Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.2009, Síða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 21.02.2009, Síða 7
haft frumkvæði, og um það segir höf. „hér er of djúpt í árinni tekið“ (bls. 458). Var Hans G. And- ersen einn fremsti sérfræðingur heims í hafrétti og hafði áhrif á þróun hans? „Það er ofsagt,“ segir höf. (bls. 460). Um „eininguna“ segir höf. þetta á einum stað: „Víst gátu Íslendingar staðið saman nær allir sem einn og einróma samþykktir Alþingis um land- helgismál 1959 og 1972 bera því vitni“ (bls. 461), og virðist ekki þurfa miklu við það að bæta. En í fram- haldinu notar höf. hugtakið „einingu“ í þá veru að það merki algera samstöðu um allt, bæði um mark- mið og leiðir og auk þess um hvern einstakan þátt í gangi mála, og er það þá í rauninni innihaldslaust, því slík „eining“ er tæplega nokkurs staðar fyrir hendi þegar stóratburðir gerast, það hlýtur æv- inlega að koma upp ágreiningur um einstök atriði og einnig tortryggni og brigsl milli einstakra manna. Það hefði verið til of mikils mælst að Ís- lendingar gleymdu með öllu fyrri deilumálum sín- um þótt þeir ættu í átökum við Breta, en það þarf ekki að breyta neinu um almenna einingu. Um „vondu útlendingana“ segir höf. m.a.: „Þrjóska Breta er ýkt í endurminningunni og fulllítið gert úr ábyrgð manna Íslands megin (bls. 463),“ og nokkru síðar kemur svo þessi athugasemd: „Hugtakið „þorskastríð“ gefur einmitt ranga mynd af eðli átakanna því þau geta ekki flokkast undir hefð- bundin stríð“ (bls. 464). En vitanlega er þetta orð aðeins ýkjukenndur talsmáti sem hefur fyrir löngu unnið sér sinn þegnrétt jafnt á Íslandi sem erlend- is, oft innan gæsalappa og kannske með léttu háði, án þess að það fari nokkru sinni milli mála hvers eðlis atburðirnir voru. Orðið gefur ekki ranga mynd af einu né neinu. Ekkert af þessu er með nokkru móti hægt að kenna við „goðsagnir“; þótt menn „taki of djúpt í árinni“ eða eitthvað sé „ofsagt“ eða „ýkt“ verður ekki úr því „goðsögn“, og enn síður er hægt að herma upp á menn goðsagnasmíð með einhverjum orðhengilshætti með almenn hugtök eða orð sem löng hefð er fyrir og er ekki annað en merkimiði. En á þessu öllu er önnur hlið og er þá komið aftur að því sem sagt var hér að ofan. Þau dæmi sem höf. tekur um „goðsagnir“ varðandi þorskastríðin eru jafnan tekin úr ræðum og skrifum stjórnmála- manna við einhver hátíðleg tækifæri, stundum þeg- ar verið var að minnast einhvers afmælis atburð- anna, úr ræðu Ólafs Ragnars Grímssonar forseta við setningarathöfn ráðstefnu, úr ávarpi Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra við athöfn í há- tíðasal Háskóla Íslands til að heiðra minningu Hans G. Andersens o.s.frv. Hér sést höf. yfir þá augljósu staðreynd að stjórnmálamaður sem tekur til máls við slíkar aðstæður er ekki að halda fyr- irlestur um sagnfræði, mælskulist hans hlítir allt öðrum reglum og verður að dæma hana hverju sinni eftir hennar eigin forsendum en ekki eftir einhverju sem var alls ekki á dagskrá. Eða hvað hefðu menn sagt ef stjórnmálamaður hefði mætt á minningarathöfn um Hans G. Andersen vopnaður í bak og fyrir með tilvitnanir í Google Scholar (http://scholar.google.com) og flutt um það lærða þulu að það væru miklar ýkjur að sá hinn sami Hans G. Andersen hefði verið einn fremsti sér- fræðingur heims á sviði hafréttar? Þegar á þessar tilvitnanir höf. í orðræður stjórnmálamanna er litið verður heldur ekki séð að þær eigi neitt skylt við það sem raunverulega er hægt að kalla „sameig- inlegar“ endurminningar þjóðar og hinn mikli fræðimaður Maurice Halbwachs hefur manna best rannsakað (en í hann vitnar höf. einu sinni í neð- anmálsgrein bls. 457), þær eru af öðrum toga og þeirra þarf að leita mun víðar. Allt er þetta því afskaplega valt, en það kemur ekki í veg fyrir að höf. slái um sig í lokin með stórum orðum, hann er að fara í krossferð, það þarf að „gagnrýna“ og „eyðileggja“ þessar „goðsagnir“ (bls. 471), en róðurinn er þungur, því „vandinn“ er sá að meirihluti þjóðarinnar og opinberra málsvara hennar kýs líklega gömlu goðsagnirnar frek- ar en nýjar niðurstöður fræðimanna, hversu sannfærandi sem þær kunna að vera í huga þeirra sjálfra (bls. 470). Þá er ekki annað eft- ir en girða sig megingjörðum. 5 Þetta vildi ég draga fram, því ým- islegt bendir til þess að umræðan um stöðu Íslands, þjóðerni og afstöðuna til Evrópusambandsins kunni að fara inn á svipaðar brautir og sams konar umræð- ur erlendis, þeir sem setji allt sitt traust á þann Evrópu-lífs-elixir sem er nærandi og styrkjandi, gefur hraustlegt og gott útlit, bætir meltinguna, fylli mál sitt með gam- alkunnum klisjum, sem eru merkingarlitlar þegar upp er staðið. Nú má vel vera að eins og málum er háttað eigi Íslendingar ekki annarra kosta völ en þann að gerast aðilar að Evrópusambandinu, það getur líka verið að til að borga skuldirnar verði þeir að láta af hendi fiskimið og fallvötn og kannske selja bókasafni Harvard-háskóla handritin, því við vitum nú að eigur ólígarkanna eru frið- helgar, enda í skjóli á fjarlægum sólar- ströndum, og eigur Jóns og Gunnu hrökkva skammt, jafnvel þótt eigum barna þeirra sé bætt við. En væntanlega er ekki til of mikils mælst af fylgismönnum slíkrar aðildar að þeir láti af sauðskinnskóa- og torfbæjarök- unum, geri hlé á krossferðinni gegn „goð- sögnum“ og fjalli í raun og veru um þá kosti sem fyrir hendi eru. En áður en að því kem- ur fyndist mér rétt að þeir svari fáeinum spurningum, sem eru e.k. inngangur að öðru: Hvernig stendur á því að þá sjaldan al- menningur í löndum Evrópusambandsins fær að taka afstöðu til uppvaxtar þess í þjóð- aratkvæðagreiðslu er allt eins líklegt að hann segi „nei“? Þetta gerðist í kosning- unum um „Evrópustjórnarskrána“ svoköll- uðu í Frakklandi og Hollandi fyrir fáum ár- um og nú síðast á Írlandi. Úrslitin í Frakklandi voru einkum athyglisverð, því áður en gengið var til kosninga dundi slíkur dómadagsáróður á almenningi að ég man ekki eftir neinu slíku fyrr eða síðar, nánast öll stjórnmálaelítan svo og flestir fjölmiðlar lögðust á eitt að reyna að sannfæra menn um að einungis fáráðlingar gætu tekið upp á að segja „nei“. Þeir sem snerust gegn þessari stjórnarskrá og færðu fram sín rök voru út- hrópaðir sem ósannindamenn; „þeir ljúga“ stóð með flennistórum stöfum á forsíðu út- breidds vikurits. En samt varð niðurstaðan skýrt „nei“. Og vel að merkja: bæði Frakkar og Hollendingar eru í hjarta Evrópusam- bandsins, eins nálægt Brussel og hægt er að komast ef menn eru ekki Belgar, og ættu því að vera vel staðsettir til að þekkja af eigin raun dýrð þess og dásemdir. Hvers konar lýðræði er það, þegar „nei“ í þjóðaratkvæðagreiðslu þýðir ekki „nei“ held- ur er það einungis ávísun upp á aðra þjóð- aratkvæðagreiðslu, menn eru semsagt látnir kjósa aftur þangað til þeir svara „rétt“? En þó verður að taka fram að þetta gerist ekki alltaf, stundum eru þingmenn kallaðir saman í kyrrþey til að samþykkja það sem almenn- ingur er þegar búinn að hafna, og er þá stungið undir stól þeirri reglu sem einu sinni var talin einn af hornsteinum lýðræðis, að því sem hefur verið ákveðið í þjóðaratkvæða- greiðslu megi ekki breyta nema með annarri þjóðaratkvæðagreiðslu. Þannig var farið að í Frakklandi, og í sakleysi hjartans fóru menn ekki dult með ástæðuna: ekki var hægt að láta fara fram nýja þjóðaratkvæðagreiðslu, því „hætta“ var á að almenningur segði aftur „nei“. Þetta orðuðu sumir blaðamenn þannig að „Evrópa fæddist með töngum“, og þeim fannst það sniðugt. En tangir hafa verið hafðar til ýmislegs brúks gegnum aldirnar. Og næst er á dagskrá að kjósa aftur á Ír- landi. Hvað finnst mönnum loks um þann aug- ljósa klofning milli stjórnmálamanna og al- mennings sem kominn er upp víða í Evrópu sem lýsir sér í því að þingmenn samþykkja með miklum meirihluta og í hrifningarvímu eitthvað sem almenningur er búinn að hafna eða miklar líkur eru taldar á að hann myndi hafna, ef hann væri á annað borð spurður? Ýmsir eru farnir að hafa áhyggjur af þessu, en þeir eru að vísu fáir. Hins vegar væri rétt að velta því fyrir sér, hvaða miklu kostir það eru við Evrópusambandið sem stjórn- málamenn sjá en almenningi virðast vera huldir. Þegar búið er að svara þessum einföldu spurningum verður kannske hægt að snúa sér að aðalatriðunum. um raunverulegu atburðum sem studd er góðum heimildum og sagnfræðingar hafa rýnt í allar götur síðan Michelet vegar er framhaldslíf Jóhönnu í bókmenntum af ýmsu tagi, allt frá Francois Villon og Shakespeare til Anouilh, og svo í yttum hætti því höfundarnir hafa hverju sinni mótað persónuna eftir lögmálum þess verks sem þeir voru að skapa Erfitt er að sjá hvers vegna það ætti endilega að vera „goðsögn“ ef ráðamenn þjóðar „segja söguna með sínu lagi“ (hvað annað ættu þeir að gera?), jafnvel þótt þeim hætti til að „fegra“ hana, og skyldi maður ætla að eitthvað meira þyrfti til svo hægt væri að nota það orð. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. FEBRÚAR 2009 Lesbók 7 óhannessonar fyrst tilefni na í fjölmiðlapistli. Þar anda Evrópumálunum í öngu í Evrópusambandið, llaðir í þeirri ofsafengnu nir, of akademískir. Búið er efni niður í tvær aumar kkert annað er til umræðu. mna frávarp erfiðleik- mallar orðræðu um full- eifar, vinstrigrænir og aðan faðm. Ísland er ekki rlaga og næturfunda hefur yfir hið stærra svið: Tíma- jum Skírni er grein sem ég hef hvergi séð minnst á í fjölmiðlum en ætti að vera „miðlæg“ í um- ræðunni. Hún heitir Þorskastríðin. Baráttan við erlenda fjandmenn og inn- lendar goðsagnir og er eftir Guðna Th. Jóhannesson. Þar rekur Guðni í sundur með afar gagnrýnum hætti helstu goðsagnir þjóðarinnar um þorskastríðin. Þar sem ESB-andstæðingarnir nota nú téð stríð sem sósu á sínar fullveldiskrásir er hollt að sjá það rakið skilmerkilega að flest sem sagt er um þessa atburði virðist byggt á misskilningi, hálfsannleika eða oftúlkun. Mikil goðsagnasmíð fer nú fram um allt samfélagið og menn safna vopnum fyrir hina miklu baráttu næstu mánaða. Þar vilja margir halda völdum. Aðrir fá völd. Við hin sem viljum fá að vinna og starfa í skynsömu þjóðfélagi réttlætis og gagnsæis þar sem vöxtur byggist á raunverulegri verðmætasköpun en er ekki rekinn áfram af hormónum og skuldsettum draumum verðum að reyna að takast á við þessa orrahríð með skýra sýn á gildin. Þess vegna verður að gagnrýna orðaleppana, goðsögurnar og þokuslungna leyndardómana. Og vera sjálfum okkur trú.“ ðsagnasmíði

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.