Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.2009, Blaðsíða 4

Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.2009, Blaðsíða 4
B orgarfulltrúinn Harvey Milk var fyrsti opinskátt samkynhneigði karlmað- urinn sem kosinn var í opinbert emb- ætti í Bandaríkjunum, en það var í San Francisco á ofanverðum áttunda áratugn- um. Eftir vart ár í embætti var Milk mytur ásamt borgarstjóranum George Moscone af samstarfsmanni þeirra, Dan White, manni sem hafði barist fyrir „fjölskyldugildum“ í borgarráðinu. Nýjasta kvikmynd leikstjórans Gus Van Sant, Milk, lýsir lífshlaupi Harveys Milks eftir að hann flytur frá New York til San Fransisco árið 1972 og fram að andlátinu. Inn í söguna fléttast merkir kaflar úr rétt- indabaráttu samkynhneigðra í Bandaríkj- unum. Þannig er myndin félagslega meðvituð tíðarandamynd og mikil áhersla er lögð á að fanga andrúmsloftið í kringum þennan áfanga baráttunnar í Bandaríkunum fyrir borg- aralegum réttindum. Birtu er brugðið á vonir og bjartsýni tímabilsins en einnig viðvarandi fordóma og þá hatrömmu andstöðu sem hreyfingin mætti. Með hlutverk Milks fer Sean Penn, en óhætt er að segja að hann festi sig hér í sessi sem einn helsti leikari Holly- wood um þessar mundir, en Josh Brolin, glóð- volgur úr W., leikur íhaldsmanninn Dan White. Sjálfur er Gus van Sant að stíga skref aftur inn í meginstraumskvikmyndagerð með frá- sögninni af Milk, sem í mörgum veigamiklum atriðum getur talist dæmigerð Hollywood- stórmennisævisaga, en á undanförnum árum hefur hann fengist við gerð óháðra, tilrauna- kenndra mynda sem góður rómur hefur verið gerður að, bæði meðal gagnrýnenda og á kvikmyndahátíðum þar sem myndir á borð við Elephant, Last Days og Paranoid Park hafa hlotið verðlaun og góðar viðtökur. Milk svipar fremur til sumra af eldri verkum van Sants, mynda á borð við Good Will Hunting og Find- ing Forrester. Ef litið er til Óskarsverðlauna- tilnefninga ársins virðist Milk falla í afar góð- an jarðveg en hún hefur hlotið átta tilnefningar, þar á meðal sem besta mynd árs- ins. Menningarkimi við Kastró-götu Sagan af lífshlaupi Milks er m.a. römmuð inn af frásögn hans sjálfs. Milk situr í eldhúsi íbúðar sinnar við Kastró-götu í San Francisco og les játningar sínar inn á segulband sem gera skal, að hans eigin sögn, opinbert ef koma skyldi til þess að hann félli fyrir morð- ingjahendi. Þá er horfið fram til ársins 1979 og sýnt frá því er morð Milks og Moscone er tilkynnt opinberlega. Þessi inngangur gefur myndinni spennuþrunginn og harmrænan tón, en endurspeglar að sama skapi þann ótta sem samkynhneigðir þurftu að búa við (og þurfa víða enn) um að verða fyrir ofbeldisfullum árásum vegna kynhneigðar sinnar. Meðferð morðmálsins segir sína sögu um réttindastöðu samkynhneigða og hugarfarið sem ríkti í Bandaríkjunum á þeim tíma, en morðinginn hlaut vægan dóm, og var dæmdur fyrir mann- dráp en ekki morð og beitti fyrir sig þeirri að því er þykir hlálegu vörn að hann þjáðist af efnabreytingum í heilanum vegna óhóflegrar neyslu skyndibitafæðis. Þannig afmarkast frásögnin af lífshlaupi Milks frá þeim tíma er hann verður fyrir póli- tískri vakningu, en það er skömmu eftir fer- tugsafmæli hans. Hann snýr við blaðinu og flytur með elskhuga sínum Scott Smith (James Franco) til San Francisco og tekur þá ákvörðun að fara ekki lengur í felur með kyn- hneigð sína. Árin fram að þessu talar hann sjálfur um sem týnd ár, þar sem hann reyndi að dylja samkynhneigð sína fyrir fjölskyldu og samstarfsmönnum í tryggingarfélaginu sem hann vann fyrir í New York. Kastró-hverfið í San Francisco var fyrrum verkamannahverfi afkomenda kaþólskra inn- flytjenda af írskum uppuna, en með breyttum framleiðslumynstrum í iðnaði var verk- smiðjum í borginni lokað og þær fluttar annað og atvinnuleysi var mikið. Húsnæðisverð féll í hverfinu og tóku hippar og samkynhneigðir að flytja í hverfið. Milk og Smith opnuðu ljós- myndavöruverslun við Kastró-götu og varð búðin fljótt að miðstöð þess samfélags sem var að myndast meðal samkynhneigðra í hverfinu. Milk fann sinn grunn fyrir pólitísk afskipti og réttindabaráttu í þessu samfélagi. En hann leitaði einnig stuðnings í sínu hverfi á breiðari forsendum, en þar bjó fólk sem barðist í bökkum í efnahagsniðursveiflu átt- unda áratugarins. Þannig lagði Milk áherslu á málefni ellilífeyrisþega og atvinnulausra, sem og menntamál. Hann stóð fyrir því að sam- kynhneigðir í San Francisco studdu aðgerðir verkalýðsfélags umdæmisins um að sniðganga Coors-bjór eftir að framleiðendur neituðu að semja við félag vörubílstjóra. Í kjölfarið opn- aði verkalýðsfélagið dyr sínar fyrir samkyn- hneigðum sem gátu gengið að störfum sem vörubílstjórar án fordóma. Barátta á landsvísu Milk safnaði í kringum sig öflugum hópi ráð- gjafa og aðgerðasinna, og fjallar myndin um það samfélag af mikilli alúð. Upp úr starfi Milks í þeim hópi spratt ákvörðun hans um að bjóða sig fram til borgarráðs, og var sú veg- ferð langt í frá einföld, enda tapaði hann nokkrum sinnum áður en hann náði kjöri. Í embætti barðist Milk m.a. fyrir því að koma í gegn lögum sem bönnuðu húseigendum að mismuna samkynhneigðum leigjendum. Tak- mark Milks var jafnframt að setja mark sitt á umræðuna um stöðu samkynhneigðra á lands- vísu og vakti hann mikla athygli fyrir baráttu gegn tilraunum kristinna þrýstihópa til þess að skerða réttindi samkynhneigðra, m.a. rétt þeirra til að kenna í grunnskóla, og stóð fyrir því að það frumvarp var fellt. En með umfjöll- un sinni um lífshlaup hugsjónamannsins Milks og þá áfangasigra sem unnir voru með hans starfi, minnir kvikmyndin áhorfendur jafn- framt á þá hatrömmu andstæðinga sem sam- kynhneigðir í Bandaríkjunum hafa staðið frammi fyrir með uppsveiflu kristinna íhalds- hópa sem gert hafa hatur og fordóma gegn samkynhneigðum að sínu helsta pólitíska bit- beini. heida@mbl.is Mjólk (2008) | Gus Van Sant MYNDIR VIKUNNAR HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR Hugsjónir og áfangasigrar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009 4 LesbókKVIKMYNDIR B andaríski leikstjórinn James Grey á áhuga- verðan feril að baki, en þær kvikmyndir sem hann hefur leikstýrt, þ.e. Little Od- dessa, The Yards, We Own the Night, og nú Two Lovers, eiga það sammerkt að beina sjónum að sérstæðum menning- arkimum, nokkurs konar eyj- um í borgarumhverfinu sem aðskildar eru frá meg- instraumnum og þar sem sérstakar hefðir og lögmál ríkja. Two Lovers sem skartar þeim Gwyneth Paltrow og Joaquin Phoenix í aðal- hlutverkum, greinir sig þó frá glæpamyndaþríeykinu sem á undan kom enda er hér er á ferðinni rómantísk ástarsaga. Höfundareinkenni Greys eru þó greinilega til staðar. Yfir myndinni svíf- ur harðneskjulegur og raunsæisleg- ur andi en aðalpersónurnar tvær eiga við erfið vandamál að glíma í einkalífinu. Svo langt er reyndar gengið í að skapa persónum Paltrow og Phoenix þyrnum stráða baksögu að segja má að bæði séu þau að niðurlotum komin þegar myndin hefst. Gwyneth Palt- row sýnir hér á sér einkar sterkar hliðar og myndin öðlast talsvarðan harmrænan þunga í atburðanna rás. Two Lovers | James Grey Ást í meinum Þ egar ég tek rúnt um netheima undrast ég stundum þann dugnað sem þar býr. Það er ótrúlegur sá tími sem fólk hefur til að halda úti metnaðarfullum vefsíð- um; það setur inn nýjar færslur á bloggið sitt á hverjum degi, fylgist með öllu sem aðrir setja á netið og heldur úti almennum fróðleikssíðum með reglulegum uppfæringum. Það er enginn sem biður fólk um að gera þetta og ekki er borgað fyrir þessa vinnu sem skaffar okkur hinum ókeypis afþreyingu og því finnst mér þetta aðdáunarvert framtak. Ég vinn fyrir framan tölvu, eins og svo margir, en þegar heim er komið er löngunin til að setjast aftur fyrir framan tölvu mjög lítil, hvað þá að halda úti heilli vefsíðu, svo ég er ánægð með að aðrir nenni því. Annars yrði rúnturinn um netheima líklega frekar fábreyttur. Þegar ég heimsæki eina síðu á ég samt alltaf sérstaklega bágt með að skilja þann tíma sem fólk hefur til að búa til efni til að setja þar inn. Vefsíðan víðfræga YouTube geymir alveg ótrúlegt magn af gagnslausum heimagerðum myndböndum, svo gagnslausum að þau ná sum hver ekki einu sinni að vera til gagns sem skemmtiefni. Gagnslaust athæfi Eitt æðið á YouTube núna er að gera mynd- band þar sem þú sýnir 51 hlut sem má finna í herberginu þínu eða á heimili. Einstakling- urinn, oftast á unglingsaldri, stillir sér upp fyr- ir framan myndavélina og dregur allskonar hluti fyrir framan hana, þetta eru yfirleitt hversdagslegir og ómerkilegir hlutir eins og lyklakippur, krúsir og bækur. Þegar ég var búin að horfa á nokkur mynd- bönd og hneykslast á þessu gagnslausa at- hæfi skildi ég hvað var málið með þetta æði, myndböndin voru nefnilega skemmtilega ólík þrátt fyrir að vera um sama efni. Ung- mennin hafa klippt þau saman á hraðan og fyndinn hátt sem kallast á við tónlistina und- ir svo úr verður ágætis atriði. Viðeigandi svipbrigði eru svo notuð með hverjum hlut, sætur stútur settur á munninn þegar bangsi er sýndur og fýlusvipur ef það er kennslu- bók. Hvert vídeó segir líka heilmikið um manneskjuna sem það gerir, enda verða hlutir sem tengjast áhugamálinu oftast fyrir valinu. Áhrif HurricaneAubrey Þó að erfitt sé að finna uppruna slíks æðis má sjá að vídeóbloggari sem kallar sig Hurric- aneAubrey hefur haft mikil áhrif á aðra að gera slík myndbönd. HurricaneAubrey setti myndbandið „51 things I found around my house“ á YouTube fyrir þremur mánuðum og hafa um þúsund manns svarað því myndbandi með öðru álíka. Rúmlega ein og hálf milljón manns hafa skoðað myndband Hurric- aneAubrey sem er 19 ára stúlka frá Brooklyn í New York. Hún er vinsæll vídeóbloggari sem hefur sjálfa sig og sínar hugsanir oftast sem umfjöllunarefni. Hún setur upp leikþætti tengda þeim frásögnum auk þess að finna upp á sniðugum hlutum eins og „51 things I found around my house“ sem varð að æði á YouTube og fékk mig til þess að hugsa um skemmt- anagildi gagnsleysisins í netheimum. ingveldur@mbl.is 51 hlutur í herberginu mínu Furðulegt myndbandaæði á YouTube hefur lítið annað gagn en skemmtanagildið NETIÐ INGVELDUR GEIRSDÓTTIR Myndband HurricaneAubrey er ansi sniðugt. R amchand Pakistani er frumraun pakist- önsku leikstýrunnar Mehreen Jabbar en þessi verðlaunamynd er byggð er á sönnum atburðum. Myndin var frumsýnd í Pakistan í fyrra en hefur síðan ferðast víða á kvikmyndahátíðum. Ramchand Pakist- ani gerist í Thar-eyðimörkinni sem er við landamæri Pakistan og Indlands og lýsir afleiðingum þess er drengurinn Ramchand (Syed Fazal Hussain) villist yfir landamærin frá Pakistan til Indlands. Hann er handtek- inn af hermönnum við landamæragæslu og sama á við um föður hans sem heldur í leit að syni sínum. Báðir eru þeir sakaðir um njósnir en samskiptin milli landanna tveggja eru spennuhlaðin og eftirköst þessarar sak- leysislegu yfirsjónar virðast því ætla að verða mjög afdrifarík. Mánuðir líða og móðir Ramc- hands, Champa (Nandita Das) þarf að sjá um sig sjálf en lífsbaráttan er henni ekki síður erfið en feðganna. Þá reynist fangavistin hinum unga Ramchand mikil þolraun en framvindunni er lýst á yfirveg- aðan og næman máta. Myndin er gerð af litlum efnum en boð- skapur hennar er merkilegur sem og innsýnin sem hún veitir í menn- ingarheim sem er okkur fjarlægur. Myndatakan er oft og tíðum sláandi fal- leg og þótt frásagnaraðferðin komi e.t.v. örlítið spánskt fyrir sjónir á köflum er þetta mynd sem full ástæða er til að mæla með. Ramchand Pakistani | Mehreen Jabbar Landamæri lífs og dauða Harvey Milk „Með hlutverk Milks fer Sean Penn, en óhætt er að segja að hann festi sig hér í sessi sem einn helsti leikari Hollywood um þessar mundir“.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.