Morgunblaðið - 03.01.2009, Síða 29
Morgunblaðið |29
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
Þar sem ég var frekar ósáttvið þau svör sem ég fékkfór ég að lesa mér til umleiðir að meðferð fyrir
dóttur mína. Þá frétti ég af bók dr.
Campbell-McBride sem breytti
mataræði einhverfs sonar síns með
frábærum árangri. Í bókinni lýsir
hún ákveðinni næringarmeðferð en
markmið hennar er að græða melt-
ingarveginn og bæta þarmaflóruna.
Dr. Campbell-McBride er lækn-
ismenntuð með sérmenntun í nær-
ingarfræði og taugasjúkdómafræði
og rekur læknastofu í Bretlandi
þar sem hún sérhæfir sig í næring-
arfræði fyrir börn og fullorðna með
hegðunar- og námserfiðleika. Ég
pantaði bókina í gegnum netið og
var ekki langt komin með lesturinn
þegar mér fannst að það yrði að
gefa hana út á íslensku til að fleiri
gætu notið hennar. Sjálf byrjaði ég
fljótt að breyta mataræði dóttur
minnar og sá að það bar árangur.
Höfundurinn leggur áherslu á að
forðast allan unnin mat, öll auka-
efni og kornvöru og sykur. Þá er
lögð mikil áhersla á að taka inn
próbíótísk bætiefni, sem eru í raun
og veru góðir gerlar til að byggja
upp þarmaflóruna sem er yfirleitt
ekki í nógu góðu ástandi hjá fólki
með athyglisbrest og fleira. Einnig
er mikilvægt að bæta olíum við
mataræðið og þá sérstaklega
omega-3 í ríku magni. Gera skal
allan mat frá grunni, kaupa ekkert
tilbúið og leggja áherslu á kjöt,
fisk, ávexti og grænmeti, fræ, hnet-
ur, egg og hunang. Það voru miklar
breytingar sem ég þurfti að gera á
mataræði dóttur minnar og það var
erfitt að breyta því en alveg þess
virði þegar það fór að bera árang-
ur. Eins er matseldin meiri vinna
til að byrja með en þegar hún
kemst í rútínu verður hún auðveld-
ari,“ segir Jóhanna Mjöll.
Rólegri og einbeittari
Til að byrja með segir Jóhanna
Mjöll að fólk hafi talað um að dóttir
hennar væri mun rólegri og smám
saman varð einbeitingin betri. Ár-
angurinn hafi komið smám saman
en líti hún tvö ár aftur í tímann geri
hún sér grein fyrir hversu miklum
framförum stúlkan hefur tekið.
„Breytingarnar koma hægt og
maður þarf að vera þolinmóður en
þetta hefur heilmikið að segja. Því
miður eru slíkar aðferðir ekki nýtt-
ar nógu mikið og margir hafa litla
trú á þeim sem mér finnst miður
þar sem ég hef mikla trú á því að
rétt mataræði og inntaka á góðum
gerlum og omega-3 geti haft mikið
að segja fyrir geðheilsu almennt,“
segir Jóhanna Mjöll.
Svör og ráðleggingar
Jóhanna Mjöll þýddi bókina sem
heitir á íslensku Meltingarveg-
urinn og geðheilsa og stofnaði í
kringum það útgáfufyrirtækið Mat-
ur og heilsa. Á vefsíðu fyrirtæk-
isins setur Jóhanna inn uppskriftir
og áhugaverðar greinar málefninu
tengdar. Auk þess heldur hún nú
úti stuðningshópi fólks sem vill
breyta mataræði barna sinna á
þennan hátt og vill tala um reynslu
sína og fá svör við spurningum.
„Það er erfitt að breyta mataræð-
inu svona og því gott ef fólk getur
komið saman og stutt hvað annað.
Sjálf er ég að hluta til á mataræði
dóttur minnar og þegar hún er
heima fara allir á heimilinu eftir
því. Ég starfa sem hjúkrunarfræð-
ingur og fyndist að það þyrfti að
vera meira um að heilbrigðisstarfs-
fólk ráðlegði fólki um mataræði, til
dæmis fyrir ofvirk börn eða börn á
einhverfurófi,“ segir Jóhanna
Mjöll.
Árangursrík næringarmeðferð
Morgunblaðið/Golli
Heilmikið að segja Jóhanna Mjöll, sem er hér ásamt syni sínum, leitaði
eigin ráða og sér breytingar á dóttur sinni með breyttu mataræði.
Fyrir um tveimur árum
var dóttir Jóhönnu
Mjallar Þórmars-
dóttur, sem nú er 11
ára, greind með athygl-
isbrest og á einhverfu-
rófi. Var Jóhönnu Mjöll
sagt að lítið væri hægt
að gera fyrir dótturina
nema bíða og sjá en
hún var fremur ósátt
við þau svör og leitaði
eigin ráða.
Lög um tóbaksvarnir tóku gildi hér
á landi í byrjun árs árið 1985 og hafa
breyst nokkuð í gegnum tíðina en
þar segir meðal annars að virða beri
rétt hvers manns til að þurfa ekki að
anda að sér lofti sem er mengað tób-
aksreyk af völdum annarra. Fjöldi
herferða til að vekja athygli á skað-
semi reykinga hefur birst sjónum
fólks hér á landi, en íslensk stjórn-
völd hafa verið í fararbroddi í heim-
inum í lagasetningu og forvörnum á
sviði tóbaksvarna. Hafa og margar
þjóðir litið hingað til lands þegar
marka á stefnu í tóbaksvörnum
heima fyrir. Talið er að spænskir fá-
tæklingar hafi fundið sígarettuna
upp á 18. öld þegar þeir muldu niður
stubbana af vindlum sem efnaðra
fólk henti á götuna, vöfðu mylsnunni
inn í pappír og reyktu. maria@mbl.is
Í fararbroddi í tóbaksvörnum
Fyrirmynd Aðrar þjóðir hafa horft
til Íslands þegar kemur að tóbaks-
vörnum.
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111
Dansráð Íslands | Faglærðir danskennarar Borgartún 6 | 105 Reykjavík | sími 553 6645 | fax 568 3545 | dans@danskoli.is | www.dansskoli.is
VIÐ BJÓÐUM
UPP Í DANS
Innritun og
upplýsingar á
í síma 553 6645
Mambó
Tjútt
Freestyle
Break
Salsa
Brúðarvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámskeið fyrir hópa
Hiphop
Börn – Unglingar – Fullorðnir
dansskoli.is eða
Jazz
Dansfélag Reykjavíkur