Árroði - 01.05.1944, Qupperneq 13

Árroði - 01.05.1944, Qupperneq 13
VILHELM INGIMUNDARSON Hvers megum vér vœnta? Ég geri ráð fyrir því, að flestir hugsandi íslendingar hugsi í senn með kvíða og tilhlökk- un til framtíðarinnar, uim það sem koma skal hér heima og úti í víðri veröld. Stórþjóðir heimsins 'berast á banaspjót, leggja borgir og aldagömul menningarverð- mæti í rústir; konur, börn og gamalmermi eru brytjuð niður í ofsa hildarleiksins. Milljónir sakleysingja falla fyrir skorti og eymd, sem er afleiðing hafnbanna og hernýtingar. Allt þetta böl verður fólkið að þola vegna yfirgangs og ofbeldis einstakra manna, sem haldnir eru drottnunarfýsn og yfirgangsbrjál- æði, móðursjúks manns. Það er leitt til þess að vita, að nokkur hluti einnar þjóðar skuli geta komið af stað heirns- styrjöld, sem völd verður að slíkum hórmungum í heiminum. Forustumenn bandamannaþjóðanna hvetja fólk sitt, sem mest til að leggja á sig þrautir og þyngsli herframleiðslunnar, svo að tak- markinu verði náð sem fyrst, því takmarki, sem fólkið þráir. — Frið og bræðralag milli einstakliniga og þjóða. — Og samkvæmt þeim loforðum, sem forustumenn þjóðanna hafa gefið fólkinu, þá mun rísa upp betri 'heimur af rústum þess, sem nú er verið að ganga af þótt landgæði séu þar meiri en víða annars staðar, þar sem byggð hefur verið öldum sam- an. Enn erum við skammt á veg komnir í hag- nýtingu þeirra auðæfa, sem eru í sjónum í kringum okkur, og iðnaður okkar er á byrjunar- stigi. Við eigum sem sé víða eftir að nema land, íslendingar. En okkur er borgið, ef við liggjum ekki á liði okkar. í stefnuskrá okkar ungra jafnaðarmanna hefur ávallt verið lögð rík áherzla á, að hag- nýta landgæðin sem bezt. Ungir jafnaðarmenn! Verum þeirri stefnu trúir. Með því móti sýn- um við bezt, að við erum sannir sjálfstæ&is- ■menn. dauðum. — Þetta loforð eitt nægir til þess, að fá fólk til að berjast gegn yfirgangi möndul- veldanna. Það eru þessi loforð, sem við íslendingar erum nú að velta fyrir okkur og athuga hve mi'kilsvirði eru. Fyrst og fremst minnumst við þess, að svipaðar yfirlýsingar voru gefnar út af forustumönnum stórþjóðanna í styrjöld- inni 1914—1918. En heimur versnandi fór, og er nú á hámarki illskunmar. Allir kannast við ástand það, er ríkir í lönd- um ófriðarþjóða að styirjöldum loknum. Hvarvetna mun geta að líta viðsjár manna og flokka, eymd fjöldans og yfirgang þeirra, er rakað hafa saman fé á styrjaldarárunúm og notað sér neyð fólksins í hvívetna. Alls stað- ar mun gína við hyldýpi fátæktar, atvinnu- leysis, hungurs og drepsótta. Á aðra hönd verð- ur hatur hins þjáða manns, en á hina óhóf og vel- lysting broddborgarans. Af þessu getur leitt bræðravíg og þjóðir heimsins laugast- að nýju í blóði borgarastyrjalda. Það væri ekki að undra þótt lesendur gerðust hvumsa yfir slíkri svartsýni ungs manns, eftir öll þau loforð er látin hafa verið í té ökkur áhorfendunium. En höfum við ekki verið áhorfendur þess, að þekkingu, vísindum og valdi hefir verið beitt gegn hinni sönnu menningu? Hefir ekki þekking nútímans verið notuð til að tortíma og skapa drápstæki til eyðingar mannslífun- um? Hefir ekki vald einnar bandamannaþjóð- anna verið notað til að fjötra, ekki leysa, held- ur kúga, þær þjóðir er hún hefir komizt yfir með drápstæki sín, þrátt fyrir hátíðlega samn- inga og loíorð? Reyndar er þetta sú þjóðin, er maður helzt skyldi vænta góðs af samkvæmt kenningum Þjóðviljans. En ,,svo bregðast kross- tré sem önnur tré.“ En hvers megum við þá vænta, er kommún- istar fara yfir smáríki Evrópu með valdi og kúgun í stað þess að leysa fjötra og afnema Framhald á 14. síðu. ÁRROÐI 11

x

Árroði

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árroði
https://timarit.is/publication/758

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.