Morgunblaðið - 11.02.2009, Page 6

Morgunblaðið - 11.02.2009, Page 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur sia@mbl.is „ÉG FELLDI tár af því að þetta minnti mig á hversu illa mér leið á þessu tímabili,“ segir hin 16 ára gamla Kristín Rán Júlíusdóttir. Þannig lýsir hún líðan sinni þegar hún bjó sig undir málþing þar sem hún lýsti reynslu sinni af rafrænu einelti. Málþingið var haldið á vegum SAFT í tilefni af alþjóðlega net- öryggisdeginum 10. febrúar. Móðir Kristínar, Guðný Kristjánsdóttir, lýsti einnig reynslu sinni af sama til- efni. Upphaf málsins er að þegar Krist- ín Rán var í 7. bekk hélt hún úti bloggsíðu og inn á þá síðu voru rituð ummæli, sem ekki verða höfð eftir hér, að beiðni mæðgnanna. Kristín Rán fæddist með fötlun sem lýsir sér þannig að hún er með skerta hreyfi- getu í vinstri helmingi líkamans. Hún hefur ætíð átt erfitt með að sætta sig við fötlun sína og hefur reynt að haga lífi sínu þannig að hún hamli henni á engan hátt. „Þetta var það persónu- legt að fötlunin var nefnd,“ segir Kristín Rán um eðli þess eineltis sem hún varð fyrir á netinu. „Ég á ennþá erfitt með að sætta mig við að ég sé fötluð en ég er að læra að lifa með þessu,“ segir hún. Ummælin sem færð voru inn á bloggsíðu Kristínar voru afar sær- andi og þó að Kristín Rán hafi nú lok- ið námi í 10. bekk og hafið nám í fjöl- braut sárnar henni enn að tala um þetta. „Þetta var það góð vinkona mín að þegar ég komst að því hver gerði þetta átti ég ekki orð,“ segir hún. Kristín Rán og foreldrar hennar hafa fyrirgefið stúlkunni skrif hennar og Kristín og stúlkan hafa verið sam- stiga í skóla alla tíð, eru núna báðar í fjölbraut. „Við erum ekki beint vin- konur í dag en ég hef mætt í afmælin hennar og hún í afmælin mín,“ segir Kristín. „Ég mun samt aldrei gleyma þessu, ég mun alltaf muna eftir því sem hún gerði. Ég er bara þannig manneskja að ég finn það í hjarta mínu að fyrirgefa,“ segir Kristín og bætir svo við að vinkonan hafi greini- lega séð eftir þessu þegar upp komst og henni liðið illa. Kristín Rán segir að reynslan hafi styrkt hana og gert hana betri. „Ég myndi aldrei leggjast svo lágt að gera nokkuð í líkingu við þetta,“ segir hún. „Ég er mjög ánægð að vera ekki svona manneskja.“ Guðný, móðir Kristínar Ránar, segir að þeim foreldrunum hafi fund- ist skrifin á blogginu svo ljót að þau hafi ákveðið að gera eitthvað í mál- inu. „Hún átti á brattann að sækja frá því hún hóf nám í grunnskóla,“ lýsir Guðný. „Þetta rafræna einelti setti í okkar huga eiginlega punktinn yfir i- ið.“ Foreldrarnir ákváðu að fá að fara inn á heimili þeirra sem hugsanlega höfðu ritað orðin til að finna ip-töluna en það tókst ekki. Guðný tekur sér- staklega fram að foreldrar bekkj- arsystkina Kristínar hafi tekið þeim afar vel. Fyrst ekki tókst að finna gerandann á þennan hátt var ákveðið að leita til lögreglunnar með málið og sú tilkynning var gefin út. Það varð til þess að gerandinn gaf sig fram. Guðný hnykkir á að þetta mál hafi farið vel og þau telji sér hafa tekist að koma í veg fyrir frekara einelti í gegnum netið með því að bregðast svona við. „Þetta bar árangur og það er það sem situr eftir. Viðbrögð okk- ar og dóttur okkar.“ Kristín Rán átti sitt besta ár í 10. bekk grunnskóla og núna blómstrar hún í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Við viljum segja frá þessu núna til að koma því á framfæri hvernig við brugðumst við þessu.“ Morgunblaðið/Golli Samhentar mægður Foreldrar Kristínar Ránar brugðust hárrétt við þegar uppvíst varð um meiðandi færslu á bloggsíðu hennar. „Ég mun alltaf muna“  Kristín Rán Júlíusdóttir tárast enn ef hún rifjar upp rafrænt einelti sem hún lenti í fyrir mörgum árum  Hún og fjölskylda hennar hafa fyrirgefið gerandanum HÁSKÓLI Íslands og fyrirtækið ORF-Líftækni undirrituðu í gær samning sín á milli. Er samn- ingnum ætlað að stuðla að sam- starfi á sviði rannsókna og tækniþróunar á lífvirkum prótein- um. Samningurinn er jafnframt lið- ur í þeirri stefnu Háskólans að efla enn frekar tengsl og samstarf við íslensk fyrirtæki og atvinnulíf. „Með samstarfi HÍ og ORF Líf- tækni hf. er stuðlað að gagnkvæmri nýtingu á rannsóknaaðstöðu og einnig hugað að möguleikum sem felast í sameiginlegum kaupum og rekstri á dýrum tækjabúnaði. Samningurinn tryggir einnig sam- starf í markaðs- og viðskiptamálum sem tengjast viðskiptaþróun, mark- aðssetningu og sölu á lífvirkum próteinum,“ segir í tilkynningu. HÍ samdi við ORF-Líftækni HVERFISRÁÐ Grafarvogs telur ekki þörf á að farið verði í fram- kvæmdir við tengingu Víkurvegar við Vesturlandsveg fyrr en leið Sundabrautar hefur verið ákveðin og lögð upp á Kjalarnes. Þetta segir í ályktun sem samþykkt var á fundi ráðsins í gær. Hverfisráðið telur enga þörf á fjögurra akreina tengingu á milli Vesturlandsvegar og Víkurvegar en verði talin þörf á fleiri teng- ingum hverfisins við Vesturlands- veg, þá verði þar aðeins um tveggja akreina borgargötu að ræða. Mikill einhugur var í ráðinu, að sögn Halldórs Lárussonar for- manns. Ekki þörf á tengingu FARGJÖLD með ferjunni Herjólfi munu hækka um 12% frá og með 16. febrúar nk. Þetta hefur orðið að samkomulagi milli Vegagerð- arinnar og Eim- skipa. Bókuð voru mótmæli gegn þessari hækkun í bæjarráði Vest- manneyjabæjar í gær. „Fyrir liggur að ferjuvísitala hef- ur hækkað um 22,54% og vegur þar mest hækkun á launavísitölu og ol- íu. Bæjarráð mótmælir boðaðri hækkun og hvetur samgöngu- ráðherra til að gæta að jöfnuði milli búsetusvæða, hvað varðar aðgengi og gjaldtöku fyrir notkun á þjóð- vegum landsins,“ segir í bókun bæj- arráðs frá í gær. Hækkun hjá Herjólfi Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is VONAST er til að tímabundin aukning endur- greiðslna virðisaukaskatts til byggingar og viðhalds íbúðarhúsnæðis hvetji til fram- kvæmda. Auk þess er tilgangurinn að sporna við svartri atvinnustarfsemi. Endurgreiðsla virðisaukaskatts rekur ættir sínar til gamla söluskattskerfisins. Vinna við húsbyggingar, endurbætur og viðhald var und- anþegin söluskatti. Þegar virðisaukaskattur- inn leysti söluskattinn af hólmi í byrjun árs 1990 var ákveðið að endurgreiða vaskinn til að koma í veg fyrir hækkun á byggingarkostnaði og halda verðbólgudraugnum úti. Endur- greiðslan náði í upphafi til alls virðisaukaskatts sem greiddur var af vinnu manna á bygging- arstað íbúðarhúsnæðis en á árunum 1996 og 1997 var endurgreiðsluhlutfallið lækkað og hafa 60% skattsins verið endurgreidd síðan. Í stjórnarfrumvarpi sem nú er til umfjöll- unar á Alþingi er gert ráð fyrir að virðisauka- skatturinn verði að nýju endurgreiddur að fullu. Hins vegar er þetta tímabundin aðgerð, sem aðeins gildir fram á mitt næsta ár. Hvati til að hefjast handa Talsmenn atvinnurekenda og launþega í mannvirkjagerð eru ánægðir með aðgerðina. Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Sam- iðnar, segir að þar sem þetta sé tímabundin ráðstöfun ætti hún að hvetja fólk til að hefja framkvæmdir fljótt. Horfir hann þar ekki síst til húsfélaga. Bendir Finnbjörn á að viðhalds- framkvæmdir krefjist ekki langs undirbún- ingstíma. Árni Jóhannsson, forstöðumaður, mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins, tekur undir þetta og bætir því við að nú sé hægt að fá iðnaðarmenn til verka og hagstæð tilboð. Hann reiknar með að þessi lagabreyting leiði til þess að vinna hefjist við einhver verk. Útlit er fyrir það að endurgreiðslur virðis- aukaskatts vegna síðasta árs nemi rúmum 3 milljörðum kr. Lagabreytingin leiðir til 2 millj- arða kr. meiri endurgreiðslu, en annars hefði orðið. Fjárlagaskrifstofa fjármálaráðuneytis- ins bendir í umsögn á að breytingin geti leitt til aukinna umsvifa á byggingamarkaði og auk- inna veltuskatta. Sömuleiðis megi ætla að hún dragi úr svartri atvinnustarfsemi sem hafi í för með sér aukinn tekjuskatt og minni greiðslur vegna atvinnuleysisbóta. Telur skrifstofan að breytingin hafi því ekki teljandi áhrif á útgjöld ríkisins. Báðir leggja Árni og Finnbjörn mikið upp úr þeim tilgangi laganna að sporna við svartri at- vinnustarfsemi sem talin er hafa viðgengist í þessari grein. Árni segir að það muni stuðla að vandaðri vinnu og meira öryggi fyrir kaupend- ur þjónustunnar. Jafnframt muni kaupendur eiga auðveldara með að leita réttar síns, ef brögð reynast í tafli. Hvetja fólk til að nýta tækifærið Reynt að koma af stað framkvæmdum með tímabundinni aukningu á endur- greiðslum virðisaukaskatts vegna viðhalds og byggingar íbúðarhúsnæðis Kristrún Birgisdóttir og Heiða Kristín Harðardóttir gerðu rann- sókn á rafrænu einelti og skrifuðu lokaritgerð úr námi sínu í uppeld- is- og menntafræðum, sem þær kynntu á málþingi SAFT í gær. Þær höfðu spurnir af rafrænu einelti milli krakka allt niður í 11- 12 ára og upp í krakka á mennta- skólaaldri. „Það þarf víðtækar forvarnir gegn þessu. Þeir skólar sem við ræddum við eru ekki farnir að taka þennan pakka inn í um- ræðuna um einelti. Þar er enn helst rætt um þetta hefðbundna en það þarf að taka rafræna ein- eltið með og samstilla í skól- unum,“ segir Kristrún. „Það þurfa allir að taka þátt í því og fólk verður að gera sér grein fyrir því að þetta er til staðar og það þarf að taka á þessu.“ Ýmsar gagnlegar upplýsingar er að finna á saft.is um rafrænt ein- elti og fleira sem tengist tölvu- og netnotkun barna og unglinga. Málþingið í gær var haldið í tilefni af alþjóðlega netöryggisdeginum, 10. febrúar. Niður í ellefu ára og upp í menntaskóla Virðisaukaskattur er endurgreiddur vegna vinnu við íbúðarhúsnæði, og þá aðeins vinnu á byggingarstað. Átt er við vinnu iðnaðar- og verkamanna, t.d. við múrun, málningu, flísalögn og parketlögn, svo og rafmagns- og pípulagnir innanhúss. Einn- ig sprunguviðgerðir, lóðarfrágang og jarð- vegslagnir innan lóðar, girðingar, bílskúra og garðhýsi. Virðisaukaskattur er hins vegar ekki endurgreiddur af efni sem notað er. Held- ur ekki af vinnu stjórnenda vinnuvéla, vinnu sem unnin er á verkstæði eða sér- fræðiþjónustu hverskonar, svo sem hjá arkitektum og verkfræðingum. Þá ekki vegna vinnu við ræstingar, garðslátt, skor- dýraeyðingu og aðra reglulega umhirðu íbúðarhúsnæðis. Hvað er endurgreitt og hvað ekki?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.