Morgunblaðið - 11.02.2009, Page 2

Morgunblaðið - 11.02.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt- ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is MAGNÚS Gunnarsson og Valur Valsson óskuðu eftir því í gær að þeir yrðu leystir frá störfum sem stjórnarformenn Nýja Kaupþings banka hf. og Nýja Glitnis hf. Þeir sendu Steingrími J. Sigfús- syni fjármálaráðherra bréf þess efnis í gær. Í því segir meðal annars: „Okkur er ljóst að í báðum stjórnarflokkunum eru uppi óskir um mannabreytingar í stjórnum bankanna og á Al- þingi í gær staðfesti forsætisráðherra að það væri til umræðu. Næstu vikur og mánuði þarf hins veg- ar að taka erfiðar ákvarðanir í bönkunum og mik- ilvægt að þeir sem taka þær ákvarðanir hafi til þess óskorað umboð og traust.“ Vísuðu þeir til um- ræðu á Alþingi þegar Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, spurði Jóhönnu Sigurðardóttur Magnús og Valur sitji áfram  Fjármálaráðherra vill að Magnús Gunnarsson og Valur Valsson verði áfram for- menn bankaráða Nýja Kaupþings og Nýja Glitnis  Óljóst hvort þeir halda áfram Magnús Gunnarsson Valur Valsson Steingrímur J. Sigfússon forsætisráðherra hvort til stæði að gera manna- breytingar í bankaráðunum. Jóhanna svaraði því til að ekki væri hægt að útiloka neitt í þeim efnum. Geir varaði við því að gera breytingar á ráðunum og sagði það hafa verið gæfulegt hversu vel hefði tekist til þegar bankaráðin voru mönnuð. Stein- grímur J. Sigfússon fjármálaráðherra óskaði eftir því í gær að Magnús og Valur sætu áfram í banka- ráðunum og gegndu þar formennsku fram að aðal- fundum bankanna í apríl. Magnús og Valur tóku við störfum sem stjórnarformenn nýju bankanna í nóvember í fyrra. Þeir voru stofnaðir á grunni inn- lendrar starfsemi gömlu bankanna þriggja, Glitn- is, Kaupþings og Landsbanka, sem voru teknir yf- ir í byrjun október. Í HNOTSKURN » Í bréfi Magnúsar Gunn-arssonar og Vals Vals- sonar kemur fram að þeir hafi rætt við fjármálaráðherra um það á fundi 6. febrúar að þeir hættu störfum ef vilji væri til breytinga. » Stefnt er að því að haldaaðalfundi bankanna í apríl þegar efnahagsreikningar þeirra liggja fyrir. Vinnu við mat á eignum og skuldum gömlu og nýju bankanna er enn ekki lokið. LOFTMENGUNIN var yfir heilsuvernd- armörkum við helstu umferðargötur á höf- uðborgarsvæðinu í gær þegar umferðin var sem mest. Kalt var í lofti, lítill raki og logn og götur þurrar. Anna Rósa Böðvarsdóttir, heilbrigð- isfulltrúi hjá umhverfis- og samgöngusviði Reykjavíkur, segir götur almennt hafa verið blautar frá áramótum. Mikið ryk hafi safnast á þær og þess vegna verði mengunin meiri þegar þær fari að þorna. Umhverfis- og samgöngusvið borgarinnar hvetur fólk til að hvíla bílinn í slíku veðri og taka heldur strætó. Jafnframt að hafa ekki farartæki í lausagangi að óþörfu en kvartanir um slíkt hafa borist heilbrigðiseftirlitinu að undanförnu. Kjósi menn að ganga eða hjóla til og frá vinnu og skóla ættu þeir ekki að gera það meðfram miklum umferðargötum þegar hætta er á loft- mengun. Þeir sem eru með viðkvæm önd- unarfæri ættu að forðast helstu umferðargötur þegar hætta er á mikilli mengun. Fylgjast má með vefmæli á heimasíðu Reykjavíkurborgar. ingibjorg@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Loftmengunin yfir heilsuverndarmörkum KAFARA var bjargað úr höfninni í Garði á Reykjanesi á sjöunda tím- anum í gær. Hafði kafarinn lent í vandræðum rétt utan við höfnina. Var hann að koma að landi þegar mikill straumur greip hann og bar frá landi. Maður sem var á bryggj- unni í Garði að fylgjast með köf- uninni kallaði eftir aðstoð. Björgunarsveitin Ægir frá Garði, Sigurvon frá Sandgerði og Björg- unarsveitin Suðurnes voru kallaðar út og fóru bátar af stað til bjargar manninum. Náðist hann um borð í slöngubát Ægis og reyndist ágæt- lega á sig kominn þrátt fyrir volkið. „Þegar ég varð þess áskynja hvað var að gerast kallaði ég til félaga minna og bað þá að redda bát úr höfninni. Því það var algjörlega von- laust fyrir mig að komast upp úr þar sem ég var með gríðarstóra mynda- vél á bakinu sem straumurinn greip í,“ sagði kafarinn í samtali við Morg- unblaðið í gærkvöldi, en hann hefur stundað köfun síðan 1983. „Ég hef oftsinnis áður kafað á þessum stað, en að þessu sinni sköp- uðust einhverjar þær aðstæður sem gerðu það að verkum að það mynd- aðist frákast frá klettunum sem veldur því að það er ógerlegt að komast að þeim,“ segir kafarinn og tekur fram að hann hafi eftir uppá- komuna heyrt af köfurum sem lent hafi í svipaðri reynslu á sama stað fyrir stuttu og því ljóst að fara þurfi varlega á þessum stað. Kafara bjargað úr sjónum Segir ógerning hafa verið að komast að klettunum við Garð vegna frákasts Morgunblaðið/Hilmar Bragi Björgun Sjúkraliðar og björgunarsveitarmenn koma kafaranum til að- stoðar og flytja hann til aðhlynningar á sjúkrahúsinu í Keflavík. GEIR H. Haarde, fyrrverandi for- sætisráðherra og þingmaður Sjálf- stæðisflokksins, segir það dap- urlegt að Jó- hanna Sigurð- ardóttir hafi ekki lýst yfir stuðningi við formenn bankaráðanna. „Forsætisráðherra fékk tilefni til þess að lýsa yfir stuðn- ingi við þá [Magnús og Val innsk. blm.] en gerði það ekki. Mér þætti mjög miður ef þeir létu af störfum. Ég bað þá að taka þetta að sér á sín- um tíma, enda verkin framundan krefjandi. Mér finnst mjög miður hvernig forsætisráðherra og rík- isstjórnin hefur beitt kröftum sínum gegn bankaráðum nýju bankanna. Þetta vekur líka upp spurningar um pólitísk afskipti af starfsemi bank- anna. Þau blasa við en ég veitti þess- um mönnum loforð um að bankaráð- in myndu ekki þurfa að búa við pólitísk afskipti.“ magnush@mbl.is Sýnileg, póli- tísk afskipti Geir H. Haarde KONAN sem fannst látin í Kapelluhrauni, sunnan Hafn- arfjarðar, á fimmtudag hét Sirrey María Ax- elsdóttir, til heimilis í Reykja- vík. Sirrey var 37 ára gömul, fædd 11. ágúst 1972. Hún lætur eftir sig tvo syni. Konan sem fannst látin Sirrey María Axelsdóttir ÞORGERÐUR Katrín Gunnars- dóttir, þingmað- ur Sjálfstæðis- flokksins, sækist ekki eftir kjöri sem formaður flokksins, heldur eftir endurkjöri sem varafor- maður. „Mér líð- ur þannig að í stað þess að fara í kosningabaráttu, sem gæti orðið harðvítug, vil ég beina kröftum mínum í innra starf- ið og þá ekki síst í þá endurskoðun og endurmat sem þarf að fara fram.“ Hún sækist jafnframt eftir að vera í forystu í Kraganum, en kjördæmisráð flokksins ákvað í gær að viðhafa þar prófkjör. ingibjorg@mbl.is Fer ekki í formannskjör Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.