Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.2009, Side 11

Lesbók Morgunblaðsins - 14.02.2009, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. FEBRÚAR 2009 Lesbók 11 L ífið þeirra allra er í steik en samt er þetta ógeðslega fynd- ið, sagði þrettán ára dóttir mín þegar hún stakk upp á því að við horfðum saman, fjölskyldan, á Næturvaktina og Dagvaktina. Hún hafði rétt fyrir sér. Þessir þættir fjalla um kúgun, hroka, heimsku, kvíða og hræðslu í míkrósamfélagi þriggja minnipokamanna: Georgs, Óla og Daníels. Slíkt sam- félag er ógeðslegt. Samt hlæjum við öll, nema móðir mín. Hún skilur ekki þessa þætti. En okkur hinum finnst þeir fyndnir vegna þess að við þekkjum þar eitthvað. Eitthvað í okkur sjálf- um sennilega, eitthvað í okkar samfélagi. Þetta er svo fyndið vegna þess að maður fattar strax hvað þetta er fyndið, segir sonur minn 11 ára. Þarna er gert út á aulahrollinn og feginleika að við skulum ekki vera eins og þeir. Eða hvað? Það sem er að þessum gaur- um er sammannlegt en líka séríslenskt. Þar sem þrír koma saman er einhver yfir og einhver undir. Manísk drottnunar- árátta Georgs, hlálegt ofmat hans á eigin getu og hæfileikinn til að skella skuldinni á aðra. Við Íslendingar þekkjum slíka stjórnendur einum of vel. Við könnumst líka við umkomuleysi Ólafs sem lætur endalaust kúga sig og misnota. Og Daníel? Hann er sá eini sem er normal, segja krakkarnir, en samt er líf hans ömurlegt. Næturvaktin og Dagvaktin eru besta leikna efnið sem framleitt hefur verið í íslensku sjónvarpi undanfarin ár. GLÁPARINN | Hjálmar Sveinsson Þarna er gert út á aulahroll- inn og feginleika að við skulum ekki vera eins og þeir. Eða hvað? Höfundur er dagskrárgerðarmaður. B úsetu minnar vegna ferðast ég töluvert um í bíl og hef síðustu ár lært að njóta þess. Nýverið uppgötvaði ég leið til að njóta ferðalagsins enn betur. Sú uppgötvun felst í því að ég skelli góðri sögu „á fóninn“ á meðan á akstri stendur. Þetta hefur jafnvel þau áhrif á mig, ef sagan er góð, að ég hef setið í bílnum í innkeyrslunni heima heillengi áður en ég druslast inn. Hljóðbækur eru algjör snilld, úrval þeirra er orðið mjög gott, lesturinn vandaður og þær má leigja á öll- um helstu bókasöfnum. Góðar bækur eru mér ómetanleg lífs- fylling. Sú bók sem síðast hafði djúp áhrif á mig er ævisagan Glerkastalinn eftir bandaríska rithöfundinn Jeanette Walls. Bókin lýsir allt að því hrollvekjandi uppvaxtarárum hennar sem þó einkennast af ást og virðingu gagnvart sjálfmiðuðum og fársjúkum foreldrunum. Við fylgjumst með henni og systkinum hennar fá poppkorn í kvöldmat svo dögum skiptir, föðurnum brjóta upp sparibaukinn til að eiga fyrir brennivíni og móðurinni felandi mat handa sjálfri sér, aumkandi sér yfir svengd á meðan börnin átu smjör. Ekki örðu af biturleika er að finna í skrifum Jeanette. Það að hún skuli hafa komist ósködduð í gegnum uppvaxtarár sín og á þann stað sem hún er í dag gerir konuna að lifandi kraftaverki. Við fylgjumst með henni og systkinum hennar fá poppkorn í kvöldmat svo dögum skiptir … LESARINN | Jóna Fanney Friðriksdóttir Höfundur er framkvæmdastjóri. Á Landnámssýningunni í Aðalstræti 16 mætast elstu minjar um búsetu í Reykjavík og nýjasta margmiðlunartækni. Úrval af fallegri gjafavöru í safnbúðinni. Opið alla daga frá kl. 10-17. www.minjasafnreykjavikur.is/www.reykjavik871.is ÞVERSKURÐUR: Sýning Textílfélagsins 7. febrúar-8. mars Opið kl. 11-17 alla daga nema mánudaga Leiðsögn á sunnudag klukkan 15.00 Ókeypis aðgangur www.gerdarsafn.is ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN KÓPAVOGS GERÐARSAFN LISTASAFN ÍSLANDS Endurfundir - fornleifarannsóknir styrktar af Kristnihátíðarsjóði Sýning fyrir alla fjölskylduna! Leiðsögn á íslensku alla sunnudaga kl. 14 Spennandi safnbúð og kaffihúsið Kaffitár Opið alla daga nema mánudaga kl. 11-17 www.thjodminjasafn.is Söfnin í landinu Görðum, 300 Akranes Sími: 431 5566 / 431 1255 www.museum.is museum@museum.is Listasalur: Eyjólfur Einarsson Söknuður Bátasalur: 100 bátalíkön Poppminjasafn: Rokk Bíósalur: Úr safneign Listsafsnins Opið virka daga 11.00-17.00, helgar 13.00-17.00. Ókeypis aðgangur. LISTASAFN ASÍ 7. febrúar – 1. mars Á milli laga Þuríður Sigurðardóttir Málverk og verk unnin í aðra miðla Opið 13.00-17.00 nema mánudaga Aðgangur ókeypis LISTASAFN ASÍ Freyjugötu 41, 101 Rvk. WWW.listasafnasi.is SKART OG SKIPULAG Danska skartgripaskrínið Guðbjörg Kr. Ingvarsdóttir Hveragerði – nýr miðbær 1. feb.- 19. apr. OPIÐ: fim. – sun. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS Hveragerði NOKKRIR VINIR 13.2.–3.5. 2009 DIETER ROTH - PUZZLE Heimildarmynd Hilmars Oddssonar um myndlistarmanninn Dieter Roth er sýnd í sal 2. LEIÐSÖGN Sunnudag kl. 14-15 í fylgd Halldórs Björns Runólfssonar, safnstjóra. Hádegisleiðsögn þriðjudaga og föstudaga kl. 12.10–12.40 Safnbúð Listasafns Íslands - Gjafir listunnandans Opið kl. 11-17 alla daga, lokað mánudaga. Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR. www.listasafn.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.