Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1942, Blaðsíða 22
20
legt, að syo fjölhæfir tannlæknar séu til hér á landi,
að þeir géti það svo vel fari, að minnsta kosti ekki
áii þess að afla sér framhaldsmenntunar i því, sem
þeim er mest áfátt um.
Við alhugun á stofnkostnaði komumst við að þeirri
niðurstöðu, að hann gæti varla orðið minni en 40—45
þúsund kr., líklega varlegra að áætla hann 45 þús. kr.,
þvi alltaf bætist eitthvað við, sem ekki er munað eft-
ir við fyrstu áætlunina. Sundurliðun á þeim kostnaði
er fyrir hendi, ef óskað er eftir. Við aukriingu á stofn-
kostnaði eykst einnig reksturskostnaður sem þvi svar-
ar i viðhaldi og afskriftum, einnig álítum við óhjá-
kvæmilegt að hafa gullsmið til aðstoðar nemendum
við tekniska námið, og yrði þá rekslurskostnaður tæp-
Jega undir 24 þúsund krónum á ári, cða kr. 0000,00
á hvern nemanda, séu þeir 4, eins og ge.rt er ráð fyr-
ir i áætluninni.
Reykjavík, 25. marz 1941.
F.h. Tannlæknafélags íslands,
Hallur L. Hallsson, Th. Brynjólfsson,
form. ritari.
FYLGISKJAL III.
Reykjavík, 5. febr. 1941.
Hér með sendist yður tillaga, sem samþykkt var
með samhljóða atkvæðum á fundi i félagi læknanema,
sem haldinn var 7. febr. 1941.
„Fundur i félagi læknanema, haldinn 7. febr. 1941,
beinir þeirri áskorun til liins háttvirta Alþingis, að
það samþykki frumvarp til laga um stofnun tann-
læknadeildar við Háskóla Islands, sem ráðgert mun,
að flutt verði á næsta Alþingi að tilhlutun land-
læknis og læknadeildar."
Virðingarfyllst,
f. h. félags læknanema,
ól. Bjarnason.
Til landlæknis, Reykjavik.