. 17. apríl 1966: Agúst Bjömsson,
Guðmundur Oli Ólason, Óðinn
Geirsson, Sæmundur Árnason og
Valgeir Emilsson. Valgeir gat ekki
tekið við störfum í nefndinni vegna
livarfs að öðru starfi.
A framhaldsaðalfundi 19. maí var
Jón Otti Jónsson kosinn í hans stað.
Nefndin kom fljótlega saman og
urðu verkaskiptin þannig: Formað-
ur Jón Otti Jónsson, gjaldkeri Óð-
inn Geirsson og ritari Guðm. Óli
Ólason.
1 samráði við Félagsheimilisnefnd
voru barnasýningar og félagsvist á-
kveðið með sama sniði og árið áður.
Það er skemmst frá að segja að
aðsókn að þessu hvoru tveggja hef-
ur stórminnkað, þrátt fyrir sömu
þjónustu og áður og rækilegar aug-
lýsingar.
1 aðeins eitt skipti var viðunandi
aðsókn á bamasýningu, en það var
jólasýningin. Guðmundur Óli spil-
aði þá á píanóið og Ágúst Björns-
son hélt uppi söng fyrir bömin.
Jólatrésskemmtunin var að venju
haldin að Hótel Borg laugardaginn
7. janúar 1967 og var aðsóknin í
betra lagi. Að þessu sinni var sú ný-
breytni tekin upp að gefa börnun-
um skrautlegar pappírshúfur þeim
til mikillar ánægju. Börnin fengu
einnig kakó og sælgætispoka eins
og tíðkast hefur undanfarin ár.
Ómar Ragnarsson sá um heimsókn
jólasveinanna Ketkróks og Gátta-
þefs og var mikil kátína í kringum
þá eins og gefur að skilja.
Nefndin ákvað að efna til fjög-
tirra manna sveitakeppni í Bridge
milli prentsmiðjanna og varð því að
fækka barnasýningum. Bridgemóts-
ins er betur getið á öðrum stað í
blaðinu.
Félagsvistin var færð til frá föstu-
degi yfir á fimmtudag vegna sjón-
varpsins, sem hefur útsendingar á
föstudögum. Árangur þeirrar ráða-
breytni var í einu orði sagt enginn.
Okkur í nefndinni er spurn hvort
ráðlegt er að halda áfram með
barnasýningar og félagsvistina við
svona slæmar undirtektir. Það er
alltof mikil fyrirhöfn og kostnaður
og ekki meiri árangur en þetta.
Það væri því athugandi fyrir
næstu skemmtinefnd að finna upp
á öðrum þáttum í staðinn.
6. marz 1967.
Jón Otti Jónsson.
Skýrsla
bókasafnsnefndar
Eftir aðalfund síðasta árs kom
bókasafnsnefnd saman til síns fyrsta
fundar 28. apríl og skipti verkum á
48
PRENTARINN