Morgunblaðið - 11.02.2009, Qupperneq 15
Fréttir 15INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
„EFTIR atburði haustsins óttaðist ég
hvert stefndi og gerði mér grein fyrir
að ekki væri tímabært að ganga end-
anlega frá handritinu. Ég beið því
með lokakaflann í aldargamalli sögu
Kaupfélags Héraðsbúa,“ segir Jón
Kristjánsson, fyrrverandi alþingis-
maður og ráðherra. Félagið fór ný-
verið í þrot og ekki eru líkur á að mik-
ið verði um hátíðarhöld á
aldarafmælinu 19. apríl.
Á þeim merkisdegi stóð til að gefa
út sögu þessa umsvifamikla fyrirtæk-
is. Jón telur litlar líkur á að af útgáf-
unni verði að sinni að minnsta kosti.
„Ég hef unnið við að skrá þessa sögu
síðasta hálft annað árið og var svona
að snurfusa handritið þegar fyrirtæk-
ið fór í þrot. Ég held að ekki verði
gefnar út stórar bækur á þessum
tímapunkti úr því sem komið er,“ seg-
ir Jón.
Þungamiðja í atvinnulífi
á Fljótsdalshéraði
Hann hefur um árabil tengst starf-
semi Kaupfélags Hérðasbúa og var
starfsmaður þess 1963-85 og stjórn-
arformaður 1985-95. „Kaupfélagið
var virkur þátttakandi í samfélaginu
og þungamiðja í atvinnulífi á Héraði á
tímabili, meðan fjölbreytt starfsemi
þess var í fullum gangi,“ segir Jón.
Hann rifjar upp að Kaupfélag Hér-
aðsbúa var stofnað árið 1909 eftir
gjaldþrot Pöntunarfélags Fljótsdals-
héraðs, sem var stofnað 1886. Það var
með aðalstöðvar á Reyðarfirði fram
til 1961. Árið 1946 byrjaði KHB að
byggja upp sína starfsemi á Egils-
stöðum með byggingu verslunarhúss
og sláturhúss. Þessar framkvæmdir
voru stór þáttur í uppbyggingu hins
unga samfélags þar.
Rjómabú var byggt upp úr 1950 og
síðan breytt í mjólkurbú 1958.
KHB rak allmikla útgerð og fisk-
vinnslu á Reyðarfirði á tímabili frá því
upp úr 1970 í samvinnu við Aðalstein
Jónsson á Eskifirði. Á Reyðarfirði
rak kaupfélagið frystihús og var m.a.
með fullvinnslu á fiski fyrir Mark’s og
Spencer. Þessi starfsemi var seld á tí-
unda áratugnum.
Ekki allt gróðavegur
Af annarri starfsemi má nefna að
fyrirtækið var um tíma með öflugt
flutninganet og var með marga bíl-
stjóra í vinnu. Einnig átti KHB um
tíma Prjónastofuna Dyngju. KHB
kom víða við og var hluthafi í mörgum
fyrirtækjum, þótt það væri ekki allt
gróðavegur, eins og Jón Kristjánsson
orðar það.
Um síðustu aldamót var slátrun
hætt á vegum KHB og nokkru síðar
keypti Mjólkurbú Flóamanna mjólk-
urstöðina.
KHB keypti Malarvinnsluna, stórt
byggingar- og verktakafyrirtæki á
Egilsstöðum, fyrir nokkrum árum.
Nokkurn veginn á sama tíma og
framkvæmdum við stóriðju og ál-
verksmiðju var að ljúka fyrir austan.
Afskaplega sár endalok
Þegar Malarvinnslan varð gjald-
þrota síðastliðið haust mátti ljóst vera
að staða Kaupfélagsins, sem var stór
hluthafi, yrði illviðráðanleg. Svo fór
að KHB tapaði meirihluta af eigin fé
sínu í því gjaldþroti.
„Þetta eru afskaplega sár endalok
hjá öflugu fyrirtæki, sem veitt hefur
mörgum atvinnu,“ segir Jón Krist-
jánsson. „Ég hef verið tengdur þessu
fyrirtæki stóran hluta ævi minnar og
finnst veruleg eftirsjá í því.“
Beið með lokakaflann
Var að snurfusa handrit að sögu KHB er félagið fór í þrot Stór þáttur í uppbygg-
ingu samfélagsins á Egilsstöðum Gjaldþrot Malarvinnslunnar þungur baggi
Morgunblaðið/Kristinn
Aldarsaga Jón Kristjánsson segir endalok Kaupfélags Hérðasbúa af-
skaplega sár og eftirsjá sé í fyrirtækinu. Hann hefur tengst KHB í áratugi.
Í HNOTSKURN
»Rekstur Kaupfélags Hér-aðsbúa er kominn í þrot.
»Samkaup kaupir versl-unarrekstur KHB.
»N1 kaupir rekstur hrað-búðar og söluskála kaup-
félagsins á Egilsstöðum.
»Skuldir nema um einum oghálfum milljarði. UNNIÐ er að skiptum á þrotabúiKaupfélags Vopnfirðinga, sem lýstvar gjaldþrota í október 2005.
Að sögn Gísla M. Auðbergssonar,
lögmanns á Eskifirði, sem er
skiptastjóri þrotabúsins, var
skiptafundur haldinn 12. janúar sl.
Á þeim fundi var ákveðið að ljúka
skiptum, og er Gísli að vinna að því
verki. Býst hann við að boða til nýs
skiptafundar áður en langt um líð-
ur. Að sögn Gísla hafa skiptin taf-
ist vegna þess að vonir stóðu til að
búið ætti eignir, sem myndu koma
til skipta. Í kjölfar bankahrunsins
varð ljóst að þessar eignir væru
ekki lengur fyrir hendi.
Lýstar kröfur í þrotabú Kaup-
félags Vopnfirðinga nema alls um
144 milljónum króna. Stærsti
kröfuhafinn er Landsbanki Íslands,
sem var viðskiptabanki kaup-
félagsins. Annar stærsti kröfuhaf-
inn er Kaldbakur. Aðrir eiga
smærri kröfur á félagið. Helstu
eignir voru rekstur félagsins og
fasteignir.
Kaupfélag Vopnfirðinga var
stofnað 1918. Það var umsvifamesti
atvinnurekandinn á Vopnafirði á
síðustu öld. sisi@mbl.is
Lýstar kröfur
námu 144
milljónum
Kaupangur Höfuðstöðvar kaup-
félagsins voru þar á síðustu öld.
ALLS buðu 32 verktakar í end-
urgerð á 7,4 km löngum kafla
Rangárvallavegar, frá Hringvegi
að Akurbrekku, samkvæmt upplýs-
ingum frá Vegagerðinni.
Tilboðin voru opnuð í gær og átti
Þjótandi ehf. á Hellu lægsta til-
boðið. Það hljóðaði upp á rúmar 48
milljónir sem eru 62 prósent af
áætluðum verktakakostnaði sem
var rúmar 78 milljónir króna.
Ekki hefur verið haldið útboð á
vegum Vegagerðarinnar síðan í
haust en þá var öllum útboðum
frestað vegna efnahagsástandsins.
„Það er athyglisvert að 32 fyr-
irtæki skuli hafa lagt það á sig að
reikna þetta út og skila inn gögn-
um. Þetta er miklu hærri tala en við
höfum séð í sambærilegu verki.
Þessi mikla útboðsþátttaka sýnir að
það er mikill verkefnaskortur,“
segir Árni Jóhannsson, for-
stöðumaður mannvirkjasviðs Sam-
taka iðnaðarins.
Árni tekur það fram að það auki
mönnum bjartsýni að útboðsbann-
inu skuli vera
lokið. Verktakar
í jarðvinnu hafi
þurft að segja
mörgum upp.
„Nú eru þeir að
gera sig klára
fyrir næsta ár.
Það hefur ekki
verið neitt fram-
undan. Þetta út-
boð var fyrsta hreyfingin á þessum
markaði. Vegagerðin mun fram-
kvæma fyrir 20 milljarða króna á
þessu ári en 6 milljarðar munu fara
í nýjar framkvæmdir sem verktak-
ar munu bítast um. Þetta þýðir
blessunarlega að verktakar sjá
fram á einhver verkefni þannig að
þeir geti haldið sínum mannskap,“
segir Árni.
G. Pétur Matthíasson, upplýs-
ingafulltrúi Vegagerðarinnar, seg-
ir að hjá stofnuninni muni menn
ekki hvenær jafnmörg tilboð hafi
borist síðast, að minnsta kosti ekki í
svona lítið verk. ingibjorg@mbl.is
Yfir 30 tilboð í sjö
km vegarkafla
Árni Jóhannsson.
– Lifið heil
Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
20% verðlækkun
NERVIDIX
Segðu BLESS við taugaóróa og stress. Upplifðu
innri frið og skýrari fókus – 100% náttúruleg formúla.
1.867 kr. 1.494 kr. Gildir til 15. 2. 09
20% verðlækkun
DEPRIDIX
Segðu BLESS við depurð og tómleikatilfinningu.
Finndu lífsorkuna á ný – 100% náttúruleg formúla.
1.867 kr. 1.494 kr.
20% verðlækkun
ENERGIX
Segðu BLESS við orkuleysi. Örvaðu orkuflæðið
og einbeitinguna – 100% náttúruleg formúla.
1.867 kr. 1.494 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
44
83
2
01
/0
9
Auglýst eftir framboðum
til prófkjörs í Reykjavík
Ákveðið hefur verið að prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins fyrir
alþingiskosningarnar vorið 2009 fari fram 13. og 14. mars næstkomandi.
Val frambjóðenda fer fram með tvennum hætti:
a) Gerð er tillaga til yfirkjörstjórnar innan ákveðins framboðsfrests sem yfirkjörstjórn
setur. Tillagan er því aðeins gild að hún sé bundin við einn flokksmann. Enginn
flokksmaður getur staðið að fleiri tillögum en hann má fæst kjósa í prófkjörinu.
Tillagan skal borin fram af 20 flokksmönnum búsettum í kjördæminu.
b) Kjörnefnd er heimilt að tilnefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar frambjóðendum
skv. a-lið.
Hér með er auglýst eftir tillögum að framboðum til prófkjörs, sbr. a-lið hér að ofan. Skal
framboð vera bundið við flokksbundinn einstakling enda liggi fyrir skriflegt samþykki
hans um að hann gefi kost á sér til prófkjörs. Frambjóðendur skulu vera kjörgengir í
alþingiskosningunum. Enginn flokksmaður getur staðið að fleiri framboðum en 10.
Tillögum að framboðum ber að skila, ásamt mynd af viðkomandi og stuttu
æviágripi á tölvutæku formi, á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins, Valhöll Háaleitisbraut 1,
eigi síðar en kl. 12.00 föstudaginn 20. febrúar 2009.