Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.2009, Page 11

Lesbók Morgunblaðsins - 03.10.2009, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 2009 Lesbók 11 LAUGARDAGUR | Þeir sem eru barnlausir hafa það fram yfir þá sem búnir eru að fjölga mannkyninu að þeir geta sofið út um helgar. Og barnlausa fólkið ætti sannarlega að njóta þess og helst sofa til hádegis, hvort sem það þarf þess vegna skralls og áfengisdrykkju kvöldið áður eða vegna þess eins að það getur það. Svo á að staulast letilega inn í eldhús. Þeir sem hafa hugsað fram í tímann eiga pönnukökudeig, ferska ávexti, egg og beik- on inn í ísskáp og fá sér almennilegan morgunmat í tilefni helg- arinnar en aðrir verða að láta sér morgunkornið nægja. Svo tekur við að njóta alls þess sem helgin hefur upp á að bjóða. Óvísindaleg könnun hefur leitt í ljós að fjöldi barnafólks eyðir helgunum í verslunarmiðstöðv- unum með afkvæmum sínum og vilji barnlausa fólkið forðast það er mælt með Lauga- veginum en þar er langur laugardagur í dag. T.d. er hægt að kíkja á kaffi Hljómalind milli 11 og 17.30 þar sem fornámsdeild Myndlistarskólans í Reykjavík stendur fyrir flóamarkaði. Sé fræðahugur í manni er hægt að kíkja í Öskju, náttúrufræðihús HÍ, kl. 13 og hlusta á fyrirlestur um uppruna lífs- ins í tilefni af Darwin-dögum. Um kvöldið er svo hægt að kíkja á EVE fanfest í Laug- ardalshöll og enda á tónleikum 200.000 naglbíta á Sódómu. SUNNUDAGUR | Hafi laugardags- kvöldið og -nóttin lukkast nógu vel ætti barnlausa fólkið ekki að staulast fram úr fyrr en um nónbil. Þá á ekki að fara úr húsi nema til að kaupa gos og skyndimat og loks liggja í sófanum og horfa á gam- anmyndir þar til Hamarinn verður sýndur í Sjónvarpinu og Fangavaktin þar á eftir á Stöð 2. Svo á að fara snemma að sofa svo maður verði ferskur á mánudagsmorgninum og yfirmennirnir sjái ekki hvers kyns vitleysu maður eyddi helginni í. ylfa@mbl.is HELGIN | Fyrir unga barnlausa fólkið Róleg og góð S ú hefð hefur skapast hjá mér að hafa við hendina á náttborðinu þrjár tegundir bóka: ljóðabók, skáldsögu/ ævisögu og svo bók sem veitir manni gleði og sáluhjálp þótt allar bækur geti í sjálfu sér flokkast í þann flokk. Á borðinu hjá mér núna liggur ljóðabók Griffinskáldanna frá síðustu bókmenntahátíð, einstaklega vekjandi ljóð með mikla þjóðfélagslega skírskotun. Sáluhjálparbókin mín er svo bók Eckharts Tolle, The Power of Now, sem á fagmannlegan hátt kennir manni raunhæfar aðferðir til að lifa í núinu, til að auðga skynjunarhæfileika okkar og lifa hvert augnablik sem undur. Sú bók sem hrífur mig þó mest um þessar mundir er bókin Tätt intill dagarna – berättelsen om min mor eftir sænsk-kúrdíska útvarps- og blaðamanninn Mustafa Can, sem kom fyrst út í Svíþjóð árið 2006. Þessi sannsögulega bók er einskonar óður um og til móður höfundar sem var kúrdísk kona, ættuð úr tyrkneska hluta Kúrdistan. Einn- ig má líta á bókina sem lofgjörð til allra alþýðukvenna og þeirra hljóðlátu verka. Rekur höfundur ævi móður sinnar og fjölskyldu, allt frá því þegar fjölskyldan flutti blásnauð úr fjallahéruðum Kúrdistan til Svíþjóðar á 8. áratug síðustu aldar. Móðir hans hafði eignast fimmtán börn og misst sjö og lýsir hann hugarheimi hennar og hugsunum af mikilli nærfærni og virðingu og hvernig hún lifði af með slíkan harm í framandi menningarheimi. Hún var bæði ólæs og óskrifandi alla ævi, þótt hún lærði að skrifa nafnið sitt til að geta kvittað fyrir barnabótunum í Svíþjóð. Ég hef aldrei lesið jafn nána, hlýja og sérstaka lýsingu á sameiginlegum málefnum innflytjenda allra tíma sem í þessari bók. Can nálgast viðfangsefnið án allrar biturðar en glæðir frásögnina sjaldgæfri fegurð bæði hvað innihald og stíl varðar, enda hefur verið sagt um höfundinn að hann skrifi fegurstu sænsku núlifandi rithöfunda þótt hann sé ekki fæddur Svíi. Hann hefur enda fengið fjölda viðurkenninga, m.a. sem „Årets berättare“. Þetta er einstök bók sem ég vona að einhver íslenskuvölundur taki til þýðingar. Lesarinn | Gróa Finnsdóttir Ég hef aldrei lesið jafn nána, hlýja og sérstaka lýsingu á sameiginlegum mál- efnum innflytjenda. Höfundur er bókasafnsfræðingur við Þjóðminjasafn Íslands. E ins og líklegast gefur að skilja hafa útgáfur á vegum Borgarinnar fengið vænan skerf af athygli minni und- anfarið. Ég hef hins vegar gefið mér tíma til að sökkva mér ör- lítið ofan í feril Fleetwood Mac enda hyggst ég sækja tónleika með þeirri stórfenglegu hljóm- sveit á Parken í Köben á næstunni. Fyrir utan Rumours, Tusk og Fleetwood Mac, fyrstu þrjár plöturnar eftir að Stevie og Lindsay komu inn í hljómsveitina, verður því miður að viðurkennast að Fleetwood Mac er þessi týpíska „best-off“hljóm- sveit; á mörg geðveik lög en ekkert sér- staklega mikið af breiðskífum með sterk- an heildarsvip. Reyndar er það ekkert skrýtið. Ég held að hvaða tónlistarmanni sem er myndi förlast eftir að hafa gert plötu á borð við Rumours með kókaínið, kynlífið og áfengið fljótandi út um öll eyru. Ég verð hins vegar að minnast sér- staklega á plötuna Tango in the Night þar sem Lindsay Buckingham nær á köflum að fara á kostum, bæði í útsetningum, gítarspili og söng. Eitt lag, þó ekki með Fleetwood Mac, hefur síðan átt hug minn allan und- anfarnar vikur. Ég rakst á það þegar indíbiblían Pitchfork valdi bestu lög und- anfarins áratugar. Lagið heitir „With Every Hearbeat“ og er með sænsku popp- gyðjunni Robyn. Ég skil hreinlega ekki af hverju ég hef ekki tamið mér þetta lag fyrr. Ótrúlega þéttur danstaktur heltekur mann frá fyrstu mínútu og synthalín- urnar úti um allt draga mann inn í algjöran draumheim. Söngur og texti Robyn er einfaldur og áreynslulítill en nær léttilega að tipla á tilfinningastrengjunum. Sem sagt, allt að því fullkomið lag. Hlustarinn | Steinþór Helgi Arnsteinsson Með kókaínið, kynlífið og áfengið fljótandi út um öll eyru. Höfundur er framkvæmdastjóri Borgarinnar, plötuútgáfu. Á Landnámssýningunni í Aðalstræti 16 mætast elstu minjar um búsetu í Reykjavík og nýjasta margmiðlunartækni. Úrval af fallegri gjafavöru í safnbúðinni. Opið alla daga frá kl. 10-17. www.minjasafnreykjavikur.is/www.reykjavik871.is LISTASAFN ÍSLANDS ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Óþekkt augnablik Greiningarsýning á ljósmyndum frá tímabilinu 1900-1960 úr Ljósmyndasafni Íslands í Þjóðminjasafni. Leitað er aðstoðar safngesta við greiningu myndefnis. Aðgangur ókeypis fyrir börn. www.thjodminjasafn.is. Söfnin í landinu Sumarsýning á nýlegri íslenskri hönnun úr safneign Húsgagnageymsla safnsins opin almenningi Opið fim. til sun. kl. 13 - 17 Lyngási 7 • 210 Garðabær sími 512 1526 www.honnunarsafn.is Aðgangur ókeypis LISTASAFN ASÍ 26. september til 18. október Guðjón Ketilsson/Hlutverk Listamannaspjall sunnudaginn 4. október kl. 15:00 Lothar Pöpperl Opið 13-17 alla daga nema mánud. Aðgangur ókeypis Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is 28. ágúst – 1. nóvember Lífróður – Föðurland vort hálft er hafið 4. október kl. 20 - Tríó Reykjavíkur með tónleika Miðasala í Hafnarborg Opið 11-17, fimmtudaga 11-21, lokað þriðjudaga. www.hafnarborg.is Aðgangur ókeypis. FALINN FJÁRSJÓÐUR: GERSEMAR Í ÞJÓÐAREIGN? 10.7. - 18.10. 2009 Sýning á verkum úr söfnum ríkisbankanna þriggja ásamt völdum kjarna úr verkum Listasafns Íslands. SUNNUDAGSLEIÐSÖGN - EKKI GLEYMA BENEDIKT GRÖNDAL Steingrímur Eyfjörð myndlistarmaður og Dagný Heiðdal listfræðingur spjalla við gesti á sýningunni. HÁDEGISLEIÐSÖGN þriðjudaga kl. 12.10 -12.40, föstudaga kl. 12.10-12.40 SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara frá erlendum listasöfnum. Allir velkomnir! ÓKEYPIS AÐGANGUR. www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Sýningar opnar alla daga: Handritin - sýning á þjóðargersemum, saga þeirra og hlutverk. ÍSLAND::KVIKMYNDIR, 100 íslenskar kvikmyndir til að horfa á. Að spyrja Náttúruna - dýrasafn og aðrir munir í eigu Náttúrugripasafnsins. Þjóðskjalasafn Íslands - 90 ár í Safnahúsi. Merk skjöl úr sögu þjóðarinnar. Gögn frá valdatíma Jörundar hundadagakonungs fyrir 200 árum. Sýning Íslandspósts „Póst- og samgöngusaga - landpóstar, bifreiðar, skip og flugvélar“ ásamt frímerkjasafni Árna Gústafssonar. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00 -17.00. www.thjodmenning.is Listasafn: Flökkuæðar - Loftfar Inga Þórey Jóhannsdóttir Bíósalur: Verk úr safneign Listasafns Reykjanesbæjar Bátasafn: 100 bátalíkön Byggðasafn: Völlurinn Opið virka daga 11.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn VÍKINGAHEIMAR Skipið Íslendingur og sögusýning - Söguleg skemmtun VÍKINGABRAUT 1 - REYKJANESBÆ Opið alla daga frá 11:00 til 18:00 Sími 422 2000 www.vikingaheimar.com info@vikingaheimar.com

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.