Morgunblaðið - 03.01.2009, Síða 24

Morgunblaðið - 03.01.2009, Síða 24
24|Morgunblaðið Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu svanhvit@mbl.is Slökun er mjög mikilvæg fyrirbæði líkamlega og andlegaheilsu en ekki allir gefa sértíma til að sinna slökun nægilega. Margrét Hákonardóttir, geðhjúkrunarfræðingur á geðsviði Landspítalans á Kleppi, segist alltaf sjá það betur og betur hvað það er mikilvægt að taka frá tíma til að slaka á. „Það er ekki síst mikilvægt að slaka á huganum því hann er oft erf- iður. Hugurinn er í stöðugri vinnu og hugarhvíld eða að kyrra hugann er því mjög mikilvægt í dagsins önn. Ég held að flestir finni fyrir því að um leið og líkaminn vaknar á morgnana er hugurinn farinn af stað og stund- um áttar maður sig varla á því. Það er ansi margt sem gerist og er okkur ómeðvitað og segja má að lífið sé stundum eins og maður sé í hring- ekju. Slökunin getur því verið ansi þægileg hvíld.“ Innbyggð slökun Margrét talar um að hver og einn hafi bara fulla einbeitingu í um tvo tíma, hvort sem það er að vinna við tölvu eða annað. „Það er ákveðin slökun innbyggð í líkamann en í nú- tímanum höfum við lært að hunsa það. Ef við förum að hlusta betur á líkamann birtist slökunin til dæmis í því að við getum orðið þreytt örstutta stund, kannski svolítið svöng eða þurft að fara á klósett. Við slökum meira að segja á þegar við geispum því það er merki um slökun í tauga- kerfinu. Mér finnst alltaf gaman að sjá þegar fólk geispar þar sem þetta eru ósjálfráð viðbrögð líkamans. Það að fá störu í örfáar mínútur er líka merki um dáleiðslu hversdagsins en það er nokkurs konar afslöppun sem er innbyggð í okkur. Að þurfa að teygja sig ósjálfrátt er líka eitt ein- kenni slökunar en svo er vitanlega mjög gott að teygja sig meðvitað,“ segir Margrét sem trúir því að fólk sé smám saman að læra að hlusta betur á líkamann. Endurnýjun orkunnar Margrét segir að vegna þessarar gríðarlegu spennu og streitu sem er í samfélagi okkar sé gott að stunda slökun. „Það er mjög einstaklings- bundið hvernig fólk vill slaka á en all- ir ættu þó að vera meðvitaðir að taka eftir eigin öndun. Öll þurfum við ein- hvern frið á hverjum degi og stund- um þurfum við að taka okkur tíma til þess, sérstaklega ef umhverfið er ekki meðvitað um það. Ég trúi því að eftir nokkur ár verði það almennt við- urkennt að nauðsynlegt sé að slaka á, til dæmis með því að halla sér aftur í stólnum í vinnunni, hvíla sig í 10-15 mínútur og fá sér jafnvel blund. Þá erum við í raun að endurnýja orkuna og verðum öflugri starfskraftar eftir á. Það er ekki nauðsynlegt að hafa ró og næði til að slaka á. Það er þessi einvera sem er mjög mikilvæg, hvort sem það eru fimm eða fimmtán mín- útur. Það getur oft verið erfitt að vera einn með sjálfum sér því þá koma all- ar hugsanirnar og þær eru okkur, ósköp venjulegu fólki, stundum erf- iðar. Hugleiðsla kemur í veg fyrir að við festumst í hugsunum okkar en þá tökum við eftir því sem er að gerast í huganum og leyfum því bara að streyma í gegn.“ Slökun tvisvar á dag Hin náttúrulega hvíldarþörf lík- amans eru 10-20 mínútur í senn að sögn Margrétar. „Slökun er mjög mikilvæg fyrir líkamlega og andlega heilsu og því er best að gera slök- unina að daglegum hluta lífsins. Þetta er ekkert endilega spurning um tíma heldur líka meðvitund því ef við huns- um þessa slökunarþörf þá opnum við frekar leið fyrir ýmsa sjúkdóma sem eru í okkar samfélagi. Lífið er svolítið flókið og allir hafa orðið fyrir ein- hvers konar áföllum, bara misþung- um. Það er misjafnt hvernig fólk hef- ur náð að vinna úr sínum áföllum eða hvernig það vinnur úr málunum þeg- ar eitthvað gamalt kemur upp í hug- ann. Slökun getur því komið sér vel og best er að taka sér tíma í slökun daglega og jafnvel oftar á dag, í ein- hverri mynd. Á meðvitaðan hátt er hægt að slaka á við alls konar að- stæður. Í slökun er í raun verið að endurhlaða heilbrigða orku en andleg og líkamleg orka eru samhangandi. Við náum til dæmis að einbeita okkur betur þegar við slökum á. Einnig er líkamsþjálfun eitt af því sem losar okkur við streitu og er þar af leiðandi mjög mikilvæg,“ segir Margrét og viðurkennir að það geti þurft þjálfun til að ná góðri slökun. „Æfingin skap- ar meistarann og best er að prófa slökunina aftur og aftur. Bæði er hægt að nota eitthvert utanaðkom- andi efni sem og að æfa sig sjálfur og finna sína leið. Hvaða leið við notum til að slaka á fer eftir sjálfsvitund okkar. Svefninn er líka hluti af þessu og að vera meðvitaður um allt sem hefur með heilsu okkar að gera, lík- amlega heilsu og geðheilsu.“ Morgunblaðið/Valdís Thor Margrét Hákonardóttir: „Það er ekki nauðsynlegt að hafa ró og næði til að slaka á. Það er þessi einvera sem er mjög mikilvæg.“ Í eðli sínu er hugurinn ólga og það er því mik- ilvægt að hvíla hann daglega, jafnvel tvisvar á dag. Slökun er því mjög mikilvæg fyrir heilsuna en það þarf ekki endilega ró og næði til að slaka á. Mikilvægt að hvíla hugann í dagsins önn Afslappandi Allir þurfa einhvern frið á hverjum degi til að hvíla hugann. Photos Að slaka á og róa hugann  Þegar við vöknum að morgni er gott að velja falleg orð til þess að fara með, jafnvel upphátt. Þetta er þá eins og sjálfstal og getur orðið bæn til Guðs eða æðri máttar.  Hægt er að taka frá ákveð- inn tíma dags til þess að æfa slökun eða hugleiðslu en einnig er hægt að þjálfa meðvitundina hvert andartak.  Gott er að æfa okkur í að hlusta á hina náttúrulegu hvíldarþörf líkama og huga, sem birtist á um það bil tveggja tíma fresti:  Anda meðvitað, leyfa okkur að andvarpa.  Horfa á fallegan hlut eða landslag  Teygja okkur, sérstaklega efri hluta líkamans  Hvíla hugann augnablik nokkrum sinnum á dag  Fyrir svefn er gott að lesa eitthvað andlega uppbyggjandi jafnvel stuttan texta sem við getum endurtekið í huganum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.