Árroði - 01.05.1944, Qupperneq 4

Árroði - 01.05.1944, Qupperneq 4
SIGURJÓN Á. ÓLAFSSON Eg stíg á stokk og strengi heii 99 1 fornöld var það siður ungra, tápmikilla manna, ,,að stíga á stokk og strengja heit“ til þess að afreka eitt og annað sér til frægðar. Oftast fóru þessar heitstrengingar fram við meiri háttar tækifæri, og þótti sá maður að minni, sem ekki fylgdi eftir sinni heitstreng- ingu. Mér hefir oft komið til hugar, að æsku- menn nútímans gætu oftar en gert er tekið ikappa fornaldarinnar sér til fyrirmyndar, hvað þetta snertir. Ég á þó ekki við, að mann- víg og blóðhefndir séu hafðar til fyrirmynd- ar heldur allt það sem miðar til manndóms og frama í nútíma menningarþjóðfélagi og styður að fullkomnu og fegurra lífi, en menn- irnir eiga við að búa enn sem komið er. íslenzkir æskumenn, sem landið erfa eiga mikið verkefni fyrir höndum, og þá beini ég ©rðum mínum fyrst og fremst til ykkar, ungir jafnaðarmenn. Af ykkur má fyrst og fremst vsenta átaka, sem ekki eru bundin sérdrægni •g eiginhagsmunahvöt, átaka, sem miða að al- menningsheill án þess að fyrirfram sé spurt um launin eða árangurinn af starfinu. Sú hug- ajón jafnaðarstefnunnar, að vinna að frelsi, jafnrétti og bræðralagi ailra manna, er þess verð, að allmiklu sé fyrir hana fórnað. Mann- kynið þjáist nú og er blóði drifið af völdum sérhagsmunastefnunnar. Upp úr þeim blóð- akri vænta menn að skapist ný jörð og feg- urri heimur, heimur bræðralags, frelsis og jafnréttis. En slíkt gerist ekki af sjálfu sér. Sú kynslóð, sem lifir af yfirstandandi hörm- ungar, og þá fyrst og fremst æskan, verður þegar að skilja þá tíma, sem koma eiga og undirbúa jarðveginn. Þetta á við okkur ís- lendinga sem aðrar þjóðir, þótt gifta lands vors hafi verið sú, að hörmungar þær, sem aðrar þjóðir eiga við að búa, hafi að mestu leyti verið frá okkur bægt. Þrátt fyrir það eigum við okkar vandamál, sem reynir á krafta okkar að leysa. Velgengni og munaður hefir blindað oss um skeið, en glöggt má sjá, að sú velgengnisvíma, sem mikill hluti þjóðarinnar er haldinn af, geti einn góðan veðurdag horf- ið mjög skyndilega og framundan blasað við margs konar þrengingar. Þá fyrst reynir á hve vel við erum undirbúnir til að taka á móti. Síðasti aldarfjórðungur hefir fært íslenzkri alþýðu margs konar réttindi til öruggari lífs- afkomu en hún áður bjó við. Það er fyrst óg fremst verk hennar sjálfrar og vegna breyttra þjóðfélagshátta að svo hefir skipazt. Verka- lýðssamtökin og stjórnmálasamtökin undir merkjum Alþýðuflokksins hafa fært íslenzkri alþýðu mikinn hluta af því, sem hún býr við í dag. Þetta er nú jafnvel viðurkennt af blöð- um borgaraflokkanna. Það eru þessi samtöík, sem eru lífakkeri alþýðunnar í nútíma þjóð- félagi, sé þeim beitt með viti og af stillingu á lýðræðisgrundvelli. Það eru þessi samtök, sem auðvald allra landa og einnig á voru landi stendur mestur ótti af. Það eru þessi 2 ÁRROÐI

x

Árroði

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árroði
https://timarit.is/publication/758

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.