Morgunblaðið - 03.01.2009, Page 14

Morgunblaðið - 03.01.2009, Page 14
14|Morgunblaðið Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Árangur þeirra sem fara íoffitumeðferð á Reykja-lundi er í flestum tilfellumgóður en þó eru ekki allir sem fara í hjáveituaðgerð að með- ferð lokinni. Ludvig Guðmundsson, yfirlæknir næringar- og offitusviðs við Reykjalund, segir að meðferðin á Reykjalundi sé byggð upp án til- lits til aðgerðarinnar. „Raunin er sú að stór hluti fólks sem fer í meðferð- ina fer jafnframt í aðgerð og sá ár- angur er mjög góður. Síðan er hóp- ur sem fer í meðferð en fer ekki í aðgerð. Það má segja að þeir sem ekki fara í aðgerð skiptast í tvennt; annars vegar þeir sem hafa ekki getað nýtt sér það sem við erum að boða og þar af leiðandi ekki náð ár- angri og svo hinir sem hafa náð það góðum árangri að þeir hafa jafnvel hætt við að fara í aðgerð. Það er hópur sem er að skila mjög góðum árangri.“ Atferlismótandi meðferð Ludvig talar um að meðferðin á Reykjalundi sé atferlismótandi með- ferð. „Við reynum að hjálpa fólki að koma góðum skikk á sína lífsháttu með því að skipuleggja þætti eins og hreyfingu og næringu. Í mjög mörg- um tilvikum þarf líka að fjalla um ýmislegt annað til að þetta gangi upp; andlega líðan, þekkingu, fé- lagslegar aðstæður og ýmislegt ann- að sem er gert í hópastarfi og ein- staklingsstarfi. Meðferðin er skipulögð sem kaflaskipt langtíma- meðferð. Eftir að við höfum hitt fólk í fyrsta skipti setjum við upp dag- skrá sem þarf að fylgja heima og við gefum fólki ýmsar leiðbeiningar um skipulag á máltíðum, hvað á að borða mikið og skipulag á hreyf- ingu. Þegar þetta er komið vel á veg tekur við hópameðferð á Reykja- lundi en við tökum yfirleitt um átta manns saman í hóp. Það tekur fimm vikur en þá eru þrír hálfir dagar í viku sem eru skipulagðir með fræðslu, stuðningsmeðferð, mikilli þjálfun, eldamennsku og fleira þannig. Svo gefum við hálfs árs hlé og þá koma hóparnir aftur í þrjár vikur og eins eru það þrír dagar í viku. Þar er fólki kennt allt sem tengist heilbrigðu líferni, þetta er ekki hugsað sem kúr eða átak held- ur breyting sem á að vara því það er eina leiðin til að árangur endist.“ Eftirfylgd í tvö ár Ludvig segir að í raun sé unnið með fólk í rúmlega þrjú ár samtals því eftir meðferðina á göngudeild- inni sé fylgst með hópnum í tvö ár. „Hóparnir koma í heimsókn til okk- ar sex sinnum á næstu tveimur ár- um þar sem við fylgjumst með hvernig þeim gengur, hvort sem fólk hefur farið í aðgerð eða ekki. Við sleppum sem sagt ekki af þeim hendinni fyrr en eftir það. Við bjóð- um upp á aukastuðning þar fyrir ut- an ef þess er þörf,“ segir Ludvig og viðurkennir að það sé þó nokkuð um að fólk hætti í meðferðinni. „Margir sem byrja á göngudeild eru greini- lega ekki tilbúnir til að takast á við málin og þá verður ekkert úr neinu. Við reynum að hjálpa þeim og at- huga hvað það er sem truflar þá í að ná árangri. Sumir eru bara ekki til- búnir að gefa okkur kost á að hjálpa sér og þá kemst það ekkert lengra. Það sem getur truflað fólk í að ná árangri er oftast í kollinum á þeim, lífsskoðanir, andleg vanlíðan og ým- islegt fleira.“ Aukin eftirspurn Það eru um 100 nýir sjúklingar á ári sem fara í gegnum meðferð á göngudeildinni. „Um 80 prósent af þeim fara í hjáveituaðgerð. Við er- um eingöngu að fást við fólk sem er með alvarlega offitu og það hefur verið aukin eftirspurn undanfarin ár. Öll okkar plön hafa hrunið því við gerðum ekki ráð fyrir því að fá eins mikið aðstreymi og er. Það er því næstum ársbið eftir því að kom- ast að og biðtíminn á eftir að lengj- ast enn meira vegna mikillar eft- irspurnar. Þegar ég gerði áætlanir fyrir árið 2008 bjóst ég við að það myndu berast hingað um 180-200 beiðnir á ári sem ég reyndar byggði ekki á neinu öðru en óljósri tilfinn- ingu því það vantar alla tölfræði um hvað það eru margir í þessum spor- um á Íslandi. En þróunin síðustu ár er samt þannig að árið 2005 og 2006 komu hingað um 170-180 beiðnir hvort árið. Árið 2007 voru beiðn- irnar 260 og árið 2008 voru þær yfir 300.“ Nauðsynleg hjálp Spurður af hverju aðsóknin sé sí- fellt að aukast segir Ludvig að ástæðan fyrir því að fólk sé alltaf að fitna sé flókið samspil, bæði á sam- félagslegum grunni og einstaklings- legum grunni. „Þegar þróunin fyrir samfélagið í heild er skoðuð þá eru mjög breyttar forsendur í lífi fólks og allar aðstæður hafa gert það að verkum að næringarþörf og orku- þörf fólks í daglegu lífi hefur minnk- að snarlega. Orkuþörf meðalkarl- manns hefur sennilega minnkað um 800-1000 hitaeiningar yfir daginn á síðustu 30-40 árum af því að við hreyfum okkur minna og öll störf eru léttari. Á sama tíma höfum við aðgang að meiri næringu en nokkru sinni áður. Það eru þessi tvö atriði sem vega þyngst en svo er það líka spurning um menningu og að maður hafi vanist því að borða ákveðið magn af mat og ákveðna tegund af mat sem miðaðist við gömlu þarf- irnar. Svo erum við með breyttar þarfir og þá verður útkoman sú að fólk fitnar,“ segir Ludvig en tekur fram að meðferðin á Reykjalundi sé bara til að bjarga þeim sem komið er í óefni fyrir. „Ef það á virkilega að taka á þessu vandamáli sem þjóð- félagslegu vandamáli þá þarf að vinna það á allt öðrum vettvangi. En það er hins vegar nauðsynlegt að hjálpa einstaklingum sem eru svona staddir, annars kaffærist heilbrigð- iskerfið því offita er áhættuþáttur fyrir marga sjúkdóma. Það var gerð heilsuhagfræðileg úttekt á þessu fyrir nokkrum árum og samkvæmt henni er meðferðin á Reykjalundi búin að borga sig upp á átta árum í minnkuðum heilbrigðiskostnaði og minni veikindafjarvistum. Það eru ekki margar meðferðir sem geta sýnt fram á slíkt.“ Morgunblaðið/RAX Reykjalundur Á Reykjalundi er hægt að fara í offitumeðferð en eingöngu þeir sem eru með alvarlega offitu geta sótt um að komast að. Aukin aðsókn að offitumeðferð Ludvig Guðmundsson: „Við reynum að hjálpa fólki að koma góðum skikk á sína lífsháttu með því að skipuleggja þætti eins og hreyfingu og næringu.“ Það er sífellt meiri aðsókn að offitumeðferð á Reykjalundi þó ekki kjósi allir að fara í hjá- veituaðgerð. Það voru yfir 300 beiðnir um meðferð sem bárust Reykjalundi árið 2008 og ekkert lát virðist á. • Vorönn hefst miðvikudaginn 7. janúar • Morguntímar og síðdegistímar • Jóga fyrir börn með AD/HD Skráning og nánari upplýsingar: www.kristinsjofn.is og GSM 899-7809. Jóga með Kristínu Sjöfn í Rósinni Næringarsetrið er fyrirtæki fjögurra næringarfræðinga sem býður upp á faglega ráðgjöf og fræðslu um mataræði og heilbrigðan lífsstíl: -Fyrir einstaklinga -Fyrir hópa, fyrirtæki og starfsmannafélög http://www.naeringarsetrid.is/, Sími: 6916636, Email: naering@naeringarsetrid.is Næringarsetrið ehf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.