Morgunblaðið - 11.02.2009, Síða 16

Morgunblaðið - 11.02.2009, Síða 16
16 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 Þetta helst ... ● RAGNAR H. Hall, lögmaður Baugs, tilkynnti fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær að stjórn félagsins hefði aft- urkallað beiðni um greiðslustöðvun fjórtán félaga. Einungis er farið fram á greiðslustöðvun Baugs Group. Dómari tók sér frest til að kveða upp úrskurð í því máli. Gert er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyrir í dag. Sl. föstudag fór dómarinn fram á nýrri gögn um fjárhagsstöðu Baugs en frá í september á síðasta ári. Voru þau lögð fyrir í gær. bjorgvin@mbl.is Bíða eftir úrskurði ● BRESKA sportvörufyrirtækið JJB Sports hefur ákveðið að setja versl- anakeðjur sínar tvær, Qubefootwear og Original Shoe Company, í greiðslu- stöðvun. Exista var, ásamt fyrrv. for- stjóra JJB Sports, Chris Ronnie, stærsti hluthafi félagsins með rúm 27%. Kaupþing í Bretlandi gerði hins vegar veðkall í bréfin og tók þau yfir um miðjan janúarmánuð. Exista keypti hlutinn í JJB Sports ár- ið 2006 á genginu 275 pens á hlut, eða um 190 milljónir punda. Í gær var gengi bréfa félagsins hins vegar komið í 12,25 pens á hlut eftir 4% lækkun innan dags. bjarni@mbl.is Verslanir JJB Sports í greiðslustöðvun ● „UNDANFARNA daga hefur borið á þeim misskilningi að fyrirtæki okkar, Aurum ehf., Bankastræti 4, sé ruglað saman við Aurum Holding í eigu Baugs í Lond- on. Við viljum koma því á fram- færi að engin eignatengsl eru á milli Baugs og Aurum ehf., Bankastræti 4. Aurum ehf. er ís- lenskt fyrirtæki og var stofnað fyrir 10 árum af Karli Jóhanni Jóhannssyni og Guðbjörgu Kristínu Ingvarsdóttur skartgripahönnuði og er 100% í eigu þeirra,“ segir í tilkynningu. Verslunin Aurum hefur engin tengsl við Baug Guðbjörg K. Ingvarsdóttir N1 HEFUR eignast allt hlutafé í Kynnisferðum eftir að hlutafé í síð- arnefnda félaginu var aukið um 150 milljónir króna. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, segir í samtali við Morgunblaðið að hlutafjáraukningunni hafi verið ætlað að tryggja Kynnisferðum nægilegt rekstrarfé fram á sumar. „Við núverandi efnahagsaðstæður hefur mörgum fyrirtækjum reynst erfitt að fá fyrirgreiðslu hjá bönk- unum og eru Kynnisferðir engin und- antekning þar.“ Átti N1 fyrir um þriðjungshlut í Kynnisferðum, en keypti allt nýja hlutféð sem gefið var út nýlega. Við það eignaðist N1 100% hlut í Kynnisferðum. „Við lítum svo á að við höfum bjargað tugum starfa,“ segir Hermann. bjarni@mbl.is N1 eignast Kynnisferðir FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is SKILANEFND Glitnis mun leggja Moderna, sænsku dótturfélagi Mile- stone, til aukið rekstarfé, Sjóvá verð- ur fært undan Moderna og núver- andi eigendur félagsins munu starfa áfram við rekstur þess en missa alla eign sína ef yfirstandandi samnings- viðræður ganga eftir, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Viðræður um þessa niðurstöðu hafa verið í gangi milli sænska fjár- málaeftirlitsins (FI) og skilanefndar Glitnis að undanförnu og er vonast til þess að FI gefi lokasvar um það hvort af verður í dag. Verði samkomulagið að veruleika þá mun skilanefnd Glitnis eiga möguleika á því að endurheimta ein- hverja tugi milljarða króna sem hefðu verið tapaðir ef Moderna hefði verið sett í þrot. Heimildir Morgun- blaðsins herma að erlendir kröfuhaf- ar gamla Glitnis hafi samþykkt þessa leið og gefið skilanefndinni heimild til þess að leggja fjármagn inn í Moderna til að reyna að há- marka virði eigna sinna. Milestone mun verða haldið í rekstri í Svíþjóð en tryggingafélagið Sjóvá verður tekið undan Moderna, dótturfélagi Milestone. Heimildir Morgunblaðsins herma að mikil áhersla hafi verið lögð á að tryggja stöðu Sjóvár, enda félagið eitt stærsta tryggingafélag Íslands. Fyrri eigendur tapa sínu Fyrri eigendur og stjórnendur Milestone munu ekki eiga möguleika á að eignast hlut í Milestone eins og upphaflega stóð til en munu samt sem áður starfa áfram með því sem nokkurskonar starfsmenn skila- nefndar gamla Glitnis. Því verður flókin endurskipulagn- ing á starfsemi að veruleika en með nokkrum veigamiklum breytingum. Upphaflega stóð til að lánveitendur Milestone myndu breyta 53 prósent- um af kröfum sínum aftur í lán en að 47 prósent þeirra myndu breytast í rétt til hlutabréfakaupa. Þegar til- lögurnar voru upphaflega lagðar fram námu skuldir Milestone 115 milljörðum króna en eignir félagsins voru metnar á 60 milljarða króna. Samkvæmt þeim áttu núverandi eigendur Milestone, bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir, að geta eignast aftur 13 prósenta hlut í félaginu ef eignir þess myndu tvö- faldast í verði og fá auk þess kaup- rétt á allt að 27 prósentum til við- bótar. Nú er ljóst að af því verður ekki og að bræðurnir hafa misst alla eign sína í Milestone. Fluttu eignirnar til Svíþjóðar Milestone seldi allar íslenskar eignir sínar Moderna í Svíþjóð í jan- úar 2008, en það félag er að fullu í eigu Milestone. Á meðal íslenskra fyrirtækja sem um ræðir eru Sjóvá, Askar Capital og Avant. Þar með var öll meginstarfsemi Milestone komin til Svíþjóðar. FI þarf að samþykkja að aðilar geti far- ið með ráðandi eignarhluti í skráðum og eftirlitsskyldum félögum þar í landi. Stjórnendur Milestone hafa þegar hlotið slíkt samþykki en hvorki nýi né gamli Glitnir getur far- ið beint með slíkan eignarhlut. Bræðurnir missa Milestone en reksturinn heldur áfram  Skilanefnd Glitnis mun leggja Moderna til aukið fé  Sjóvá fært heim til Íslands Í HNOTSKURN »Flókin endurskipulagningá starfsemi Milestone hef- ur staðið yfir í nokkra mánuði. »Allt útlit var fyrir að afhenni yrði ekki eftir að sænska fjármálaeftirlitið hafnaði útfærslu hennar. »Nú hefur verið lögð frambreytt tillaga sem felur meðal annars í sér að nýtt rekstrarfé verður lagt inn. Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is HREIN eign íslenskra lífeyrissjóða var 181 milljarði króna lægri um ára- mót en hún var í lok septembermán- aðar og hafði því lækkað um tíu pró- sent frá því bankahrunið átti sér stað á Íslandi. Þetta kemur fram í efna- hagsyfirliti sem Seðlabanki Íslands birti í gær. Hrein eign íslenskra lífeyrissjóða var 1.658 milljarðar króna í lok síð- asta árs en í september síðastliðnum voru eignir þeirra 1.839 milljarðar króna. Virði eigna sjóðanna dregst saman um 48 milljarða króna á milli nóvember og desembermánaðar. Samkvæmt tilkynningu á vef Seðla- bankans ríkir enn nokkur óvissa um endanlegt mat á eignum lífeyrissjóð- anna. Mikið tap á innlendum bréfum Hlutabréfaeign sjóðanna hefur dregist mikið saman á þessu tímabili. Hún var um 229 milljarðar króna í lok september en stóð í um 106 milljörð- um króna í lok árs 2008. Þorra þeirrar rýrnunar má rekja til taps á innlend- um hlutabréfum en sjóðirnir áttu slík bréf fyrir 141 milljarð króna í sept- ember en heildarandvirði þeirra var um 30 milljarðar króna um áramót. Tap á erlendum hlutabréfum nemur um ellefu milljörðum króna á um- ræddu tímabili. Þá hefur eign þeirra í erlendum hlutabréfasjóðum dregist saman um 29 milljarða króna. Þá áttu lífeyrissjóðirnir 808 millj- arða króna í verðbréfum með breyti- legum tekjum fyrir hrunið en sú eign þeirra í slíkum bréfum var metin á um 601 milljarð króna í árslok. Ljóst er að sjóðirnir hafa í auknum mæli lagt fé sitt í sjóði og bankainn- stæður eftir bankahrunið því að upp- hæð slíkra fjárbindinga í árslok var 154 milljarðar króna en hafði verið 85 milljarðar króna fyrir hrun. 181 milljarðs lækkun  Hrein eign lífeyrissjóðanna rýrnaði um 181 milljarð frá hruni  Óvissa um endanlegt mat á eignum sjóðanna 0<  ? : 5  EF  ? G ;  & ;  E G ;D  $ & ;D  $ G ;D  E & ;D  E "   < A                    99  $ = $ $; $    ! !  " " "!  #!"                     Mikilvægasta verkefni stjórn- valda í Bretlandi, Evrópu og reynd- ar um allan heim um þessar mund- ir er að auka á ný útlán fjármála- fyrirtækja. Þetta er mat Alistair Darling, fjármálaráðherra Bret- lands. Hann sagði þetta eftir fund fjár- málaráðherra Evrópusambandsins í Brussel samkvæmt frétt BBC. Hann sagði jafnframt mjög mik- ilvægt að komið yrði í veg fyrir að ríki Evrópu færu hvert um sig að huga að því að vernda eigið atvinnu- líf með víðtækum verndaraðgerðum. Reyndar var það niðurstaða fundar fjármálaráðherranna að vara við slíku. Sagði Darling að Evrópuríkin þyrftu meira á nágrönnum sínum að halda nú en nokkru sinni fyrr, til að takast á við fjármálakreppuna í heiminum. gretar@mbl.is Segir að auka þurfi útlánin Alistair Darling 1(H 1(H       I I 1(H %'H      I I 6 J!   #;      I I %30& 6"H       I I 1(H& 1(H'     I I ● KÍNVERJAR hafa í fyrsta skipti farið fram úr Bandaríkjamönnum sem mestu bílakaupendur í heimi. Samkvæmt op- inberum tölum frá Kína voru seldir um 735 þúsund bílar í Kína í janúarmánuði síðastliðnum. Samsvarandi tölur frá Bandaríkjunum segja að þar hafi verið seldir um 657 þúsund bílar. Segir í frétt BBC að í þessum tölum hafi áhrif að alla jafna dragi úr sölu bíla í Bandaríkjunum eftir jólin. Því spái sér- fræðingar því að Bandaríkjamenn taki forystuna þegar litið verður á árið í heild. gretar@mbl.is Kínverjar fram úr Bandaríkjamönnum EIMSKIP hefur gengið frá kaupum á íslenska flutningsfyrirtækinu Iceex- press, sem er með aðsetur á JFK- flugvelli í New York og Norfolk í Virginíu og starfar við frakt- flugflutninga til og frá Íslandi. Fyrirtækið hefur verið aðalþjón- ustuaðili TVG-Zimsen, flutningsmiðl- unarfyrirtækis Eimskips, í gegnum tíðina og rekur m.a. vörubíla í Banda- ríkjunum. „Við erum að renna saman þessum fyrirtækjum og erum að fara inn í flugið að nýju,“ segir Gylfi Sig- fússon, forstjóri Eimskips. Hann seg- ir kaupverðið trúnaðarmál en það sé í raun greitt upp með hagræðingunni sem felst í yfirtöku félagsins. Við kaup Eimskips á Iceexpress var stöðugildum hjá síðarnefnda félaginu fækkað um sex. Gylfi segir að Eimskip hafi verið að skoða Iceexpress í lengri tíma og ver- ið boðið að kaupa félagið í maí á síð- asta ári. Verðið sem greitt sé nú sé 20% lægra en verðmat sem gefið var út í fyrra af Saga Capital. Iceexpress er í eigu bræðranna Lárusar og Jóns Ísfeld og meðal við- skiptavina félagsins eru fjölmörg ís- lensk fyrirtæki, þ. á m Marel. Iceex- press átti rekstrarleyfið fyrir ShopUSA gagnvart Íslandi, en það fylgir ekki með í kaupunum. thorbjorn@mbl.is Eimskip kaupir Iceexpress Morgunblaðið/Ómar Eimskip Gylfi Sigfússon segir að kaupverðið sem greitt var fyrir Iceexpress greiðist með hagræðingunni sem felst í kaupunum á ársgrundvelli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.