Morgunblaðið - 11.02.2009, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 11.02.2009, Qupperneq 17
Fréttir 17ERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is BÚIST er við að samningaviðræð- urnar um myndun ríkisstjórnar eftir þingkosningarnar í Ísrael í gær verði erfiðar og taki nokkrar vikur. Eftir að úrslit kosninganna verða birt formlega í næstu viku ráðgast forseti landsins, Shimon Peres, við leiðtoga flokkanna og felur síðan einum þeirra að mynda nýja ríkisstjórn inn- an 28 daga. Forseti Ísraels hefur alltaf veitt leiðtoga stærsta flokksins umboð til stjórnarmyndunar en lög- in heimila þó að leiðtogi smærri flokks fái umboðið teljist hann lík- legri til að geta myndað meirihluta- stjórn. Netanyahu í betri stöðu Flestir stjórnmálaskýrendur í Ísr- ael telja að Benjamin Netanyahu, leiðtogi hægriflokksins Likud, sé í betri aðstöðu en Tzipi Livni, utanrík- isráðherra og leiðtogi Kadima, til að mynda ríkisstjórn þar sem hægri- flokkunum var spáð meirihluta á þingi. Yossi Verter, stjórnmálaskýrandi dagblaðsins Ha’aretz, telur líklegast að Netanyahu myndi stjórn með flokki harðlínumannsins Avigdors Liebermans. „Það yrði mjög erfitt fyrir Livni að mynda ríkisstjórn, jafnvel þótt Kadima yrði stærsti flokkurinn, vegna þess að stjórnin þarf stuðning hægriflokks og hægri- menn slíta alltaf stjórnarsamstarf- inu ef einhver árangur næst í við- ræðum við Palestínumenn eða Sýrlendinga.“ Netanyahu hefur þó sagt að hann vilji stjórnarsamstarf við Kadima og Verkamannaflokkinn. Slík stjórn myndi auðvelda Netanyahu að eiga gott samstarf við stjórn Baracks Obama Bandaríkjaforseta sem hefur lagt áherslu á að hann hyggist beita sér fyrir friðarsamkomulagi í Mið- Austurlöndum. Í HNOTSKURN » Miðflokknum Kadima varspáð 29-30 þingsætum af 120 en hægriflokknum Likud 27-28 sætum. » Flokkur harðlínumanns-ins Avigdors Liebermans varð þriðji stærsti flokkurinn, með 14-15 sæti. » Verkamannaflokkurinnfékk 13 sæti og hefur fylgi hans aldrei verið minna. Ekki víst að Livni fái umboðið NEMAR í Al-Motamayzat-framhaldsskólanum fyrir stúlkur í Bagdad á leið í kennslustund. Sveitarstjórnarkosn- ingar, sem nýverið fóru fram í Írak, þóttu takast mjög vel og var nær ekkert ofbeldi í tengslum við þær. En þótt ástandið hafi batnað mikið í landinu síðustu mánuði er bannað í skólum Bagdad að minnast á viðkvæm mál eins og Saddam Hussein, George W. Bush eða blóðug átök trúflokka. Þeirra er hvergi getið í kennslubókunum. Bjallan hringir í Bagdad Reuters ÁSTRALSKIR lögreglumenn loka vegi að brunnum húsum í úthverfi borgarinnar Healsville, um 60 km norðaustan við milljónaborgina Melbourne, í gær. Gerð var ítarleg leit á svæðinu að vísbendingum sem leitt gætu til handtöku meintra brennuvarga sem talið er að hafi sums staðar valdið skógareldunum miklu. Talið er líklegt að um 200 manns hafi látið lífið af völdum hamfaranna síðustu daga. Reuters Brennuvarga leitað Hvenær verður pakkinn tilbúinn? Barack Obama vonast til að búið verði að samræma samþykktir full- trúadeildar og öldungadeildar fyrir næsta mánudag. Obama stefnir að því að undirrita að- gerðapakkann þá, en 16. febrúar er Forsetadagurinn í Bandaríkjunum. Hví eru repúblikanar ósáttir? Repúblikanar á þinginu segja að verði tillagan að lögum muni halli rík- issjóðs aukast verulega. Demókratar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings eru þó tregir til að fallast á breyting- artillögur repúblikana þar sem mest- ur niðurskurður útgjalda yrði á sviði menntamála. Hvert er viðhorf almennings? Samkvæmt nýlegri skoðanakönnun á vegum Gallup eru 67% Bandaríkja- manna hlynntir tillögum Obama um örvun efnahagslífsins. S&S ÍRANAR vilja ræða við Banda- ríkjamenn svo fremi sem við- ræðurnar byggj- ast á „gagn- kvæmri virðingu“, segir forseti Írans, Mahmoud Ah- madinejads. Hann ávarpaði í gær þjóðina í sjónvarpi í tilefni af 30 ára afmæli íslömsku byltingarinnar. Forsetinn tók fram að Banda- ríkjamenn yrðu að breyta afstöðu sinni í grundvallaratriðum og varan- lega. Ríkin tvö slitu stjórnmálasam- bandi 1979 í kjölfar þess að íranskir byltingarverðir tóku bandaríska sendiráðsstarfsmenn í gíslingu. Bar- ack Obama Bandaríkjaforseti vill beinar viðræður við fulltrúa klerka- stjórnarinnar. „Núna er rétti tíminn fyrir Írana að senda frá sér skilaboð um að þeir vilji breyta öðruvísi en hingað til,“ sagði hann á mánudag. Stjórnvöld í Bandaríkjunum væru að reyna að finna leiðir til að bæta sam- skiptin. Ahmadinejad hefur m.a. sagt: „Þurrka verður Ísrael af landakort- inu!“ og voru þessi ummæli ítrekuð á útifundum í Teheran í gær. Flestir túlka þau sem hótun um að eyða Ísr- ael í hernaði. En hægt er að túlka orð forsetans á mildari hátt sem and- stöðu við ríkið Ísrael. Íranskir leið- togar hafa oft kallað Bandaríkin „Hinn Stóra Satan“. Bush sagði eitt sinn að Íran væri hluti af „öxulveldi hins illa“ ásamt Írak, sem þá var undir stjórn Saddams Husseins, og Norður-Kóreu. kjon@mbl.is Vilja ræða við Bandaríkjamenn En Ahmadinejad setur skilyrði Mahmoud Ahmadinejad „ÉG held að heimurinn yrði betri ef við kæmum á Kvörtunardegi og Fyrirgefningardegi,“ segir banda- ríski rithöfundurinn Tom Perotta sem gæti verið með lausnina á þeirri afsökunartregðu sem þjakar margt nútímasamfélagið. „Á Kvörtunardaginn gætum við kvartað við náungann vegna ein- hvers sem okkur þykir hann hafa gert á okkar hlut,“ segir Perotta. Þá tæki við þriggja mánaða biðtími uns Fyrirgefningardagurinn rynni upp en þá yrði þeim sem kvartað var við gefið tækifæri til að bregð- ast við, hvort sem út úr því kæmi af- sökun eða ekki. jmv@mbl.is Allt fyrir afsökunina Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „ÉG get ekki fullyrt að allir liðir áætlunarinnar gangi upp nákvæm- lega eins og vonir standa til. En ég get sagt ykkur með fullri vissu að endalausar tafir eða lömun í Wash- ington verða til þess að auka á kreppuna. Ég get sagt ykkur að að- gerðaleysi kemur ekki til greina,“ sagði Barack Obama á fyrsta blaða- mannafundi sínum sem forseti Bandaríkjanna á mánudagskvöld. Obama þótti óvenju hvassyrtur á fundinum þar sem hann beindi fyrst og fremst sjónum að rúmlega 800 milljarða dollara aðgerðapakka rík- isstjórnarinnar sem hefur mætt mikilli andstöðu repúblikana í báð- um deildum þingsins. Gagnrýnir andstæðingana Obama beindi orðum sínum til repúblikana er hann sagði: „Spurn- ingin sem ég held að brenni á banda- rísku þjóðinni er: „Viljið þið að stjórnvöld aðhafist ekkert eða viljið þið að hún aðhafist eitthvað?“ og ef þið viljið að þau aðhafist, þá getum við talað saman.“ Aðgerðapakkinn var samþykktur í öldungadeildarþinginu í gær með stuðningi fárra repúblikana. Næstu daga munu demókratar svo vinna að því að samhæfa útgáfur aðgerðanna sem voru samþykktar af öld- ungadeildinni annarsvegar og full- trúadeildinni hins vegar. Fjármálaráðherra Bandaríkj- anna, Timothy F. Geithner tilkynnti í gær breytingar og endurbætur á aðgerðum yfirvalda til að koma bankastofnunum landsins til að- stoðar. Geithner sagði að samkvæmt nýju áætluninni yrði reynt að veita allt að tvær billjónir Bandaríkjadala úr ríkissjóði, frá óháðum fjárfestum og úr sjóðum seðlabankans. Geithner sagði að auka yrði tiltrú almennings á stjórnvöldum og fjár- málastofnunum, því yrði krafist meira gegnsæis og aðhalds hjá stofnunum sem nytu stuðningsins. Aðgerðaleysi útilokað  Obama forseti harðorður í garð repúblikana á þingi  Bankahjálp gæti náð alls 2.000 milljörðum dollara Reuters Íbygginn Barack Obama hlýðir spurningar fréttamanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.