Morgunblaðið - 03.01.2009, Qupperneq 26
26|Morgunblaðið
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
Ámánudagseftirmiðdegi hljómarfjörug tónlist í æfingasal Curves þarsem saman eru komnar konur á öll-um aldri. Meðal kvennanna í hópn-
um eru systurnar Þuríður Bryndís og Lára
Guðmundsdætur sem æft hafa saman síðan ár-
ið 2006.
Styrkist mikið
„Mér líkar vel að æfa hér og þjálfunin tekur
styttri tíma heldur en á öðrum stöðvum og mér
finnst þægilegra að æfa bara með konum.
Þessi æfing hentar mér mjög vel en áður en ég
byrjaði hér synti ég og gekk reglulega en hef
ekki æft áður á öðrum líkamsræktarstöðvum.
Samhliða reglulegum æfingum hér hef ég líka
breytt mataræðinu sem hefur gengið vel. Mað-
ur styrkist mikið af því að vera í einhverri
hreyfingu og við komum alltaf saman syst-
urnar sem er hvetjandi,“ segir Þuríður Bryn-
dís, „og skiptumst á að keyra meira að segja,“
skýtur systir hennar inn í.
Aldrei jafn dugleg
„Upprunalega vorum við þrjár sem komum
saman og þetta er yndislegur staður fyrir kon-
ur eins og okkur að koma á. Ég labba mikið og
við systurnar höfum verið duglegar að hreyfa
okkur úti við en þetta styrkir mann aukalega
og er allra meina bót. Lengi vel var ég líka í
hestamennsku og ýmislegt hefur maður gert í
gegnum tíðina en ég hef aldrei verið jafn dug-
leg að stunda neitt eins og þetta. Þetta þarf
ekki að taka nema hálftíma eða klukkutíma ef
maður er mjög duglegur. Ég hef tekið mat-
aræðið mikið í gegn líka, borða hafragraut á
morgnana, ávexti og hollustu út í gegn,“ segir
Lára.
„Maður reynir að taka mataræðið eins mikið
í gegn og hægt er en svo auðvitað sleppir mað-
ur sér stundum og við eigum okkar sukkdaga
en annars ræðum við mikið saman um mat-
aræði. Þegar komið er á þennan erfiða aldur
eftir 45 ára þá finnur maður að breyting verð-
ur á og maður verður að passa sig,“ segir Þur-
íður. „Já, það hægist náttúrlega á brennslu,“
samsinnir Lára „og bráðnauðsynlegt að hugsa
svolítið um sig þegar maður er kominn á þenn-
an aldur og maður verður miklu hressari,“
bætir hún við.
Hreyfing munar miklu
„Ég hef æft hér í um tvo mánuði og sjaldan
verið jafn ánægð enda er rólegt og þægilegt að
æfa hér og þjálfararnir mjög hjálpsamir. Frá
því að ég var 7 ára hef ég æft ýmsar íþróttir,
mótorkross, fótbolta, box og dans. Að koma
hingað er mín líkamsrækt í dag og hér veit ég
nákvæmlega hvað ég er að gera og get fylgst
með því hvort ég sé að brenna of litlu eða
miklu. Ég reyni að koma þrisvar í viku og
finnst muna miklu að hreyfa mig,“ segir Berg-
lind Valdimarsdóttir.
Heimilislegt andrúmsloft
„Ég hef starfað sem leiðbeinandi í stöðinni
nærri frá byrjun og sé til þess að konurnar
geri allt rétt. Stöðin hefur verið opin í þrjú ár
og það æfa hjá okkur um 450 konur í dag. Hér
er mjög heimilislegt andrúmsloft og stöðin er
ætluð konum á öllum aldri. Við leiðbeinum
konunum með mataræði og þjálfun en það er
allur gangur á því hvort þær komi hingað til að
létta sig eða styrkja sig og komast í betra
form. Í byrjun tökum við hvern viðskiptavin í
viðtal þar sem við förum yfir heilsufar, vigtun
og mælingu á fitu-prósentu og mánuði síðar er
þetta síðan endur-tekið. Með þessu reynum við
einnig að sækjast eftir því hvað hver kona vill
fá út úr þjálfuninni. Ef einhver er mjög dugleg
að mæta en árangurinn lætur á sér standa þá
kíkjum við aðeins á mataræðið og hjálpum
þannig viðskiptavinum okkar áleiðis. Æf-
ingakerfið er þannig uppsett að þú byrjar á
palli og æfir þar hálfa mínútu og síðan hálfa
mínútu á tæki þar til þú ert komin heilan hring
og ferð alls þrjá hringi. Hver og ein kona
stjórnar hve erfið æfingin er þannig að þær
geta komið hingað í hvaða formi sem er og
einnig þær sem eiga við veikindi eða meiðsl að
stríða. Margar konur hér á landi eru til dæmis
haldnar gigt og öðrum slíkum sjúkdómum og
þá hentar þetta æfingakerfi vel. Félagsskap-
urinn hér er góður og hafa orðið til nokkrir
saumaklúbbar út frá honum. Sjálf hef ég verið
í íþróttum eiginlega síðan ég byrjaði að
ganga,“ segir Rósa Björg Guðlaugsdóttir.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Frískar Frá vinstri: Lára og Þuríður Bryndís
Guðmundsdætur, Rósa Björg Guðlaugsdóttir
og Berglind Valdimarsdóttir.
Persónulegt viðmót Rósa Björg aðstoðar
Berglindi við æfingarnar.
Hvetjandi Systurnar Lára og Þuríður Bryn-
dís mæta saman og púla.
Æft í heimilislegri stemningu
Sumum konum finnst þægi-
legra að stunda líkamsrækt
eingöngu með kynsystrum sín-
um. Víða um heim eru reknar
svokallaðar Curves-líkams-
ræktarstöðvar að bandarískri
fyrirmynd þar sem þjálfað er
eftir sérstöku æfingakerfi.
Markmiðið er að þjálfunin taki
stuttan tíma og að hver kona
geti æft á sínum forsendum.
Salka óskar lesendum
sínum góðrar heilsu
og hamingju á nýju ári.
Teygjur auka liðleika og
hjálpa okkur að slaka á.
Árni Heiðar Ívarsson
einkaþjálfari deilir
með lesanda skot-
heldri áætlun – og
aukakílóin fjúka!
Bók Valgeirs
Skagfjörð hefur
hjálpað fjöl-
mörgum að
drepa í fyrir
fullt og allt.
Einnig fáanleg
á hljóðbók. Góð ráð um hvernig
hreinsa má skaðleg
aukaefni úr líkamanum.
Nýstárleg og nauðsynleg bók fyrir þá sem vilja
ala börnin sín upp á umhverfisvænan hátt til
að vernda jörðina fyrir komandi kynslóðir.
Sýnum ábyrgð og veljum grænt uppeldi.