Morgunblaðið - 03.01.2009, Page 31
Íslensku vigtarráðgjafarnir eru hluti af Dönsku vigtarráðgjöfunum sem er
alþjóðleg keðja. Innan hennar kenna ráðgjafar með mikla faglega reynslu
fólki hvernig megi grenna sig án þess að sleppa úr einni einustu máltíð.
Matarprógrammið er sett saman með aðstoð næringarráðgjafa og mjólk-
urafurðir, ávextir og grænmeti eru mikilvægur grunnur í mataræðinu.
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@mbl.is
Ég hef átt í baráttu viðaukakílóin öll fullorð-insárin en hafði ekkigert neitt róttækt í
mínum málum fyrr en ég byrjaði
á þessu mataræði í apríl. Það var
vinkona mín sem stakk upp á því
að við færum í þetta saman. Ég
hafði heyrt um Íslensku vigtar-
ráðgjafana en lítið kynnt mér um
hvað þetta snerist og var eig-
inlega með fordóma. Ég hélt að
þetta væri bara einhver kúr en
annað kom í ljós og ég hafði aldr-
ei fundið neitt sem hentaði mér
jafn vel,“ segir Petrína Soffía
Eldjárn, tveggja barna móðir og
háskólanemi í diplómanámi í líf-
eindafræði.
Fljót að tileinka sér
mataræðið
Petrína segir að það hafi hent-
að sér vel að í mataræðinu sé í
raun ekkert bannað þar sem fólk
geti búið sér sjálft til hollari sæt-
indi og annað slíkt og því þurfi
ekki að einbeita sér að því að
ekki megi hitt og þetta. Þá sé ár-
angurinn skjótur en um leið jafn
en miðað er við að fólk missi
þyngd jafnt og þétt. Hún segir að
fyrst hafi hún sökkt sér ofan í
prógammið og kynnt sér vel um
hvað það snerist. Fyrstu dagarnir
hafi verið frekar ruglingslegir en
eftir það hafi hún verið fljót að
tileinka sér matar-æðið. Með því
hafi hún farið að borða mun
meira af grænmeti og ávöxtum og
sleppt sælgæti. „Mér finnst ekk-
ert mál að vera boðin í veislur
enda veit fólk hvað ég er að gera
og tekur tillit til þess með því að
bjóða líka upp á grænmetis-bakka
eða annað álíka. Ég svindla líka í
hófi og það er alveg hægt að
smakka aðeins á heitu réttunum
þó að maður leggist ekki í þá.
Eins er gott að vera búin að fá
sér eitthvað hollt heima fyrir áð-
ur en maður fer í veislu,“ segir
Petrína.
Langar að styrkja sig
Síðan í apríl hefur Petrína lést
um 33,4 kíló og því náð mjög góð-
um árangri með breyttu mat-
aræði. Hún segist hafa fundið fyr-
ir þyngdartapinu strax í byrjun
og misst að meðaltali eitt kíló á
viku. Hún ætlar sér að missa átta
kíló í viðbót og segir því að farið
sé að sjá fyrir endann á þessu. Á
meðan Petrína var of þung segist
hún ekki hafa fundið mikið fyrir
líkamlegum einkennum en sér líði
mun betur andlega í dag og finn-
ist til að mynda auðveldara að
taka þátt í hlutunum. Hún hefur
samhliða mataræðinu aukið dálít-
ið hreyfingu en helsti munurinn
þar sé að áður hafi sér alltaf
fundist hún þurfa að fara í rækt-
ina til að leggja af en núna langi
sig í ræktina til að styrkja sig.
Hefur áhrif á börnin
„Eiginmaðurinn fylgir mat-
aræðinu að hluta en ég kaupi ým-
islegt fyrir börnin sem ég borða
ekki sjálf. Ég hef ekkert rætt um
þetta við þau en þau tóku strax
eftir því að mamma borðaði bara
hollt og það hefur sín áhrif. Þetta
er í rauninni ekkert mál og mað-
ur þarf lítið að hugsa um þetta
eftir svona langan tíma þar sem
þetta verður lífsmáti. Ég lauma
smá-atriðum að fjölskyldu og vin-
um þó maður ætlist ekki til að
fólk umbylti öllu. Þetta hefur
hentað mér mjög vel og ég kvíði
því ekkert að halda þessu mat-
aræði til streitu,“ segir Petrína.
Mamma borðar bara hollt
Morgunblaðið/Valdís Thor
Góður árangur Petrína Soffía Eldjárn, háskólanemi og móðir, hefur lést
um rétt rúmlega 33 kíló síðan í apríl með breyttu mataræði.
Morgunblaðið |31
KRAFTGANGA Í
ÖSKJUHLÍÐ
• Frískt loft eykur ferskleika
• Útivera eykur þol
Alhliða líkamsþjálfun jafnt fyrir byrjendur
sem lengra komna
Boðið verður upp á tvenns konar tíma. Byrjendatímar og
tímar fyrir þá sem eru vanir líkamsþjálfun.
Vetrarstarfsemi hefst þann 7. janúar nk.
sjá tímatöflu á kraftganga.is
Skráning og fyrirspurnir sendist á netfangið
kraftganga@kraftganga.is eða í síma 899 8199.
Frekari upplýsingar á
www.kraftganga.is
Hugaðu að heilsu
og
líðan starfsmanna
á nýju ári
www.vinnuvernd.is | s.578 0800
vinnuvernd@vinnuvernd.is
Trúnaðarlæknir
Heilbrigðisþjónustuver
Læknisskoðanir
Sálfræðiþjónusta
Bólusetningar
Áhættumat
Vinnustaðaúttekt
Líkamsbeiting og líkamlegt álag
Félags-og andlegur aðbúnaður
Vinnuvistfræðileg ráðgjöf
Heilsuefling á vinnustað
Heilsufarsmælingar
Heilsufarsmat
Ráðgjöf um næringu
Álags og streitustjórnun
Heilsuvernd
Vinnuvernd
Heilsuefling
VINNUVERND
vellíðan í vinnu