Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 03.01.2009, Blaðsíða 20
20|Morgunblaðið Stress gerir engum gott en margir þjást af því þegar vinna og einkalíf taka sinn toll í amstri dagsins. Mikilvægt er að reyna að draga sem mest úr stressi og er það hægt með ýmsum ráðum. Eðlilegar tilfinningar Sættu þig við tilfinningar þínar, það er ósköp eðlilegt að finna fyrir reiði, sorg og trega öðru hvoru. Taktu þér tíma í að losa um þær tilfinningar og ekki byrgja þær inni. Gráttu eins og þú þarft og talaðu við vini þína og þína nán- ustu, sumum finnst líka gott að skrifa niður tilfinningar sínar. Jákvæðni og bjartsýni Reyndu eins og þú getur að við- halda jákvæðu viðhorfi. Það getur haft mikið að segja í stressandi að- stæðum og þarf ekki að þýða að viðkomandi sé í afneitun heldur miklu frekar að auka von. Já- kvæðni hefur líka góð áhrif á sjálfsálitið sem er gott í erfiðum aðstæðum. Til að halda í bjartsýn- ina er líka mikilvægt að forðast sjálfsgagnrýni, vera stoltur af gjörðum sínum og reyna að sjá spaugilegu hliðina á þessu öllu saman. Öflugt félagslíf Komdu þér upp öflugu félagslífi og mundu eftir mikilvægi þess að halda góðu sambandi við vini og fjölskyldu. Ánægjulegar sam- verustundir með góðu fólki sem maður þekkir vel hafa mikið að segja, draga úr einmanaleika og leiða og þannig um leið úr stressi. maria@mbl.is Ærandi Stress er bæði óhollt og leiðinlegt fyrir alla. Jákvæðni mikilvæg ínbomba sem gefur gott í kroppinn. Einnig fæ ég mér te, ristað gulrót- arbrauð (úr Yggdrasli, rosalega gott) með ólífuolíu (extra) og tóm- atsneiðum og linsoðið egg (brúnt).“ Í vinnunni „Kem til vinnu kl. 8.30 og þá fæ ég mér fyrsta kaffibolla dagsins, að þessu sinni var hann með lítilli gusu af flóaðri mjólk (vil alls ekki of mikla mjólk, þá sjaldan ég fæ mér heita mjólk í kaffið). Um 9.30 lauma ég mér í ísskápinn í vinnunni og fæ mér bita úr ferskum ávöxtum; ananas, melónu og appelsínu. Um 10.30 er það annar kaffibolli. Nú einfaldur espresso. Svo heppilega vill til að í vinnunni er ansi góð espressovél. Líf- ið er of stutt fyrir vont kaffi. Öðru hvoru er það svo vatnsglas, helst kolsýrt.“ Í hádeginu og seinnipart „Kom við í Heilsuhúsinu, skellti í mig einni kjúklingarúllu, drakk vatn með og gekk út með boozt (soja- mjólk, skógarber, prótein og fleira.) Líklega urðu espressóbollar alls þrír eftir hádegi, einfaldur í hvert skipti. Seinnipartinn var komin þessi líka fína súkkulaðikaka í kaffistofuna. Svona alvöru, frönsk og súkku- laðimikil. Þeyttur rjómi með, ekki verra! Ég elska súkkulaði, en þó að- eins dökkt.“ Kvöldmaturinn „Í kvöldmatinn voru kjúklinga- bringur að austurlenskum hætti með rauðlauk, heilum hvítlauk, heilum engifer, chilí, sítrónugrasi, kórían- der, basilíku, límónuberki og -safa, ólífuolíu og kóríanderfræjum sem mulin voru í mortéli. Eldað með ýmsu góðu kryddi, svo sem kúmíni, kardimommum, tamaríni, muldum pipar og einni dós af kókosmjólk. Með þessu er borið fram dýrindis sal- at og hýðishrísgrjón. Í salatinu var meðal annars eikarlauf, tómatar, avocado, rauðlaukur, gulrætur, kórí- Eftir Maríu Ólafsdóttur maria@mbl.is Matseðill Þorfinns: Morgunn: „Vakna kl. 7.00 og fer fram úr um það bil korteri síðar. Eftir tann- burstun fæ ég mér fyrst stórt vatns- glas með safa úr hálfri límónu sem er alveg nauðsynlegt fyrsta skref. Flesta morgna vikunnar fáum við okkur pressaðan ávaxtasafa og að þessu sinni fór heill ananas og tvær appelsínur í pressuna. Alger vítam- ander, basilíka og límónusafi. Með matnum var drukkin ein rauðvín, fyrir tvo, og sódavatn.“ Betra en hjá þorra landsmanna „Samkvæmt þessum matseðli virðist mataræði Þorfinns einkar hollt og hann hugsar betur um mat- aræðið en margir, sem er hið allra besta mál. Ég sé að hann er inn- stilltur á þessa lífrænu línu, fær sér til að mynda brúnt egg auk þess sem hann er duglegur að fá sér ávexti. Um leið fær hann sér hefðbundinn mat inn á milli og kjarngóða súkku- laðiköku og rauðvín sem mér finnst ágæt tilbreyting í. Matseðillinn upp- fyllir þörf á öllum vítamínum, stein- efnum og trefjum svo og kolvetni, fitu og próteini. Satt best að segja kemur þetta mataræði hans mun betur út en hjá þorra landsmanna. Hlutfall af harðri fitu og viðbættum sykri er afskaplega lágt og Þorfinn- ur borðar líka jafnt yfir daginn sem er mikilvægt. Hann þarf heldur ekki að hafa áhyggjur af koffínneyslunni, hún er innan eðlilegra marka,“ segir Ólafur. Engan óhollustustimpil Almennt segir Ólafur að sér finn- ist fólk vera orðið mun upplýstara og vanda sig meira við fæðuval en það gerði fyrir 10 til 15 árum. Neysla fólks á ávöxtum og grænmeti hafi til að mynda aukist og dregið hafi úr neyslu á dísætum afurðum. Margir þurfi vissulega að taka sig á í mat- aræðinu, en á móti komi vaxandi hópur fólks sem ætli sér að temja sér svo afar hollt neyslumunstur að það fer að borða of lítið og leiðist jafnvel út í að svelta sig. Almennt mataræði sé best og út frá því megi segja að Þorfinnur temji sér dálítið ýkt mat- aræði, en hann fari þó ekki út fyrir nein mörk og gæði sér til að mynda á súkkulaðiköku. Slíkt sé nauðsynlegt þar sem öllum finnist okkur gott að fá okkur tertur og slíkt og ekki megi alltaf setja óhollustustimpil á slíkan mat. „Aðalspurningin er hvernig við setjum matinn saman. Ég myndi gjarnan vilja að fólk horfði frekar á hvernig heildin kemur út en að segja „þetta er hollt en þetta er óhollt“. Það er fátt eins skemmtilegt og að borða bragðgóðan mat og við eigum að njóta þess. Samviskubitið kvelur og getur orðið til þess að maður borðar helmingi meira en maður hefði annars gert,“ segir Ólafur. Samsetning matar aðalspurningin Morgunblaðið/Árni Sæberg Ólafur Gunnar Sæmundsson: „Það er fátt eins skemmtilegt og að borða bragðgóðan mat og við eigum að njóta þess.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Þorfinnur Ómarsson: „Ég elska súkkulaði en þó aðeins dökkt.“ Fjölbreytt og næringarríkt mataræði er lík- amanum nauðsynlegt. Hér skoðar næringarfræð- ingurinn Ólafur Gunnar Sæmundsson matseðil Þorfinns Ómarssonar á hefðbundnum degi og segir hvernig honum líst á. Styrkur og hugarró www.sagamedica.is Fáanlegt í lyfja- og heilsuvöruverslunum og völdum stórmörkuðum Angelica er íslensk náttúruafurð úr ætihvönn. Angelica inniheldur heilsubætandi efni sem geta dregið úr kvíða og gefið þér aukna orku. Sæktu styrk í íslenskt náttúruafl!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.