Árroði - 01.05.1944, Page 5

Árroði - 01.05.1944, Page 5
ÁGÚST H. PÉTURSSON F. U. J. og 1. ntaí Verkalýðssamtökin um gervallan heim hafa valið sér 1. maí að hátíðisdegi sínum og til- einkað sér hann sem baráttudag hins vinnandi fólks. Á undanförnum árum hefir hans verið minnzt á margvíslegan hátt meðal þeirra þjóða, sem nú heyja styrjöld. Barátta þeirra við and- stæðingana hefir ekki leyft hátíðahöld dagsins með sama hætti og áður, en eigi að síður hafa í brjósti þúsunda og milljóna manna búið þrár og óskir öllu öðru yfirsterkari, um frelsi og frið. Frelsi, sem tengt er hugsjón þeirri er 1. maí grundvallast á. í nánum tengslum við baráttu hinna vinn- andi stétta stendur stjórnmála'hreyfing sósíal- ismans. Hún grundvallast á kenningunni um jafnrétti í þjóðfélaginu, er slcapað verði með iþví að jafna bilið á milli hinna ýmsu stétta og tryggja lágstéttunum lögvernd í réttindamálum og baráttu þeirra. Þessari baráttu vi'lja ungir jafnaðarmenn ljá lið sitt, berjast við hlið þess stjórnmálaflokks, r- sem tileinkað hefir sér jafnaðarstefnuna, og komið fram mikilsverðum umbótum í þjóðfé- laginu með tilstyrk verkalýðssamtakanna og beinni löggjöf, þjóðinni til farsældar og heilla. Þrátt fyrir unna áfanga og góða sigra dug- ar ekki að leggja baráttuna niður, heldur herða hana og vernda það, sem unnizt hefir og skapa sigur þeirra málefna, sem enn eru óleyst. í sérhverju þjóðfélagi eru skapandi öfl kapi- Framhald á 7. síðu. samtök, sem eiga að brynja sig gegn komandi örðugleikum, á þarm veg, að þeir, sem auð- magninu ráða geti ekki slengt öllu á alþýð- unnar bak. Ungir jafnaðarmenn, sem flestir fyllið raðir hins vinnandi fólks, herðið róð- urinn, gerizt fórnfúsir starfsmenn í víngarði verkalýðshreyfingarinnar og stjórnmálasam- tökum hennar innan Alþýðuflokksins. Reytið illgresið upp með rótum og kastið því burt, sundrungar- og byltingaröflin, sem hefta hina eðlilegu þróun verkalýðshreyfingarinnar til að skapa það þjóðfélag sem mikill hluti mann- kynsins dreymir um og þráir. 1. maí, dagur verkalýðsins, er hinn æskileg- asti til þess ,,að stíga á stokk og strengja heit“ fyrir hvern þann, sem vill vinna að heill þjóð- ar sinnar, samtaka sinna og stéttar — og berj- ast til sigurs þar til settú marki er náð. Fram- tíðarinar ísland: bætt þjóðskipulag, auknar fram farir, nýir vinnuhættir, vásindi og menntun. Frjálslegur þroski og menning 'hvilir á ykk- ar herðum, íslenzkir æskumenn. Sjálfstæði okkar, sem við nú tökum að fullu og öllu á þessu ári í okkar hendur, veltur mjög á því, hvernig ykkur tekst að taka á þessum mörgu og stóru verkefnum, með hvaða hugarfari þið gangið að verki og hverjar hugsjónir þið vilj- ið tileinka ykkur. Minnumst þess, að engin þjóð er í sannleika frjáls, sem á mestan hluta þegna sinna ófrjálsa, bundna 'á klafa örbirgð- ar og allra fylgihnatta hennar. Við, sem trú- um því, að mannkynið stefni að jöfnuði og bræðralagi, tengjum allar okkar vonir og traust við ykkur, íslenzkir æskumenn, sem einnig trú- ið á þessa hugsjón, og að þið verðið á kom- andi árum hinir sönnu „Vormenn íslands“. ÁRROÐI 3

x

Árroði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árroði
https://timarit.is/publication/758

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.