Morgunblaðið - 03.01.2009, Qupperneq 6
Liðkandi og
styrkjandi æfingar
Teygja Aftan á lærinu. Hægt er að nota stólinn sem
hjálpartæki meðan maður gerir teygjuæfingar,
annað hvort til að styðja sig við eða lyfta fótunum
upp á.
Dæmigerð Liðkandi æfing fyrir háls og
herðar sem hægt er að gera standandi
eða sitjandi, við tölvuna eða hvaðeina.
Við öll einhæf störf er nauðsynlegt að
losa reglulega um háls og herðar.
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
Liðkandi og styrkjandi
„Leikfimin miðast við þá sem eru heima á
þessum tíma og áherslan því á æfingar fyrir
eldra fólk. Auk þess miða ég við að hægt sé að
gera leikfimina á vinnustöðum til að losa um
spennu í hálsi og herðum en annars eru þetta
almennt liðkandi og styrkjandi æfingar og
jafnvægisæfingar. Þær hafa þróast í gegnum
árin, fyrst var ég með gólfæfingar en hætti því
þar sem ég fékk ábendingar um að fólki fynd-
ist óþægilegt að leggjast í gólfið og rísa upp
aftur. Þá einbeitti ég mér að því að hafa æfing-
arnar annað hvort fyrir fólk standandi eða sitj-
andi á stól og miðaði við að fólk þyrfti engan
útbúnað. Það hafa ekki orðið neinar róttækar
breytingar á æfingunum en maður laumar þó
inn í nýjungum eins og jóga- og pilates-
æfingum,“ segir Halldóra.
Þörf á jafnvægishreyfingum
Halldóra segir þörf fyrir hreyfingu aukast
með aldrinum og að eldra fólk og krakkar í
uppvexti séu þeir hópar sem þurfi hvað mest
að hreyfa sig þó að það þurfi allir að gera. Með
árunum eykst þörfin á jafnvægishreyfingum
en fólk getur gert nánast allt þó það þurfi
kannski að fara varlegar og draga úr hoppi og
látum. Halldóra er íþróttafræðingur frá há-
skólanum í Alberta í Kanada með sérmenntun
í íþróttum fatlaðra. Þá er hún með kennslu-
réttindi frá háskólanum og meistarapróf í upp-
eldis- og menntunarfræðum á sviði forvarna.
Morgunleikfimin hefur að svo stöddu verið
lögð af en gamlir þættir eru nú endurfluttir.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Hnébeygjur Styrkjandi fyrir lærin og þjálfar einnig jafnvægi. Beygið hné og mjaðmir eins og
þegar maður fær sér sæti en rétt áður en maður myndi snerta stólsetu þá réttir maður úr sér
aftur og heldur bakinu beinu. Eldra fólk myndi Halldóra láta sitja á stólnum og æfa sig að rísa
af honum og fá sér síðan sæti.
Styrkjandi Æfing fyrir kálfa og ökkla
sem líka er hægt að nota sem jafnvæg-
isæfingu án stuðnings við stólinn.
Grunnteygjuæfing Teygja framan á lærinu. Ef við
hreyfum okkur lítið hafa vöðvarnir tilhneigingu til
að styttast og þess vegna þurfum við líka að gera
teygjuæfingar.
Halldóra Björnsdóttir sá um morgunleikfimi Ríkisútvarpsins
í 21 ár, frá haustinu 1987. Leikfimin hófst árið 1957 og sá
Valdimar Örnólfsson um hana fyrstu 25 árin, en þá tók Jón-
ína Benediktsdóttir við í fimm ár og loks Halldóra.
6|Morgunblaðið
Hafrar eru góðir fyrir líkamann
jafnt að innan sem utan. Þeir inni-
halda hollar fitusýrur, e- og b-
vítamín auk steinefna, svo sem
sinks og járns. Hafragrautur er
hollur og góður en það er líka
gott að setja hafra í ónýtan næl-
onsokk eða annað slíkt, binda fyr-
ir og setja með í baðið. Þannig
verður til fleyti sem er gott fyrir
húðina og viðheldur raka hennar.
maria@mbl.is
Hollir Hafrar eru góðir fyrir líkamann, jafnt að innan sem utan.
Hafra í baðið
n Getur þú ekki viðhaldið eðlilegri þyngd, þrátt fyrir mikinn vilja?
n Ert þú með mat og þyngd á heilanum?
n Þá gætir þú átt við matarfíkn og/eða átröskun að stríða.
Námskeið í janúar: Laugardagana 10. og 17. janúar
Að komast í fráhald:
Fyrsti dagur í „fráhaldi“ - meðferðarmappa afhent -
farið yfir matardagskrá – matreiðslunámskeið.
Einstaklingsmiðuð meðferð hjá MFM miðstöðinni innifelur:
• Fræðslu um matarfíkn og átraskanir, orsakir og afleiðingar.
• Stuðning í hópi og/eða einkaviðtölum.
• Leiðbeiningu og kynningu á leiðum til bata, m.a. 12 spora bataleiðinni.
• Matreiðslunámskeið; lært að elda fyrir nýjan lífstíl
Brautarholti 8, 105, Rvk Sími 568 3868 www.matarfikn.is
Hjá MFM miðstöðinni færð þú: Greiningu, fræðslu, ráðgjöf, einstaklingsmiðaða meðferð og stuðning.
Nokkur orð frá
skjólstæðingum MFM
miðstöðvarinnar:
„Lífið snýst ekki lengur um
mat og megranir“.
„Ég finn ekki fyrir löngun
í dag en var gagntekin af
henni áður en ég byrjaði“.
„Mér hefur aldrei liðið
svona vel í líkamanum og
líka andlega“.