Morgunblaðið - 11.02.2009, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009
Íslenzkum sjónvarpsáhorfendumhnykkti við í gærkvöldi þegar
Ríkissjónvarpið flutti þeim fréttir af
yfirheyrslum yfir fjórum fyrrver-
andi stjórnendum brezkra banka
fyrir þingnefnd þar í landi.
Mennirnir báðust innilega og ein-læglega afsökunar á því, sem
miður hafði farið í rekstri bankanna,
sem þeir stýrðu.
Bankarnir eru nú
á framfæri
brezkra skatt-
greiðenda.
Bankastjór-arnir voru
sömuleiðis sam-
mála um það að
eftir á að hyggja
væri ofurlauna-
og kaupaukakerfi í bönkunum að
hluta til um bankahrunið að kenna.
Ekkert af þessu tagi hefur sézt tilþeirra, sem stýrðu íslenzku
bönkunum.
Sá bankamaður, sem hefur komiztnæst því að biðjast afsökunar, er
Bjarni Ármannsson, fyrrverandi
bankastjóri Glitnis. Hann var þó
ekki við stjórnvölinn þegar allt
hrundi.
Í gær skrifaði Sigurður Einarsson,fyrrverandi stjórnarformaður
Kaupþings, grein í Fréttablaðið.
Hann fór létt með að telja upp ílöngu máli mistökin sem Davíð
Oddsson hefði gert í starfi sínu í
Seðlabankanum.
Hans eigin mistök? Sigurðurnefndi þau ekki.
Hefur einhver, til dæmis fólkiðsem tapaði peningum í pen-
ingamarkaðssjóðum Kaupþings,
heyrt hann biðjast afsökunar?
Sigurður
Einarsson
Ásakanir og afsakanir
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
! "#$
! "#$
#%"
#%
!
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
& & '& & & & & & & & & & &
*$BC
!
" # ##
*!
$$B *!
( )
* %
)% #
+
<2
<! <2
<! <2
(*%"
,
$ - ."/
%
8-D
/
B
$ "
!"%
&
' (
<7
$ "
!"%
&
' (
<
)
#'*#+,
-
.
/
0 % 11
2"
01"" 22 %" 3# ,
$
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
RÍKISSTJÓRNIN hefur samþykkt að stofna vel-
ferðarvakt í samvinnu ríkis, sveitarfélaga, aðila
vinnumarkaðarins og fleiri aðila til að fylgjast
með félagslegum og fjárhagslegum afleiðingum
bankahrunsins á einstaklinga og fjölskyldur og
gera tillögur um viðbrögð. Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra,
mun skipa hóp til að stýra verkefninu, samhæfa
upplýsingaöflun og gera tillögur um viðbrögð.
„Efnahagsþrengingar þjóðarinnar með vaxandi
atvinnuleysi og fjárhagserfiðleikum einstaklinga
og fjölskyldna geta haft ýmsar félagslegar afleið-
ingar á borð við félagslega einangrun, andlega
vanlíðan, versnandi heilsufar og aukna hættu á
misnotkun áfengis og vímuefna. Þá hafa erlendar
rannsóknir á afleiðingum efnahagsþrenginga sýnt
hættu á auknu heimilisofbeldi og vanrækslu á
börnum,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.
Hlutverk velferðarvaktarinnar verður m.a. að
afla upplýsinga um félagslegar og fjárhagslegar
afleiðingar bankahrunsins á einstaklinga og fjöl-
skyldur, afla upplýsinga um reynslu annarra
þjóða af efnahagsþrengingum, kortleggja hvaða
leiðir ríki, sveitarfélög og félagasamtök hafa til að
bregðast við vandanum og efna til samráðs með
fulltrúum opinberra stofnana, félagasamtaka og
öðrum sem lagt geta sitt af mörkum vegna þekk-
ingar sinnar og reynslu.
Velferðarvaktin verður skipuð fulltrúum frá fé-
lags- og tryggingamálaráðuneyti, fjármálaráðu-
neyti, dómsmálaráðuneyti, heilbrigðisráðuneyti,
menntamálaráðuneyti, viðskiptaráðuneyti, Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga, Reykjavíkurborg,
ASÍ, Samtökum atvinnulífsins, Bandalagi starfs-
manna ríkis og bæja, Bandalagi háskólamanna,
Biskupsstofu og Rauða krossi Íslands.
Koma á fót velferðarvakt
Vaktin á að fylgjast með afleiðingum efnahagsþrenginga þjóðarinnar
Eftir Gunnar Kristjánsson
Grundarfjörður | Elzbieta Krystyna
Elísson hefur verið að fást við
handverk og hönnun um nokkurt
skeið. Hlutirnir sem hún hnýtir úr
vaxborinni bómull og hör með perl-
um, steinum og jafnvel hrauni eru
hinir eigulegustu skartgripir. Segist
Ela eins og hún er kölluð ekki vita
til þess að sams konar framleiðsla
sé til hér á landi. Ela ákvað að
koma verki sínu á framfæri með því
að opna föstudaginn 6. febrúar sl.
gallerí í kjallara einbýlishússins
sem hún og eiginmaður hennar,
Pétur Elísson, reistu fyrir allmörg-
um árum og er að Fellabrekku 3 í
Grundarfirði. Pétur, maður Elu,
lést á síðasta ári.
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Listiðn Elzbieta Krystyna Elísson og nokkur hluti af handverkinu.
Handverk sem á
sér ekki hliðstæðu
Í HNOTSKURN
»Elzbieta Krystyna Elíssonsem er pólsk að uppruna
hefur verið búsett í Grund-
arfirði í fjölmörg ár.
»Hún hefur nú opnað sýn-ingu á handverki sínu
heima hjá sér.