Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.2009, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 03.01.2009, Blaðsíða 13
Árni Þórarinsson Arfaslakt kvikmyndaár sem fór langleiðina með að gera bíófíkil að bindindismanni. Þær fimm skástu: 1 Before The Devil Knows You’re Dead. Leikstjóri: Sidney Lumet. Bandaríkin. Ágengt sálfræðidrama og fjölskylduharm- leikur í búningi glæpamyndar undir stjórn gam- als meistara sem allt kann og engu hefur gleymt. 2 Juno. Leikstjóri: Jason Reitman. Bandarík- in. Afbragðs túlkun Ellen Page á tit- ilpersónunni gerði snoturlega skrifaða óháða smámynd af mannlegum breyskleika eft- irminnilega. 3 The Bank Job. Leikstjóri: Roger Donald- son. Bretland. Óaðfinnanleg fagmennska, ekki síst handrit hinna gamalreyndu Dicks Clement og Ian Le Frenais, í stælalausum banka- ránskrimma sem var blessunarlega laus við inn- antómar tæknibrellur. 4 El Orfanato. Leikstjóri: Juan Antonio. Ba- yona. Spánn. Frískleg draugamynd blés lífsanda í það liðna lík sem Hollywood hefur gert úr hrollvekjuhefðinni. 5 There Will Be Blood. Leikstjóri: Paul Thomas Anderson. Bandaríkin. Metn- aðarfullt landnemadrama um illsku græðg- innar rís upp úr meðalmennskunni, þrátt fyrir endasleppa sögu. Kvikmyndir Höfundur er rithöfundur. 43 2 5 1 Gauti Kristmannsson Með fyrirvara um að ég hef ekki komist yfir nærri allt þá eru 5 athygl- isverðustu (þessi listi hefði þurft að vera upp á 10 í ár, óvenju gott bók- menntaár) bækurnar í ár að mínum dómi: 1 Rán eftir Álfrúnu Gunnlaugsdóttur Bók sem skoðar lífið með sjálf- um sér og minningunum sem búa til lífið á hverjum tíma; spennandi og hrærandi saga sem spyr þeirrar lykilspurningar hver maður er eða getur verið. 2 Konur eftir Steinar Braga Er eftirminnileg hroll- vekja sem hristir upp í manni við lesturinn svo um munar. Saga um misbeitingu valds og viðbrögð fórnarlambsins við því. Ekki fyrir viðkvæma, en bók- menntaleg upplifun engu að síður. 3 Árstíð í helvíti eftir Arthur Rimbaud í þýðingu Sölva Björns Sigurðssonar Er gríðarlegur fengur ljóðunnendum, bæði sem innlit í hugarheim skáldsins unga og ekki eru ljóðin sjálf síðri. Eftirmáli Sölva rammar verkið vel inn og gerir það miklu aðgengi- legra. 4 Apakóngurinn á Silkiveginum í þýðingu Hjörleifs Sveinbjörnssonar Er eitthvert forvitnilegasta verkið sem út kemur fyrir þessi jól, safn kín- verskra texta sem opna nýjar víddir fyrir íslenska bók- menntaunnendur og er sannkallaður bókmennta- viðburður. 5 Nafn mitt er Rauður eftir nóbelsskáldið Orhan Pamuk Fyrstu íslensku þýðinguna á bók eftir hann má einnig telja til viðburða hér á landi. Þýð- ing Árna Óskarssonar á þessari breiðtjaldssögu er geysi- vel unnin og maður nýtur verksins frá upphafi til enda. Ég hefði líka viljað nefna Rökkurbýsnir Sjóns, Hvert orð er atvik Þorsteins frá Hamri, Hvað er þetta hvað eft- ir Dave Eggers í þýðingu Rúnars Helga Vignissonar og Ofsa Einars Kárasonar og jafnvel fleiri, en skorður eru manni settar! Bækur 1 2 4 3 5 Höfundur er dósent í þýðingafræði við Háskóla Íslands. Guðni Tómasson 1 Apocrypha - Hugi Guðmundsson. Þetta dularfulla tónverk Huga býður upp á nýjan spennandi tónheim í íslenskri tónlist sem er engu lík- ur. Verkið var vissulega heillandi í flutningi sumarið 2007 í Skálholti en úrvinnslan á geisladiski bætir um betur. Spila- mennska og söngur er til fyrirmyndar og tölvuvinnsla þannig að maður veit ekkert hvert tónarnir leiða mann. Verðugt og dáleiðandi könnunarverkefni sem flækist með hverri hlustun og það er gott. 2 Ghosts from the past - Bang Gang. Hinn ókrýndi poppprins Íslands, Barði Jóhanns- son, varð að poppkóngi með þessari plötu. Afurðin er einföld og hljómar óhemju vel, er stundum dillandi skemmtileg og stundum voða döpur. Eins og gott mel- ódískt popp á að vera. 3 Gilligill - Bragi Valdimar Skúlason og Memfismafí- an. Maskínan Bragi Valdimar framleiðir texta á færi- bandi við öll tækifæri og hittir algjörlega í mark hjá allri fjölskyldunni á þessari frábæru barnaplötu sem auðvitað er fyrir alla aldurshópa. Lögin festast í höfðinu á manni dögum saman og flutningurinn er frábær. Sprenghlægileg og skemmtileg plata. 4 All sounds to silence come - Kammersveitin Ísafold. Þetta tónlistarfólk framtíðarinnar á Íslandi er spruðlandi flott á þessari plötu undir stjórn Daníels Bjarnasonar sem á titilverk plötunnar. Metnaðarfullt pró- gramm og hárnákvæm músík í toppflutningi. Líka falleg- asta albúm ársins. 5 Með suð í eyrum við spilum endalaust - Sigur Rós. Ég kveikti reyndar ekki fyllilega á þessari plötu fyrr en eftir frábæra tónleika sveitarinnar í Laug- ardalshöll síðla árs en þvílík plata þegar hún opnast fyrir manni! Grunurinn um að hljómsveitin væri að þreytast eitthvað var greinilega ekki á rökum reistur. Hörkurokk og líka viðkvæm einlægni. Tónlist Höfundur er dagskrárgerðarmaður í Víðsjá á Rás 1. 1 2 3 4 5 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. JANÚAR 2009 Lesbók 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.