Árroði - 01.05.1944, Page 9
F. U. J. og í. maí
Framhald af 3. siðu.
talismans skipulögð til atlögu við samtök
verkalýðsins, fagleg og pólitísk, og þessi mál-
efnalega og þjóðfélagslega barátta hefir orðið
fjölda þjóða að falli. Andstaða fjöldans við
markvissa baráttu yfirstéttanna hefir beðið
ósigur vegna samtakaleysis og markskiptra
skoðana.
Það er ákveðin skoðun jafnaðarmanna, að
sigur sósíalismans geti ekki grundvallast á
byltingu eða blóðsúthellingum. Fólkið verður
að vera félagslega þroskað til þess að geta ráð-
ið málum sínum sjálft og veitt þjóðfélaginu
forráð á sviði sósíalistiskra stefnumála.
Þetta er fyrsti þáttur þeirrar hugsjónar, sem
ungir jafnaðarmenn hafa tileinkað sér. Annar
þátturinn er uppbygging félagslegra samtaka
og þróun þeirra.
Frá fyrstu tíð hefir rás viðburðanna verið sú
að uppvaxandi kynslóð hvers tíma hefir verið
arftaki hinnar, er hefir fallið í valinn og ver-
ið búinn að ljúka sínu lífsstarfi, þannig mun
sagan endurtaka sig. Hæfni og atorka æsku-
mannsins byggist á fræðslu og þekkingu, og
fræðsla og þekking, aukið víðsýni æskunnar
til uppbyggingar jafnaðarstefnunni, og raun-
veruleiki hennar, er annar þáttur hugsjónar
okkar, hin félagslega uppbygging.
Nú fer í hönd stofnun lýðveldis á íslandi.
Slíkt var ákveðið fyrir 25 árum síðan. Ungir
vegna hafa þeir hag af því að vinna vel, jafnvel
þótt engin hærri siðferðisleg sjónarmið komi til
greina og þeir hafa ástæðu til þess að líta eftir
því að félagar þeirra svíkist ekki um, því einn-
ig þeir eru að vinna að hinum sámeiginléga
■árangri.
Ungir verkamenn! Það getur verið að ykkur
þýki þetta dálítið strembið á hátíðisdegi verka-
lýðsins 1. maí. En þið verðið að hugsa og lesa
um vandasöm þjóðfélagsmál, ef þið ætlið að
skilja það þjóðfélagsskipulag, sem þið búið við.
Og án þess að skilja það, verðið þið aldrei sann-
3r jafnaðarmenn.
jafnaðarmenn fylgja þessu máli til fram-
kvæmda, eftir þeim leiðum, sem þeir telja
skynsamlegast fyrir þjóðina.
En gæta verður þesis að hér er stigið stórt
spor. Hvert það spor, er þjóðin stígur í fram-
kvæmd þessa máls, verður að markast af rétt-
arstöðu o’kkar til þeirrar þjóðar, er við nú slít-
um sambandi okkar við.
Mistök og fljótfærnisleg ákvörðun getur
mótað hina erfiðustu aðstöðu, skapað torfær-
ur á vegi framtíðarinnar, skapað þjóðarböl.
Hvað híður þín íslenzk æska?
Framtíðin er þinn starfstími, Þitt hlutverk
er að móta þjóðfélag, hins fullvalda íslands.
í>ú þráir frelsi þitt, og aðstöðu til að geta not-
ið þess. Þú þráir þjóðskipulag þar sem skuggi
lífsóhamingju breiðist ei yfir framtíðardraum
þinn. En hefir þú gert þér það ljóst, hvernig
það þjóðfélag skal vera, sem getur mótað það
sem þú þráir til heilla þjóð þinni og fóstur-
jörð? Er það ekki æðsta takmark, von lítils-
magnans um að geta rutt sér brautina fram
á við? Er það ekki alþýðan, íslenzk alþýða,
sem allt frá landnámstíð hefir verið að heyja
sína frelsisbaráttu? — Við minnumst þræl-
anna, sem myrtu harðstjórann — fyrsta drott-
invaldsins yfir menningarlegum og efnalegum
þurftum íslenzkar alþýðu. Þeir gerðu það
vegna frelsisins. Þetta er barátta okkar á kom-
andi árum, að leggja að velli hið kapitaliska
drottinvald, skapa einingu fjöldans, þjóðskipu-
lag jafnaðarstefnunnar.
íslenzk æska, hvar sem þú ert stödd, legðu
hönd þína fram í starfi uppbygginarinnar. Hlé-
drægni þín og áhugaleysi er þjóðartjón.
Það er hlutverk þitt, hlutskipti framtíðar-
innar, að þú á hátindi lífs þíns, leysir starf þitt
af hendi. Verði veruleikinn sá, þá mun sú
æska, sem nú byggir þetta land, rísa upp, sem
merkisberi nýrrar aldar, nýs lífs, grundvalla
starf sitt á hugsjónum og aukinni þekkingu
mannsandans.
Samkvæmt heimildum í erlendu stórblaði
urðu niðurstöður mjög harðvítugrar og heitrar,
pólitískrar allsherjar-atkvæðagreiðslu í Sovét-
rókjunum svo sem hér greinir: Stalinistar 52%,
Staliningar 10%, Stalinsflokkurinn 23%, Stal-
insmenn 15%. Aðrir flokkar fengu ekki að taka
(þátt í kosningunum.
ÁRROÐI 7