Morgunblaðið - 03.01.2009, Page 18
18|Morgunblaðið
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
Boltinn fór að rúlla þegarég fór til heilpraktikersog byrjaði að lesa mérmikið til um unninn mat.
Þá sá ég og fann að mér leið ekki
vel af hvítu hveiti og hrísgrjónum,
mjólk, sykri og djúpsteiktum mat.
Þegar ég eignaðist stelpuna mína,
sem er orðin sex ára, varð ég mjög
upptekin af hollara mataræði og
vildi venja hana á hollan og nær-
ingarríkan mat strax í barnæsku.
Ég skrifaði hjá mér sniðugar upp-
skriftir af því sem ég gaf dóttur
minni og varð smám saman færari
í að gera hollan mat þar sem ég
var alltaf í eldhúsinu að prófa. Það
endaði síðan með því að ég gaf út
bókina Hvað á ég að gefa barninu
mínu að borða? þar sem finna má
fróðleik og uppskriftir sem sumar
hverjar henta allri fjölskyldunni,“
segir Ebba Guðný.“
Gróft korn bragðbetra
Í dag borðar Ebba Guðný mikið
af gróft möluðu spelti og pasta úr
því, grauta eins og kínóa-, hafra-
og grjónagraut úr hýðishrís-
grjónum og mikið af grænmeti, en
hún gerir oft grænmetissúpur og
pottrétti. Mikið salat er líka á mat-
seðlinum og þær mjólkurvörur sem
hún borðar eru lífrænar og sykr-
inum skipt út fyrir agave-síróp.
Hún vill þó taka það fram að hún
sé ekki fullkomin hvað þetta varð-
ar og borði stundum sælgæti og
annað slíkt, en í heild reyni hún
dags daglega að borða hollan mat
enda sé hann svo góður. „Grófa
kornið finnst mér bragðbetra og
bragðmeira, vöfflur baka ég til
dæmis úr spelti og enginn kvartar
undan því. Það hefur alltaf gengið
mjög vel að gefa dóttur minni
þennan mat og til að byrja með
borða börnin líka svo lítið að mað-
ur æfist í rólegheitum að útbúa
matinn fyrir þau. Síðan er líka
mikilvægt að muna að við menn-
irnir erum órjúfanlegur partur af
náttúrunni og jörðinni hvað varðar
fæðu, því er mikilvægt að fara vel
með jörðina og nota frekar vist-
væn hreinsiefni því þetta endar,
má segja, allt í brokkólíinu þínu,“
segir Ebba Guðný.
Fólk glatt og hissa
Í bókinni er útskýrt hvernig
meðhöndla skuli ávexti og græn-
meti, hvar það geymist best,
hvernig það eigi að líta út ferskast
og hvort sé betra að flysja vissar
tegundir eður ei. Samhliða bókinni
hefur Ebba Guðný haldið nám-
skeið með sama nafni þar sem hún
fjallar um næringarefni og gefur
fólki góð ráð hvað varðar mat-
aræði yngri og eldri barna auk
þess sem fólk fær að smakka mis-
munandi grauta og grænmet-
issúpur svo fátt eitt sé nefnt. „Það
er mjög skemmtilegt að halda
námskeiðin því fólk verður svo
glatt og hissa á því hvað þessi
matur er í raun góður. Ég hef
haldið námskeið fyrir hópa og ein-
staklinga en einnig fyrir mömmu-
morgna og aðra slíka hópa,“ segir
Ebba Guðný.
Innleitt í grunnskóla
Dóttir Ebbu Guðnýjar er nú
byrjuð í grunnskóla og móðir
hennar segist vera ánægð með að
þar er salatbar og stundum græn-
metisréttir í boði í mötuneytinu.
Mikill áhugi sé á að innleiða enn
frekar hollan mat í mötuneyti skól-
ans og segir Ebba Guðný að gott
væri að meiri vakning yrði í þess-
um málum í grunnskólunum. Á
leikskólunum sé staðan í raun
betri því þar hafi orðið hug-
arfarsbreyting síðastliðin ár og
nú víða hætt að nota msg í mat-
reiðslu og hvítu korni og pasta
sleppt. Það hái vissulega skól-
unum að þar er eldað fyrir mun
fleiri börn og oft sé eldunar-
aðstaða lítil sem engin, sem von-
andi verði hægt að ráða bót á til
að hægt sé að elda mat frá
grunni. „Ég er ekki hlynnt því að
tala um fitu í nálægð við krakka
en það er staðreynd að offita
eykst, sem er áhyggjuefni. Í því
samhengi má benda á að ef
krakkar borða brauð úr grófu
korni og hýðishrísgrjónagraut og
slíkt þá borða þau minna þar sem
þetta eru ekki innantómar hita-
einingar. Líkaminn er nefnilega
svo sniðugur að hann gefur
ákveðin skilaboð þegar hann er
mettur af vítamínum og næringu
um að hann vilji ekki meir. Það
þarf ekki endilega að vera dýrara
að kaupa hollari mat því ég held
að fólk nýti hann betur auk þess
sem margur óþarfi dettur út í
staðinn og fólk borðar í raun
minna,“ segir Ebba Guðný.
Gulróta- og eplasúpa
ljúffeng og dásamlega fljótleg
½ msk kókosolía
½ blaðlaukur
Hnífsoddur engiferduft (má
sleppa)
5 gulrætur
1 epli
½ lítri vatn
1 ger- og msg-laus grænmetis-
teningur
Aðferð: Blaðlaukurinn steiktur
í kókosolíunni með engiferduftinu
í smástund, passið að steikja á
lágum hita svo hann mýkist en
brenni ekki. Á meðan eru gulræt-
urnar þvegnar og hreinsaðar ef
ljótar og eplið þvegið og afhýtt.
Allt skorið smátt og hent út í
sem og vatni og teningi. Látið
sjóða í 10-15 mínútur.
Sveskjur með epli og peru
1 epli, þvegið, afhýtt og kjarn-
hreinsað
1 pera, þvegin, afhýdd og kjarn-
hreinsuð
2 lífrænar sveskjur
¼ bolli af hreinum eplasafa
Aðferð: Sjóðið sveskjurnar í
eplasafanum í um það bil þrjár
mínútur. Setjið eplið og peruna
út í og sjóðið í um eina mínútu í
viðbót. Maukið allt saman. Mauk-
ið má frysta en það geymist í
kæli í um tvo daga og frysti í um
tvo mánuði. Hér má líka alveg
nota tvö epli eða tvær perur.
Passar vel saman við graut og
einnig saman við hreina lífræna
jógúrt. Munið að setja ávallt 1-2
tsk af kaldpressaðri olíu út í
maukið fyrir barnið ykkar.
Linsu- og grænmetissúpa
1 msk lífræn kaldpressuð kók-
osolía
1 rauðlaukur
1 slétt msk paprikukrydd
2 lárviðarlauf
2 hvítlauksrif
2 ½ dl rauðar linsubaunir, skol-
aðar undir köldu vatni í sigti
3 gulrætur
1 rauð paprika
½ sæt kartafla
2 kartöflur (mega líka vera rófur)
1 lítri vatn
1 dós (um 400 g) niðursoðnir
tómatar
3 lífrænir og gerlausir græn-
metisteningar
Aðferð: Laukur, hvítlaukur,
krydd og lárviðarlauf mýkt í olí-
u-nni í um 10 mínútur við lágan
hita. Linsunum bætt út í og öllu
grænmetinu. Mýkt í dálitla
stund. Þá er vatni og tómötum
bætt út í sem og grænmetisten-
ingi. Suðan látin koma upp og þá
er hitinn lækkaður og allt látið
malla í um 20 mínútur.
Grófmeti fyllir betur í magann
Morgunblaðið/Golli
Gefur góð ráð Ebba Guðný Guðmundsdóttir segir mikilvægt að venja börnin snemma við hollustu.
Upp úr tvítugu fann
Ebba Guðný Guð-
mundsdóttir að hún var
ekki jafnheilsuhraust
og hún hafði verið, varð
oftar illt í maganum og
lasin. Í framhaldi af því
fór hún að skoða mat-
aræði sitt betur og
komst að því að hún
þoldi illa ýmsa fæðu.
YOGA •YOGA • YOGA
- RÉTT SLÖKUN losar um spennu í vöðvum, róar og kyrrir
hugann.
- LÍKAMLEG ÁREYNSLA Í ÆFINGUM. Þá styrkjum við vöðva,
liðbönd, liðamót, mýkjum hrygginn og örvum blóðrás.
- RÉTT ÖNDUN þýðir að anda djúpt og vel.
- RÉTT FÆÐI sem stjórnast af hófsemi og fjölbreytni.
- JÁKVÆTT HUGARFAR. Að beina huganum jákvætt að
verkefnum dagsins strax að morgni.
Morgun-, hádegis-, síðdegis- og kvöldtímar.
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, sími 588 5711 og 694 6103
www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is
Sértímar fyrir:
barnshafandi konur og byrjendur,
einnig sértímar fyrir lengra komna.
Ný og betri
Bjargey Aðalsteinsdóttir íþrótta-
fræðingur talar um hvað við getum gert
til að bæta heilsuna og auka vellíðan.
Aukum hamingju okkar
Fjölmiðlakonan Sirrý ræðir um
sjálfstraust á erfiðum tímum.
Hafðu það gott
Opinn kvennafyrirlestur á Hótel Sögu (Salur: Harvard II)
Laugardaginn 24. janúar kl. 10-13 (mæting 09:45)
Morgunstund gefu gull í mund.
Fyrirlestrar, uppákomur, dans og gleði.
Verð: 4.500 kr. Afsláttarverð: 3.900 kr. ef greitt er 3 dögum fyrirfram.
Skráning og nánari upplýsingar á www.sirry.is Allir velkomnir.
Á næstunni,,Hafðu það gott” áReykjanesi, Akureyri,Vestmanneyjumog víðar.