Árroði - 01.05.1944, Page 16

Árroði - 01.05.1944, Page 16
Hvers megum vér vænta? Framhald af 11. síðu. kúgun nazismans? Eigum við að setja allt okkar traust á Bretland og Bandaríkin? Það eru að vísu mikil riki vísinda og þekkingar, en um leið ríki auðhringa, og hvergi er misskipt- ing auðsins meiri né framleiðslutækjum þjóð- anna eins lítið beitt í þarfir þjóðarheildarinnar, Sem í þessum vestrænu ríkjum. Auðhringarnir drottna þar og mega sín meira en hinir svo kölluðu forustumenn þjóðanna. Þess vegna er það skoðun mín, að fyrstu árin eftir styrjöldina verði ekki eins blessun- arrik og menn ætla. síðan það þótti jafn sjálfsagt í Englandi að kosningaréttur gengi að erfðum og það þykir nú, að stóreignir erfist. Og það er heldur ekki svo langt síðan menn sáu jafnmikla annmarka á að bæta úr hinum ójafna kosningarétti og menn sjá nú á því að ráða bót á ójöfnuðinum á efnahagssviðinu. En þeir tímar eru ef til vill skemmra undan en marga grunar, að litið verði á auðsöfnun í skjóli erfða, einokunar og hvers kon- ar sénréttinda og óhæfilegan ójöfnuð í efnahags- málurn sömu augum og við lítum nú á takmörk- un kosningaréttar og ójöfnuð á stjórnmálasvið- inu. Alþýða allra landa verður að súpa seyðií af því' einu sinni enn, að hafa ekki opnað aug- un fyrir kenningum jafnaðarmanna. Sú kreppa er nú mun koma í kjölfar þessarar styrjaldar mun verða til þess, að fólki skiljist það, hvað nauðsynlegt er, að framleiðslutæki þjóðanna komist í hendur hins opinbera, þannig að fram- leiðslan sé miðuð við þarfir þjóðarheildarinnar. Niðurstaða mín verður því sú, að telja vest- ræna menningu ekki fullþroska, hún er sjúk, bæði á likama og sál. Meinið verður ekki bætt með loforðum né stóryrðum, barsmíð né bylt- ingum, aðeins með þroskuðum skilningi á þörf- um þjóðanna, og góðvild í hvers annars garð, og síðast en ekki sizt, vísindunum í þágu menning- ar, framfara og farsældar þjóðanna, en ekki til eyðingar á verðmætum og lífi milljóna. Lesendur! Nú skulum við að lokum staldra við dyr okkar eigin þjóðarbús. Við höfum haft alls konar stjórnir á þess- um stríðsárum, sem ekkert hafa viljað hafa með hagkerfi lýðræðissinnaðra sósíalista að gera. Hvernig hefir farið? Ríkiskassinn tómur eft- ir fjögurra ára peningaveltu. Fjögur hundruð milljónir króna liggja í vörzlum nökkurra manna. Kvers má þá vænta að stríðinu loknu hér heima á Fróni, ef aiþýðan til sjávar og sveita sér ekki að sér og viðurkennir nú þegar úrræði hins lýðræðissinnaða sósíalisma? Æska! Gakk undir merki ungra jafnaðar- manna! I Skrifstofusími 2350 Veitingasími 2826 INGÉLFS Ingólfsstræti, Hverfisgata Reykjavík óskar öllum viðskiptavinum sínum og gestum gleði- legs sumars. Matsölu- og veitingahús. Hentugt hús- næði fyrir samkvæmi og skemmtanir. Fljót og lipur afgreiðsla. 14 ÁRROÐI

x

Árroði

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árroði
https://timarit.is/publication/758

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.