Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 8

Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 „ÉG er innilega þakklát og hrærð,“ sagði Sigríð- ur Margrét Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi, þegar hún tók á móti Eyrarrósinni við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í gær. Sagðist hún tileinka verð- launin starfsfólki Landnámssetursins sem og öll- um þeim sem lagt hefðu verkefninu lið. Tók hún við viðurkenningunni ásamt manni sínum, Kjart- ani Ragnarssyni, forstöðumanni setursins. „Menning og listir hafa alla tíð verið mik- ilvægur hluti af sjálfsmynd íslenskrar þjóðar og Íslendingasögurnar eru, í okkar seinni tíð, taldar merkilegar, ekki fyrir víkinga og átökin sem þær segja frá, heldur fyrir þá staðreynd að þær voru skrifaðar og ekki síst fyrir það hvernig þær voru skrifaðar. Það er því mikil huggun fyrir okkur núna þegar við eigum í erfiðleikum sem þjóð, að við eigum samt fullan möguleika á því að afkom- endur minnist okkar fyrir það að við sköpuðum menningu og sköpuðum hana vel, frekar en fyrir einstaka víkingaorrustur og áföll,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra. silja@mbl.is Mikilvægur hluti sjálfsmyndar okkar  Eyrarrósin kom í hlut Landnámsseturs Íslands þegar hún var veitt í 5. sinn í gær  Að auki voru tilnefnd Eyrbyggja, sögumiðstöð í Grundarfirði, og Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi Í HNOTSKURN »Eyrarrósin er sérstök við-urkenning fyrir fram- úrskarandi menningarverk- efni á landsbyggðinni sem Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands standa að. Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff, forsetafrú. »Handhafi Eyrarrós-arinnar fær 1,5 milljónir kr. í verðlaunafé og verð- launagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur. »Næsta frumsýning seturs-ins er Sturlunga í með- förum Einars Kárasonar. Morgunblaðið/Golli Á Bessastöðum Dorrit Moussaieff, Sigríður Margrét Guðmundsdóttir og Kjartan Ragnarsson. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is „ÞETTA er það allra versta sem ég hef séð í 28 ár. Það er engin spurn- ing. Staðan er ömurleg, það er að- eins eitt orð yfir hana,“ segir Þórir Þorvarðarson, ráðningarstjóri hjá Hagvangi, sem dregur upp dökka mynd af vinnumarkaðnum. „Ástandið síðan í haust er ekkert sambærilegt við það sem hún hefur verið síðustu þrjú til fjögur ár,“ seg- ir Þórir, sem telur samdráttinn í fjölda auglýstra starfa nema 70-80%. Nú séu á milli 3.000 og 4.000 skráðir í atvinnuleit hjá Hagvangi. Gunnar Haugen, framkvæmda- stjóri Capacent Ráðninga, kveðst ekki hafa á reiðum höndum hver samdrátturinn sé í prósentum. „Það er vissulega samdráttur. Við erum ekki að auglýsa nærri því jafn mikið af störfum og við höfum gert.“ Gunnar tekur hins vegar fram að árin 2007 og 2008 hafi verið „fráviks- ár í eftirspurn eftir vinnuafli“. „Ef maður miðar við það verður allt sem kemur á eftir minna, en ég hugsa að þetta sé ekkert ólíkt því sem var 2004 og 2005. Við erum að hverfa aftur til þessara ára í fjölda starfsauglýsinga,“ segir Gunnar. Inntur eftir því hvort Capacent einbeiti sér fyrst og fremst að störf- um í hærri launaþrepum segir Gunnar áhersluna vera á sérfræð- inga og stjórnendur. Á hinn bóginn annist systurfyrirtækið Vinna.is ráðningar á verkafólki og að þar megi merkja mun meiri samdrátt. Athyglivert er að rýna í tölur úr mánaðarskýrslum Vinnumálastofn- unar um lausar stöður á skrá hjá stofnuninni um land allt. Þar kemur þannig fram að í október 2007 voru 259 á skrá, 306 í nóvember, 251 í desember en 312 í janúar 2008. Sömu mánuði á tímabilinu 2008 til 2009 voru 296 á skrá í október, 292 í nóvember, 235 í desember og 184 í janúar, eða alls 1.007 á móti 1.128 á tímabilinu árið áður. Opinberu störfin bætast við Inntur eftir skýringum á því hvers vegna svo litlu muni á fjölda skráðra starfa á milli ára segir Frank Friðrik Friðriksson, hag- fræðingur hjá Vinnumálastofnun, að í ágúst í fyrra hafi bæst við störf á Starfatorginu og að með því hafi komið inn störf hjá hinu opinbera. Í fljótu bragði myndi hann ætla að meiri munur væri á þessum tölum, ef ekki hefði komið til þessi viðbót hins opinbera. Vinnumálastofnun merkir áber- andi samdrátt fyrir norðan og segir Tómas Hermannsson, vinnumiðlari hjá útibúi hennar á Norðurlandi eystra, að frá því í janúar á þessi ári hafi alls níu störf komið inn á borð stofnunarinnar á Akureyri. Morgunblaðið/Arnaldur Ljós í myrkrinu Ef hugmyndir um gagnaver verða að veruleika styrkist staða tölvunarfræðinga enn frekar. Störf ættu því að bíða ungs tölvuáhugafólks. „Það allra versta í 28 ár“  Ráðningarstjóri Hagvangs dregur upp dökka mynd af vinnumarkaðnum  Miklu minna en áður um starfsauglýsingar hjá Capacent Ráðningum Morgunblaðið/ÞÖK Morgunblaðið/Kristinn STARFSFÓLK Akureyrarbæjar hafði úr vöndu að ráða þegar bær- inn auglýsti nýverið um 20 stöðu- gildi á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli. Þannig lögðu alls 116 umsækj- endur fram umsóknir í um 20 stöð- ur lyftuvarða, matráðs, svæðis- stjóra, tækjamanns og umsjónar- fólks með miðasölu, að sögn Höllu Margrétar Tryggvadóttur, starfs- mannastjóra Akureyrarbæjar. Akureyringar sýndu einnig mik- inn áhuga á lausri stöðu í verslun Benetton á Glerártorgi, þar sem um 50 manns sóttu um hana. Með líku lagi sótti hópur fólks um starf í afgreiðslu í Kristjánsbakaríi og vakti athygli á hversu breiðu aldursbili umsækjendur voru. Hjá Heru Kristínu Óðinsdóttur, auglýsingastjóra hjá Dagskránni, fengust þær upplýsingar að innan við fimm störf hefðu verið auglýst í blaðinu frá áramótum. Greinilegt væri að slíkum auglýsingum hefði fækkað miðað við síðustu ár. Slegist um fáar stöður Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Eftirsótt Lyfturnar í Hlíðarfjalli. „ÞAÐ vilja allir ráða forritara, kerfisfræðinga og tölvunar- fræðinga. Ég hef ekki orðið var við neinn samdrátt þarna,“ segir Gunnar Haug- en, fram- kvæmdastjóri Capacent Ráðninga. „Menn eru að manna upp hjá sér deildir sem ekki var hægt að gera áður, en að sama skapi er lít- ið sem ekkert framboð á fólki með þessa menntun [...] Þetta er stétt sem er erfitt að komast í og vera góður. Þetta er hreinlega mjög eftirsótt vinnuafl og það hafa til að mynda verið hér norsk fyrirtæki að ná í sér íslenska for- ritara og tölvufólk. Þá hafa Ís- lendingar verið að reyna að flytja inn tölvufólk undanfarið,“ segir Gunnar, sem bendir líka á að bók- arar séu alltaf vinsælir starfs- kraftar. Tækifæri til að fullmanna tölvudeildirnar Gunnar Haugen 14.155 á atvinnuleysisskrá í dag ERNA Hauksdóttir, framkvæmda- stjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir það gefa augaleið að mörg störf muni skapast í ferðaþjónustu í sumar, hversu mörg þau verði fari eftir fjölda ferðamanna, en of snemmt sé að áætla hann. Spurð hvort vonir standi til að ár- ið í ár slái met í fjölda ferðamanna bendir Erna á að síðustu ár hafi verið metár og að það yrði því varn- arsigur ef jafn margir kæmu í ár og í fyrra. Ferðaþjónustan skili um 19% af gjaldeyristekjum þjóð- arinnar, auk þess sem neysla ferða- manna, erlendra og innlendra, hafi numið 135 milljörðum kr. í fyrra. Vongóð um sumarstörf Atvinnumálin í brennidepli

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.