Morgunblaðið - 11.02.2009, Síða 14

Morgunblaðið - 11.02.2009, Síða 14
14 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is UNDANFARNA daga hafa hægar austlægar áttir verið ríkjandi á höf- uðborgarsvæðinu. Því hefur fylgt viðvarandi lykt af brennisteinsvetni (H2S), svokölluð hveralykt. Mánu- dagurinn 2. febrúar var metdagur á loftgæðamælistöðvunum við Grens- ásveg í Reykjavík og Álalind í Kópa- vogi. Við Álalind mældist sólar- hringsmeðaltal brennisteinsvetnis jafnhátt og heilsuverndarviðmið WHO, Alþjóðaheilbrigðismálastofn- unarinnar. Sólarhringsmeðaltal brennisteinsvetnis hefur aldrei fyrr mælst við þessi mörk í byggð á höf- uðborgarsvæðinu. Á allra síðustu dögum hefur gildi brennisteinsvetnis mælst hátt og suma daga mælst upp undir það sem var metdaginn fyrir rúmri viku. Á morgun verður breyting á veðrinu þegar hvessir og hlýnar og þá verð- ur þetta vandamál úr sögunni, í bili a.m.k. Fer aftur niður í jörðina Orkuveita Reykjavíkur hefur unn- ið að því um hríð að hefja hreinsun hveralyktar úr gufunni, sem kemur frá virkjun fyrirtækisins á Hellis- heiði. Í vor mun hefjast blöndun þess við niðurrennslisvatn frá virkj- uninni, þannig að því verður veitt niður í jarðhitageyminn, þaðan sem það kom upphaflega. Þá hefur Orku- veitan lýst því yfir, í tengslum við umhverfismat áformaðra virkjana, að hveralykt frá þeim verði hreinsuð frá upphafi reksturs. Að sögn Eiríks Hjálmarssonar, upplýsingafulltrúa Orkuveitu Reykjavíkur, hafa ýmsar leiðir verið kannaðar til þess að leysa þetta vandamál. Ein leiðin er að vinna brennistein úr útblæstrinum. Sú leið er ekki talin hagkvæmur kostur, allavega ekki nú um stundir. Mark- aðsverð á brennisteini er lágt og þessi vinnsla yrði því ekki arðbær. Önnur leið er að láta hveraörverur éta brennisteinsvetnið. Fyrirtækið Prókatín hefur unnið að til- raunaverkefni um tíu ára skeið á Nesjavöllum, undir stjórn dr. Jak- obs Kristinssonar. Nýlega var tekin ákvörðun um að setja meira fé í þetta verkefni. Að sögn Eiríks er þetta spennandi verkefni, sem gæti orðið framtíðarlausn. Þegar örver- urnar éta brennisteinsvetnið verður til aukaafurð, prótín, sem gæti orðið verðmæt útflutningsvara. Þriðja leiðin er sú sem fyrr getur, þ.e. að dæla brennisteinsvetninu aft- ur niður í jörðina. Nú er verið að setja upp búnað við Hellisheið- arvirkjun, sem á að skilja loftteg- undir frá útblæstrinum. Brenni- steinsvetni og koltvísýringi verður síðan blandað saman við niðurfalls- vatnið frá virkjuninni og efnin fara því niður í jörðina að nýju. Ef reynslan verður góð leysist annað vandamál sem hefur fylgt hveralyktinni, nefnilega það að fallið hefur á silurborðbúnað í híbýlum fólks, því til mikils ama. „Ekki þarf að óttast bráðaáhrif af þessum styrk en þó skal hér tilgreint að langtímaáhrif brennisteinsvetnis í lágum styrk á heilsu fólks eru ekki vel rannsökuð,“ segir á vef Um- hverfisstofnunar um mælingar á styrk brennisteinsvetnisins. Þegar brennisteinsvetni mælist í þessum styrk, sem það hefur gert að und- anförnu, sé mögulegt að fólk, sem býr nærri upptökum mengunar- innar og er viðkvæmt fyrir brenni- steinsvetni, geti fundið fyrir höf- uðverk og ógleði. Nær virkjunar- svæðinu megi búast við meiri styrk sem þá geti haft áhrif á heilsu manna. Fleiri mælistöðvar settar upp Unnið er að uppsetningu fleiri mælistöðva sem mæla brennisteins- vetni, meðal annars á virkjanasvæð- inu, í Norðlingaholti og Hveragerði. Einnig er hafin á Umhverf- isstofnun vinna við að setja umhverf- ismörk fyrir brennisteinsvetni en fram til þessa hafa einungis vinnu- verndarmörk verið til staðar í ís- lenskum reglugerðum. „Orkuveita Reykjavíkur fagnar því að sífellt betur er fylgst með styrk hveralyktarinnar og á fyr- irtækið þátt í auknum og útbreiddari mælingum. Hinn langvinni kafli hægra austanátta í talsverðum frostum olli hinum háa styrk síðustu daga. Slíkar aðstæður eru fremur fá- tíðar,“ segir á vef Orkuveitunnar. Hveralyktin í hámarki Mældist jafnhátt heilsuverndarvið- miði WHO Morgunblaðið/Júlíus Hátt til himins Á góðviðrisdögum eins og að undanförnu sjást gufustrók- arnir frá Hellisheiðarvirkjun teygja sig til himins. Tilkomumikil sjón.       9:  .;2<=  >9?<9   99  A 9;BC9D          7     ; $ $  $ Í DRÖGUM forsætisnefndar Alþingis að reglum um skráningu á fjárhagslegum hagsmunum al- þingismanna er lagt fyrir þingmenn að gera grein fyrir eignum í félögum sem eru verðmeiri en ein milljón króna og fyrir hvers kyns tekjum sem þingmenn fá fyrir önnur störf en þingstörf. Þá skuli þingmenn gera grein fyrir því hvort þeir hafi gert samkomulag við fyrrverandi vinnuveitanda, m.a. hvort nýtt starf bíði þeirra þegar þeir hverfa af þingi. Samkvæmt drögunum skulu þeir þingmenn sem óska eftir að skrá fjárhagslega hagsmuni sína gera það samkvæmt reglunum. Þingmönnum er í sjálfsvald sett hvort þeir skrá upplýsingarnar. Skrá skal tekjur af launaðri stjórnarsetu í einkareknum eða opinberum félögum, tekjur af verkefni eða launaðri stöðu annarri en launuðum þingmannsstörfum og tekjur af sjálfstæðri tekju- myndandi starfsemi sem unnið er að auk starfs þingmanns. Þá skal veita upplýsingar um gjafir sem eru verðmætari en 50 þúsund krónur og geta tengst setu á þingi, utanlandsferðir sem ekki eru að fullu greiddar af ríkissjóði og fjárhagslegan stuðning sem er hærri en 50 þúsund krónur og getur tengst setu á þingi. Í drögunum er gert ráð fyrir að upplýsingarnar liggi fyrir hjá forstöðumanni fjármálaskrifstofu og að forsætisnefnd geti ákveðið að þær verði einnig aðgengilegar á heimasíðu Alþingis. Þingflokkur Vinstri grænna gerði nokkrar at- hugasemdir við drögin, þá helsta að flokkurinn vill að þingmönnum verði skylt að gefa ofangreindar upplýsingar og um það verði sett lög. Meðal ann- arra tillagna VG var að þingmenn gerðu grein fyr- ir fasteignum sínum, öðrum en heimili og land- eignum. 300.000 krónur í lögum um fjármál flokka Sjálfstæðisflokkurinn taldi að skoða þyrfti bet- ur orðalag um að gjafir til þingmanna gætu tengst setu á Alþingi. Einnig vakti þingflokkurinn at- hygli á að kanna þyrfti betur hvernig ákvæði í drögunum um gjafir og fjárhagslegan stuðning o.fl., en í þeim ákvæðum er hámarkið miðað við 50 þúsund krónur, passaði saman við lög um fjármál stjórnmálaflokka. Í lögum um fjármál flokkanna kemur m.a. fram að flokkar og frambjóðendur (í prófkjörum) megi taka við styrkjum upp á 300.000 krónur. runarp@mbl.is Skrái gjafir yfir 50.000 kr. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Gjöf til gjalda? Reglunum er ætlað að upplýsa um fjárhagslega hagsmuni alþingismanna.  Alþingismenn geri grein fyrir eignum í félögum umfram eina milljón og tekjum sem þeir fá vegna starfa utan þings  Segi frá samningum við vinnuveitanda FORSETI Ís- lands, Ólafur Ragnar Gríms- son, og Dorrit Moussaieff for- setafrú munu heimsækja Hvolsskóla á Hvolsvelli í dag. Tilefnið er að skólinn hlaut Ís- lensku mennta- verðlaunin árið 2008 í flokki skóla sem hafa sinnt vel nýsköpun og far- sælu samhengi í fræðslustarfi. Fulltrúar nemenda, skólastjóri og kennarar Hvolsskóla munu taka á móti forsetahjónunum kl. 9 og kynna skólastarfið. Heimsókninni mun ljúka á hádegi. Forsetahjónin fara til Hvolsvallar í dag Heimsókn Ólafur Ragnar og Dorrit. DAGUR neyðarnúmersins, 112- dagurinn er haldinn í dag um allt land. Að þessu sinni er áherslan lögð á að vekja athygli grunnskóla- barna á því víðtæka öryggis- og vel- ferðarneti sem þau hafa aðgang að í gegnum neyðarnúmerið ef eitt- hvað bjátar á. Börnunum er jafn- framt bent á að þau geta sjálf gert ýmislegt til að stuðla að eigin ör- yggi og annarra, meðal annars með þátttöku í starfi sjálfboðaliða- samtaka. Áhersla á öryggi barna á 112-degi SAMBANDSSTJÓRN Samiðnar samþykkti á fundi sínum í fyrradag að veita miðstjórn umboð til að fresta endurskoðun á launalið kjarasamninga sem taka áttu gildi 1. mars nk. Jafnframt lýsti sam- bandsstjórnin yfir vonbrigðum með hversu hægt gengi hjá stjórnvöld- um að taka ákvarðanir um við- brögð við atvinnuleysi meðal fé- lagsmanna Samiðnar. Samiðn frestar HUGVIT hefur hlotið gullvottun Microsoft fyrir hugbúnaðarþróun í Microsoft-umhverfi og mikla þekk- ingu starfsmanna á Microsoft- lausnum. Fyrirtækið hefur síðustu árin þróað GoPro.net, veflægt skjalastjórnunarkerfi sem byggist á .Net forritunarumhverfi Microsoft, og er gullvottunin fyrst og fremst byggð á árangri þeirrar vinnu. Hugvit hefur um árabil verið einn af stærstu birgjum lausna fyrir hópvinnukerfi í skjalavörslu á Ís- landi og hefur einnig selt lausnir sínar víða í Evrópu Á myndinni eru Halldór Jörg- ensson, framkvæmdastjóri Micro- soft Íslandi, Sveinn Stefán Hann- esson hjá Hugviti og Eiríkur Fannar Torfason hjá Hugviti. Fengu gullvottun fyrir GoPro.net STUTT Hvað er hveralykt? Hveralykt stafar af brennisteinsvetni sem kemur upp með heitri gufu á jarðhitasvæðum. Lyktin finnst einnig af hitaveituvatni þegar örlitlu magni af brennisteinsvetni er bætt í vatnið til að eyða uppleystu súrefni sem myndi annars tæra vatnsleiðslur. Hvað er brennisteinsvetni? Brennisteinsvetni eða vetnissúlfíð (H2S) er litlaus eitruð gastegund. Megn lykt er af brennisteinsvetni þótt magn þess sé lítið í andrúms- loftinu, það er brennisteinsvetni sem veldur lykt af fúleggjum og jöklafýlu sem gjarnan fylgir hlaupum í jökul- ám. Lyktin hverfur hins vegar þegar styrkur brennisteinsvetnis í and- rúmslofti eykst og það verður lífs- hættulegt. Brennisteinsvetni er þyngra en andrúmsloftið og getur því lagst í dældir. S&S

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.