Árbók Tannlæknafélags Íslands - 01.01.1942, Síða 32
30
tannlæknaskólum, ojí fengu þeir að sjálfsög'ðu isl.
tannlækningaleyfi frá heilbrigðisstjórninni. Það þótti
þó ekki athugavert, að gera þurfti mann þenna að
tannlækni með lögum!
LANDLÆKNIRINN.
Reykjavik, 10. marz 1940.
Jafnframt því að senda yður hjálagða umsóku, á-
samt 5 fylgiskjölum, um tannlækningaleyfi til handa
Baldri Jónssyni frá Eskifirði, heiðist ég rökstudds
álits yðar á þvi, hvort skilríki umsækjandans beri
þvi vitni, að hann hafi lokið tannlækninganámi í
tannlæknaskóla, er heilbrigðisstjórnin geti tekið gild-
an, samkv. ákvæðum 1. töluliðs 1. greinar tannlækna-
laganna (nr. 7, 1929).
Svarinu óskast hraðað, svo og, að fylgiskjölin verði
jafnframt endursend.
Vilm. Jónsson.
Til stjórnar Tannlæknafélags íslands, Reykjavík.
TANNLÆKNAFRLAG ÍSLANDS.
Reykjavík, 2./4. 1940.
í bréfi yðar dags. 1G./3. 1940 óskið þér rökstudds
álits stjórnJtr T.F.f. á því, hvort skilriki hr. Baldurs
Jónssonar heri þvi vitni, að hann hafi lokið tann-
læknanámi við tannlæknaskóla, er heilbrigðisstjórnin
geti tekið gildan, samkv. ákvæðum 1. töluliðs 1. gr.
tannlæknalaganna.
Skilríki umsækjandans sýna það, að hann hefur
slundað tannsmiði (lært að búa til tanngóma, gull-
fyllingar og gullbrýr) hjá dentista i 17 inánuði og
jafnframt sótt iðnskóla i 3 ár. Að því loknu liefur
liann sótt privatskóla dentista, i Dresden, i eitt ár,
og Iokið prófi i þeim greinum er tvö af skýrtein-
unum sýna.
Hinsvegar er lágmarksnámstími tannlækna í Þýzka-