Prentarinn - 01.10.1966, Síða 14
Sigurvegarar í Bridgemóti H. I. P., sveit Prentsmiðjunnar Hólar. Talið jrá vinstri: Halldór Magnússon, Einar
Elíasson, Magnús Þorbjörnsson og Birgir Sigurðsson, fyrirliði sveitarinnar. (Ljósm.: Bjarnleifur).
Bridgemót H. í. P.
Skemmtinefnd H. I. P. efndi til
fjögurra manna sveitakeppni í
Bridge í febrúarmánuði s.l. Þrjár
prentsmiðjur sendu sveitir í mótið.
tvær frá Prent-miðju Morgunblaðs-
ins, ein frá Prentsmiðjunni Hólar
og ein frá Prer.tsmiðju Þjóðviljans.
Mótið var baldið í Félagsheimili
prentara í tveim fyrstu umferðun-
ura, en síðasta umferðin var spiluð
í Farfuglaheimili Reykjavíkur, þar
eð sama dag var stjórnarkosning í
Félagsheimilinu.
Spiluð voru 32 spil í hverri um-
ferð. Birgir Sigurðsson, Hólum,
veitti nefndinni mjög mikla aðstoð
við framkvæmd mótsins.
Urslit mótsins urðu þessi:
Nr. 1. Prentsmiðjan Ilólar með
18 stig (Birgir Sigurðsson, ðlagnús
Þorbjörnsson, Ilalldór Magnússon
og Einar Elíasson).
Nr. 2. A-sveit Morgunhlaðsins
með 12 stig (Halldór Aðalsteinsson,
Gísli Steinar Jónsson, Arnór Ragn-
arsson og Atli Steinarsson. Vara-
maður Hafsteinn Hjaltason).
Nr. 3. B-sveit Morgunhlaðsins
með 6 stig (Guðmundur Einarsson,
Baldur Garðarsson, Lárus Ragnars-
son og Hilmar Eysteinsson. Vara-
maður Sveinbjörn Ragnarsson).
Nr. 4. Sveit Þjóðviljans með 0
stig (Jörundur Guðmundsson, Helgi
Hóseasson. Jóhannes Eiríksson og
Sigurður Sigurðsson).
Stjórn H. I. P. veitti góðfúslega
leyfi til að félagið gæfi hikar til
keppninnar.
Að lokinni síðustu umferð afhenti
Ágúst Björnsson, skemmtinefndar-
maður, sigurvegurunum bikarinn. —
Síðar var hikarinn áletraður með
nafni prentsmiðjunnar Hólar og
nöfnum sveitarmanna. -— Bikarinn
vannst til eignar.
Jón Otti Jónsson.
Leiðrétting
I síðasta blaði Prentarans hafa
þau mistök átt sér stað, að á fyrstu
síðu neðst í greininni, sem ber heit-
ið „Faðir 8 stunda vinnudagsins á
Islandi", hafa fallið niður orðin
„stjórn Prentarafélagsins“. Máls-
greinin á því að hljóða þannig: „I
miðjum nóvemher sendi stjórn
Prentarafélagsins stjórn Félags ís-
lenzkra prentsmiðjueigenda (sem
stofnað hafði verið þá um sumarið
af prentsmiðjueigendum um land
allt) uppkast að samningi fyrir árið
1920.“
52
PRENTARINN