Lesbók Morgunblaðsins - 24.01.2009, Side 12
K
ristján Steingrímur Jónsson hefur um
árabil sankað að sér sýnishornum af
mold í hinum ýmsu lystigörðum heims-
ins. Hann hefur síðan lagt upp í listrænt
flakk með jarðefnin, bæði í efnislegum og hug-
lægum skilningi, en afraksturinn getur nú að
líta á sýningu í Listasafni ASÍ við Freyjugötu.
Sýningin er í öllum sölum safnsins og sam-
anstendur af málverkum, teikningum og ljós-
myndum – og jarðvegi úr almenningsgörðum í
níu borgum víða um heim. Listamaðurinn legg-
ur þannig öðrum þræði áherslu á moldina sem
undirstöðu lífs á landi, og á hringrás náttúrunn-
ar. Slíkar áherslur birtast glögglega í teikn-
ingum á neðri hæð safnsins, einkum í fallega
unnum tússteikningum í Gryfjunni; þar er
teikningin kvik og lífræn. Myndirnar birta upp-
stækkaða sýn á mold og eru unnar með aðstoð
sérstakrar smásjár (víðsjár).
Sömu lipurð í vinnubrögðum má sjá í stóru
moldarmálverki sem unnið er með talsverðum
látum beint á veggi safnsins á efri hæð. Lista-
maðurinn skapar þar ólgu sem skírskotar í
senn til frumkrafta náttúrunnar og mann-
legrar, listrænnar tjáningar: tengsla moldar,
hugmynda um hið kvenlæga (náttúru) og list-
hefða, og þá einkum notkunar jarðefna við gerð
litarefna.
Níu ferningslaga málverk á striga á vegg þar
hjá, stinga í stúf við óreiðukennt flæði stóra
verksins. Málverkin vísa raunar fremur í beisl-
un náttúrunnar af mannavöldum, sem má segja
að sé annar meginþráður sýningarinnar, nánar
tiltekið eins og hún birtist í garðhönnun. Hver
mynd er einlit og unnin úr jarðvegi úr til-
teknum lystigarði, svo sem Central Park í New
York og Shinjukugarðinum í Tókýó, eins og
listamaðurinn áréttar með því að sandblása
heiti viðkomandi garðs (á ensku) í yfirborðið.
Myndirnar leiða í ljós mismunandi gerð og lit
jarðvegarins eftir hnattlegu. Ljósmyndir, tekn-
ar í lystigörðunum, sem hanga á vegg Arinstofu
á neðri hæð safnsins, varpa ljósi á ytri ásýnd
hinna mismunandi garða, eins og þeir horfa við
borgarbúum sem þangað sækja sér endurnær-
ingu og upplyftingu í dagsins önn. Ljósmynd-
irnar hafa hins vegar tilviljunarkennt yfirbragð
skyndimynda og er sjónarhornið því ekki upp-
hefjandi í samræmi við háleitar hugmyndir sem
hafðar voru að leiðarljósi við hönnun garðanna.
Svo virðist sem listamaðurinn leitist fremur við
að draga fram vissa flatneskju í borg-
arumhverfi þar sem náttúran er undirskipuð
opinberu rými.
Kristján Steingrímur dvelur ekki við mis-
munandi fagurfræði eða hugmyndafræði tiltek-
inna garða – þótt hann í textaverki á efri hæð
vísi vissulega til fegurðar í ýmsum myndum og
ýti á ýmsan hátt undir huglægt ferðalag milli
raunverulegra sem og ímyndaðra staða. Moldin
og jarðargróðurinn virðast eiga hug hans að
miklu leyti og má því segja að sýningin ein-
kennist af vissri spennu milli vitsmunalegrar
greiningar og skynrænnar nautnar, sem á sinn
hátt endurspeglar hið gamalkunnuga stef: tog-
streitu milli „menningar“ og „náttúru“.
Mold í ýmsum myndum
MYNDLIST
ANNA JÓA
LISTASAFN ASÍ | Kristján Steingrímur Jónsson
Til 1. febrúar 2009. Opið þri. til su. kl. 13-17. Að-
gangur ókeypis.
Svo virðist sem listamað-
urinn leitist fremur við að
draga fram vissa flat-
neskju í borgarumhverfi
þar sem náttúran er und-
irskipuð opinberu rými.
Moldarmálverk
„Níu ferningslaga málverk á
striga á vegg þar hjá, stinga
í stúf við óreiðukennt flæði
stóra verksins.“
Morgunblaðið/Heiddi
Í
Iðnó, á miðvikudaginn var, fluttist ég til baka inn í tímann þegar
menn sátu límdir við sæti sín og gátu einbeitt sér að hinu talaða
orði stundum saman. En sóttu sér af og til þrek til þess – með því
að loka augum og hlusta á málið flæða með réttum áherslum,
réttri hrynjandi og blunda jafnvel örlítið.
Vigdís Finnbogadóttir og Sveinn Einarsson hafa nefnilega stofnað
leikhús. Vonarstrætisleikhúsið, kalla þau það. Þar kynna þau nú inni-
haldsríkt verk í leiklestri sem ætti að hæfa vel okkar tíma þar sem
fólk streymir aftur saman á fundi því það þyrstir í orð sem gerir
heiminn skiljanlegri og viðráðanlegri.
Það er eftir Bretann Michael Frayn sem var þekktur fyrir gam-
anleiki þegar hann skrifaði verðlaunaleikritið Kaupmannahöfn árið
1998. Þar sækir hann hins vegar á sagnfræðileg mið. Stundina þegar
þýskur kjarneðlisfræðingur, Werner Heisenberg, kemur á fund fyrr-
verandi læriföður síns, Danans Niels Bohr, í Kaupmannahöfn árið
1941. Sagnfræðingar hafa mikið velt fyrir sér hvað hafi farið á milli
kennarans og lærisveinsins, Nóbelsverðlaunahafanna tveggja á þeim
fundi. Enda leiddi Heisenberg tilraunir með kjarnorku fyrir Þýska-
land nasismans en Niels Bohr tók nokkrum árum síðar þátt í gerð
kjarnorkusprengjunnar er kastað var á Hiroshima og Nagasaki.
Frayn lætur, ekki alveg laus við húmor, þrjár persónur, Heisen-
berg, Bohr og Margréti konu hans, öll löngu dauð, í öðrum heimi,
gera tilraunir til að endurskapa, setja á svið það sem gerðist á milli
þeirra þarna í september 1941, þegar þeir brugðu sér einir í göngu-
túr. Þau reyna að muna af hverju sá göngutúr var svo stuttur, af
hverju þeir kvöddust svo fálega: Kom Heisenberg til að reyna að fá
einhverjar upplýsingar hjá Bohr um áætlanir bandamanna? Kom
hann til að hjálpa þessum fyrrverandi elskaða kennara sínum sem
var af gyðingaættum? Kom hann til að monta sig? Fá syndaaflausn?
Eða kom hann til að fá Bohr til að vinna með sér eða jafnvel að fá
hann í lið með sér til að hindra smíði kjarnorkusprengjunnar? Í upp-
rifjuninni kynnumst við svo auðvitað fólkinu, sambandi þeirra. Frayn
notar í uppbyggingu verksins af mikilli handverkskunnáttu ýmsar
líkingar og myndir til að vísa í eðlisfræðikenningar vísindamannanna
tveggja sem þeir jafnframt kynna áhorfendum í ástríðufullum sam-
ræðum. Einkum virðist hann þó vera heillaður af óvissukenningu
Heisenbergs sem sagt þeirri (hafi ég rétt skilið) að aldrei verði hægt
að mæla allt í hegðan frumeinda. En sama óvissan virðist Frayn telja
að ríki um minni mannsins, hugsun. Í fundi eða árekstri þessara
tveggja mannlegu einda, Niels Bohr og Heisenbergs sé því hægt að
velta upp endalaust spurningum um tilefni hans, hvatir þeirra og sið-
ræna ábyrgð.
Eins og áður segir lesa þrír leikarar hlutverkin. Þorsteinn Gunn-
arsson: Niels Bohr, Jakob Þór Einarsson: Werner Heisenberg og
Margréti konu Nielsar Bohr: Valgerður Dan. Leikstjórinn Sveinn
Einarsson raðar haganlega þremur stólum á sviðið leikurum til
stuðnings; og textanum til stuðnings lætur hann þá hreyfa sig af og til
markvisst í tómu rýminu. Flutningurinn tekur tvo og hálfan tíma.
Leikarar fara því, eðlilega, til þess að halda athygli að leika fremur
en lesa og fer það svolítið í taugarnar á manni. Einkum að Þorsteinn
Gunnarsson sá góði lesari láti sig hafa það að gera persónuna sem
hann les of hlægilega. En það og leikhússamræðan um eðlisfræðina,
spillti ekki þeirri ánægju sem ég hafði af að hlusta á góðar raddir
flytja góða þýðingu Árna Bergmanns á þessum kunnáttusamlega
smíðuðu samtölum. Ég er að vísu líka ánægjulega í vafa um boðskap
og samfélagsskilning verksins. Þarf hins vegar að lesa eða heyra
textann aftur til að geta gert grein fyrir því.
En Vonarstrætisleikhúsið á þakkir skildar fyrir að örva til um-
hugsunar um siðræna ábyrgð. Tilgang vísinda. Á Gaza er á þessu
andartaki verið að prófa ný vopn á manneskjum. Það vitum við með
vissu.
LEIKLIST
MARÍA KRISTJÁNSDÓTTIR
VONARSTRÆTISLEIKHÚSIÐ | Kaupmannahöfn
Staður: Vonarstrætisleikhúsið. Verk:Kaupmannahöfn. Höfundur: Michael Fra-
yn. Þýðing: Árni Bergmann. Leikstjóri: Sveinn Einarsson. Lýsing: Páll Ragn-
arsson. Leikarar: Jakob Þór Einarsson, Þorsteinn Gunnarsson, Valgerður Dan.
Iðnó, miðvikudaginn 14. janúar, 2008, kl. 20.00
En Vonarstrætisleikhúsið á þakkir
skildar fyrir að örva til umhugsunar
um siðræna ábyrgð. Tilgang vísinda.
Um óvissu allra hluta
Vonarstrætisleikhúsið
Vigdís Finnbogadóttir og
Sveinn Einarsson eru stofn-
endur leikhússins.
Morgunblaðið/Golli
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 2009
12 LesbókGAGNRÝNI
LEIKLIST
Falið fylgi
Leikfélag Akureyrar
„Uppsetning leiksviðsins
minnir á hringleikahús í
anda Rómverja til forna
þar sem m.a. fóru fram
skylmingar upp á líf og
dauða og áhorfendur sátu
hringinn í kringum leik-
sviðið.“
Ingibjörg Sigurðardóttir.
Sumarljós
Þjóðleikhúsið
„Glíma leiklistar við frásögnina, epíska leik-
húsið, er víðsfjarri, sögumaður skipar veigalít-
inn sess, áherslan er á dramatískustu þætti
skáldsögunnar.“
María Kristjánsdóttir.
Fólkið í blokkinni
Borgarleikhúsið
„Leikendur eru að vísu misgóðir og það er ekki
fyrr en Halldóra Geirharðsdóttir fær stærra
hlutverk í framvindunni sem erlenda far-
andverkakonan Valery að sýningin fer á skrið.“
María Kristjánsdóttir.
KVIKMYNDIR
Slumdog Millionaire – Viltu vinna milljarð?
bbbbb
Sýnd í Laugarásbíó, Smárabíó, Borgarbíó
Akureyri
„Slumdog Millionaire er full af fegurð og hryll-
ingi sem fléttast saman í stórfenglegri sögu af
landi og þjóð, þannig að áhorfendur hafa mikla
ánægju af, auk þess sem hún er einkar fróðleg,
full af litum og framandi mannlífi í risaveldi sem
við sjáum umbyltast úr gömlu nýlenduveldi sem
byggt er milljarði fátæklinga sem virðast sjá
fram á betri framtíð í því nýja Indlandi sem er
að rísa frammi fyrir áhorfendum. “
Sæbjörn Valdimarsson.
Entre les murs – Skólabekkurinn (The Class)
bbbbn
Sýnd í Háskólabíói
„Skólabekkurinn er óvenju skynsamleg, trú-
verðug og innblásin mynd og státar af ein-
hverjum besta samleik (ensamble) sem sést
hefur í háa herrans tíð.“
Sæbjörn Valdimarsson.
Sólskinsdrengurinn bbbbn
Sýnd í Háskólabíói
„Friðrik heldur sig jafnan í réttri nálægð/
fjarlægð við viðfangsefnið og nær áhrifaríkum
tökum á umfjöllunarefninu og okkur í eft-
irminnilegri baráttusögu foreldra Kela og
kraftaverkinu sem hann upplifir.“
Sæbjörn Valdimarsson.
Bedtime Stories bbmnn
Sýnd í Sambíóum
„Vafalaust hafa börnin ennþá gaman af tikt-
úrum leikarans, aðrir áhorfendur eru sann-
arlega orðnir langeygir eftir ferskum hug-
myndum frá grínaranum Sandler.“
Sæbjörn Valdimarsson.
MYNDLIST
Hafnarborg
Björg Þorsteinsdóttir –
Þættir bbbmn
Sýning stendur til 15.
febrúar.
„Sýning Bjargar er heil-
steypt en fjölbreytt, öguð
en einnig er að finna í verk-
unum þjálfaðan leik reyndr-
ar listakonu. Hér kemur skýrt fram að listakon-
an er á frjóu tímabili og óhrædd við að kanna
nýja möguleika í eigin list.“
Ragna Sigurðardóttir.
Listasafn ASÍ
Kristján Steingrímur Jónsson
Sýning stendur til 1. febrúar.
„Moldin og jarðargróðurinn virðast eiga hug
hans að miklu leyti og má því segja að sýningin
einkennist af vissri spennu milli vitsmunalegrar
greiningar og skynrænnar nautnar, sem á sinn
hátt endurspeglar hið gamalkunnuga stef: tog-
streitu milli „menningar“ og „náttúru“.“
Anna Jóa
Gallery Turpentine
Halldór Ásgeirsson – Sálarskipið bbbmn
Sýning stendur til 25. janúar.
„Það má lesa sýningu Halldórs sem eina heild,
við slíka lesningu vaknar sú tilfinning að hér séu
fullmargir og flóknir þættir saman komnir og
einfaldari sýning hefði verið áhrifaríkari.“
Ragna Sigurðardóttir.
Í GANGI