Morgunblaðið - 03.01.2009, Síða 22
22|Morgunblaðið
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
Yesmine segir að sér finnisthugarfar Íslendinga tilhreysti og hollustu hafabreyst gífurlega und-
anfarin ár og sé í raun tvennt ólíkt
frá því að hún fór að starfa hér fyrst
fyrir áratug. Fólk hreyfi sig almennt
meira nú og haldi sér í góðu lík-
amlegu formi. Ekkert sé út á það að
setja að fólk ákveði að taka sig á
þegar nýtt ár rennur upp heldur
gott að fólk setji sér markmið, en
betra sé þá að taka góðan tíma í um-
breytingar.
Fara rólega af stað
„Það er um að gera að ætla sér
ekki of mikið til að byrja með og
búa sér frekar til langtímaplan.
Sumir þurfa einfaldlega að venja
sig á að mæta og vera í ræktinni og
þá er nóg að vera bara í hálftíma til
að byrja með, svo lengi sem maður
mætir þrisvar eða fjórum sinnum í
viku. Það er svo margt í boði í dag
til að hugsa vel um sjálfan sig og all-
ir ættu að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi. Hvað varðar mataræði
ætla ég að tileinka mér að borða
meira af óunnum mat á nýju ári, til
dæmis ferskt lambakjöt, fullt af
grænmeti og kínóa sem er prótein-
ríkt og gott. Ég fór til Indlands ný-
lega þar sem ég lærði meira um
aruveda-fræðin og þar er lögð
áhersla á að borða slíkan mat. Enda
held ég að slíkt mataræði hafi tví-
mælalaust góð áhrif á líkamann þar
sem tengslin milli þess sem við
borðum og hvernig okkur líður eru
ótrúlega sterk og okkur líður betur
ef við borðum náttúrulegri mat,“
segir Yesmine. Hún segir skipta
máli að fólk fræðist um það sem það
borði og gefi líkamanum rétta nær-
ingu til að viðhalda eðlilegri
brennslu hans.
Hollt og gott
Yesmine gefur hér þrjár hollar og
góðar uppskriftir sem finna má í ný-
útgefinni uppskriftabók hennar
Framandi & freistandi 2, indversk &
arabísk matreiðsla.
Papaya- og granateplasalat
1 stór papaya eða 2 minni kjarn-
hreinsuð og skorin í litla bita
1 granatepli
100 g spínat
2 tsk hunang
Safi úr einni límónu
Nýmulinn svartur pipar
Myntulauf til að skreyta
Aðferð: Setjið spínatið í klakavatn
og látið liggja í 30 mínútur. Finnið
fallega stóra skál sem framreiða á
salatið í og setjið papayabitana í
hana. Skerið granateplið í helming
og sláið með sleif í bakhliðina svo
fræin detti í skálina. Þerrið spínatið
og bætið út í. Setjið síðan hunang,
límónusafa og pipar í litla skál og
blandið vel saman. Hellið blöndunni
svo yfir salatið og skreytið með
myntu.
Papaya inniheldur ensím sem
heitir papain og er ákaflega gott fyr-
ir meltingu próteina.
Hunangs-harissa-kjúklingur
3-4 kjúklingabringur eða -leggir
2 msk hunang
2 laukar skornir í sneiðar
Ólífuolía
Harissa
Aðferð:
Skerið kjúklinginn í strimla.
Blandið saman harissa og hunangi
og marinerið kjúklinginn í blöndunni
í sex tíma eða helst yfir nótt í ísskáp.
Hitið ofninn í 200°C, dreifið lauknum
í botninn á eldföstu móti og hellið ör-
litlu af ólífuolíu yfir. Hellið harissa-
blöndunni með kjúklingnum yfir,
setjið lok eða álpappír á og stingið
inn í ofninn í 20 mínútur (25-35 mín.
ef notaðir eru leggir). Berið fram
með hrísgrjónum og góðu salati.
Harissa
2 rauðar paprikur
2-5 rauð chilí (eftir smekk)
2-3 hvítlauksgeirar fínt skornir (eftir
smekk)
1 tsk kúmínduft
½ tsk kóríanderduft
2 msk ólífuolía
Salt
Aðferð: Fræhreinsið paprikuna
og chilíin, setjið á bökunarplötu og
ristið í ofni. Takið úr ofninum, kælið
og pillið skinnið af. Setjið í mat-
vinsluvél ásamt hvítlauk, kúmen og
kóríander. Blandið olíunni varlega
saman við og saltið eftir smekk.
Framandi uppskriftir Tengslin á milli þess sem við borðum og líðan okkar eru ótrúlega sterk að mati Yesmine.
Sterk tengsl milli
næringar og líðanar
Harissa kjúklingur Með papriku, chillí og hvítlauk.
Yesmine Olsson hefur
lengi verið viðloðandi
líkamsrækt, bæði sem
einkaþjálfari, danshöf-
undur og nú sem höf-
undur bóka þar sem
finna má hollar og
framandi uppskriftir.
Yesmine Olsson Einkaþjálfari,
danshöfundur og rithöfundur.
MECCA
SPA
MECCA
SPA
M E Ð G Ö N G U
J Ó G A