Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 1

Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 1. F E B R Ú A R 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 40. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is BEIN ÚTSENDING Á LAUGARDAG HVERJUM TEKST AÐ SYNGJA TIL SIGURS? ÍSLAND - LIECHTENSTEIN Tækifæri til að ná fram hefndum Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is SKILANEFND Glitnis mun leggja Moderna, dótturfélagi Milestone, til stóraukið rekstrarfé ef nýjar hug- myndir um endurskipulagningu Milestone ganga eftir, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Þá munu núverandi eigendur Milestone, bræðurnir Karl og Stein- grímur Wernerssynir, missa alla eign sína í félaginu en fyrri hug- myndir höfðu gert ráð fyrir því að þeir gætu eignast allt að 40 prósent í því á ný ef allt gengi eftir. Sjóvá kemur heim til Íslands Tryggingafélagið Sjóvá, sem er í eigu Moderna, verður fært undir ís- lenskt eignarhald sem hluti af þess- ari endurskipulagningu. Heimildir Morgunblaðsins herma að skila- nefnd Glitnis hafi lagt mikla áherslu á að slík tilfærsla yrði hluti af ferlinu. Öll endurskipulagning á starfsemi Milestone þarf að samþykkjast af Sænska fjármálaeftirlitinu (FI) þar sem Milestone seldi allar íslenskar eignir sínar til Moderna í Svíþjóð í janúar 2008, en það félag er að fullu í eigu Milestone. FI þarf að sam- þykkja hvort aðilar geti farið með ráðandi eignarhluti í skráðum og eft- irlitsskyldum félögum þar í landi. Viðræður um endurskipulagn- inguna hafa staðið yfir á milli skila- nefndar Glitnis og FI að undanförnu og samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er búist við svari frá FI um hvort af verði í dag. Vonast er til að margir tugir milljarða króna bjarg- ist upp í kröfur á gamla Glitni gangi endurskipulagningin eftir. Nýtt rekstrarfé og Sjóvá flutt heim  Karl og Steingrímur Wernerssynir missa eign í Milestone Í HNOTSKURN »Fjárfestingarfélagið Mile-stone hefur verið í eigu bræðranna Karls og Stein- gríms Wernerssona. »Milestone hefur verið eig-andi Sjóvár gegnum dótt- urfélag sitt, Moderna í Sví- þjóð.  Bræðurnir missa | 16 LEIFUR Guðjónsson, sjómaður í Grindavík, reri ásamt félaga sínum út með 28 bala í fyrrinótt og fengu þeir tæp fjögur tonn. „Ég er mjög sáttur við aflann og skiptingin var líka fín, þorskur til helminga og svo annað. Við fengum til dæmis tonn af ýsu og 600 kg af löngu.“ Leifur, sem hefur verið á sjónum í 19 ár með stuttu hléi, eða frá því að hann var 16 ára, starf- ar hjá Grímsnesi ehf. og rær út á Víkingi KE 10 af gerðinni Gáska 1100. Kvótinn er tekinn á leigu og veitt er á balalínu. „Við höfum verið að fá allt frá tveimur tonnum upp í átta tonn,“ segir Leifur sem heldur út á miðin klukkan 3 til 4 að nóttu. Heim kemur hann klukkan 5 til 6. „Hluti aflans fer á markað en eig- andinn tekur stærri þorskinn til sín. Hann saltar hann og gerir meiri verðmæti úr honum,“ grein- ir Leifur frá. | 13 Tæp fjögur tonn á 28 bala í túrnum Morgunblaðið/RAX  Á UPPBOÐI Gallerís Foldar á mánudags- kvöldið seldist verk eftir Svavar Guðnason fyrir 4,4 milljónir króna að við- bættum uppboðs- gjöldum. Þá seld- ist verk eftir Þorvald Skúla- son á 1,5 milljónir króna, verk eftir Kjarval úr Gálgahrauni á sama verði og málverk eftir Nínu Tryggvadóttur fyrir 1.350 þúsund krónur. »42 Verk eftir Svavar Guðnason selt á 4,4 milljónir Svavar Guðnason  ELDUR kom upp í einum klefa á Litla-Hrauni í gærkvöldi og voru bæði lögregla og slökkvilið kölluð á staðinn. Að sögn Margrétar Frí- mannsdóttur, forstöðumanns fang- elsisins, gekk greiðlega að slökkva. Segir hún engin meiðsl hafa orð- ið á fólki og óverulegar skemmdir, en reykræsta þurfti fangelsið. Að- spurð segir hún grun um íkveikju, en málið er nú í höndum lögregl- unnar sem mun rannsaka það. Spurð um aðdraganda þess segir Margrét að þær aðstæður hafi skapast að loka hafi þurft menn inni á einni deild fyrr en áætlað var, sem sé gert t.d. vegna fíkniefna- mála eða eineltis, og í framhaldinu hafi eldurinn kviknað. „Starfsfólkið brást hárrétt við og því skapaðist aldrei hættuástand.“ silja@mbl.is Grunur um íkveikju í fangelsinu á Litla-Hrauni Morgunblaðið/RAX MIKIL pólitísk óvissa virðist fram- undan í Ísrael eftir mjög tvísýnar þingkosningar í gær og leiðtogar tveggja stærstu flokkanna gerðu báðir tilkall til embættis forsætis- ráðherra. Miðflokknum Kadima, undir for- ystu Tzipi Livni utanríkisráðherra, var spáð 29-30 þingsætum af 120. Likud, hægriflokkur Benjamins Netanyahus, fékk 27-28 sæti, ef marka má útgönguspár sjónvarps- stöðva. Flokki harðlínumannsins Avig- dors Liebermans var spáð 14-15 sætum. Verkamannaflokkurinn mun hafa fengið 13 sæti og er það mesta afhroð flokksins í þingkosningum. „Ljóst er að Ísraelar hafa kosið að lama friðarferlið,“ sagði Saeb Erek- at, aðalsamningamaður Palest- ínumanna. | 17 Reuter Fögnuður Stuðningsmenn Kadima fagna fyrstu kjörtölum í Ísrael í gær. Gera báðir tilkall til stjórnarforystu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.