Morgunblaðið - 11.02.2009, Page 18

Morgunblaðið - 11.02.2009, Page 18
18 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is S vartur á leik. Her hans er fámennur, kóngur og peð, andspænis margfalt fleiri hvítum köppum. Blaðamaður Morgunblaðsins situr andspænis ungum liðsmanni Skákfélags Ak- ureyrar. Sá fyrrnefndi hefur svart. „Hvað heldurðu að sé best fyrir mig að gera núna?“ spyr fórnarlambið. „Ég held það sé best þú gefir skákina!“ svar- ar Jón Kristinn Þorgeirsson hreinskilinn en hann stýrir hvítu mönnunum. „Vilt þú ekki taka við?“ spyr gesturinn nær- staddan Íslandsmeistara í skólaskák frá því í fyrra, Mikael Jóhann Karlsson, 13 ára, en svarið er einfalt: „Nei, takk. Ekki í þessari stöðu!“ Jón Kristinn er 10 ára, nýbakaður Íslands- meistari í yngri flokki í skólaskák. Blaðamaðurinn fer að ráðum hans. Jón Kristinn snaraðist rétt áðan inn úr dyr- unum, nýkominn af sundmóti þar sem hann vann medalíu. Þetta var fyrir helgi. Jón Kristinn, sem byrj- aði að æfa í haust hjá Skákfélagi Akureyrar, er nú kominn til Færeyja þar sem hann tekur ásamt fleiri Íslendingum þátt í Norð- urlandamótinu í skólaskák. Hann hefur aldrei fyrr farið til útlanda og kveðst hlakka mikið til. Hlutirnir gerast hratt hjá þessum unga skákmanni. Hann byrjaði að tefla fyrir tveim- ur eða þremur árum, aðallega við pabba sinn, en hóf æfingar í haust sem fyrr segir. Jón Kristinn svarar því játandi þegar spurt er hvort pabbinn sé góður og aftur er svarið já þegar blaðamaður forvitnast um það hvort hann sé nokkuð farinn að vinna pabbann. Jáinu fylgir breitt bros að þessu sinni. Að tillögu gestsins setjast þeir að tafli, Jón Kristinn og Mikael Jóhann. Gestinum fer bet- ur að horfa á en tefla sjálfur. Herirnir tveir, sá hvíti og hinn svarti, takast grimmilega á og hratt eftir að Jón Kristinn og Mikael Jóhann setjast. Menn falla unnvörpum í valinn. Gylfi Þórhallsson, formaður Skák- félagsins, og Ulker Gasanove fylgjast spennt með. Hún er 17 ára og var í fyrra valin í lands- lið stúlkna. Sannarlega er efniviðurinn fyrir hendi á Akureyri. Ulker fæddist og ólst upp í Bakú, höfuðborg Azerbaijan, en þar kom Garrí Kasparov, fyrr- verandi heimsmeistari, einnig í heiminn. Hún segist ung hafa lært mannganginn, síðan lagt skákmennina til hliðar þar til fyrir nokkrum árum að hún tók upp þráðinn. Og stefnir nú auðvitað á landslið fullorðinna. Mikael lærði skák af föður sínum eins og Jón Kristinn en þegar spurt er hvort þeir tefli enn, feðgarnir, stendur á svari. Þorir pabbi þinn kannski ekki að tefla við þig lengur? „Þorir og ekki þorir,“ svarar hann. Taflfélag Akureyrar var stofnað 1901 og var starfandi í nokkur ár en Skákfélag Akureyrar 1919 eins og áður kom fram. Ari Guðmundsson var fyrsti formaðurinn og síðar fyrsti forseti Skáksambands Íslands, sem stofnað var að undirlagi Akureyringa. Gylfi og Áskell Örn Kárason, varaformaður, segja Skákfélag Ak- ureyrar hafa verið stofnað af „betri borgurum“ bæjarins og unglingar ekki vel séðir á æfing- um. Það átti þó heldur betur eftir að breytast. Mörgum þótti keppnisgjöldin líka of há og um 1930 var stofnað Skákfélag alþýðu í höf- uðstað Norðurlands, en það rann inn í Skák- félag Akureyrar 1938. Afmælisbarn gærdagsins bryddaði upp á ýmsum nýjungum fyrstu áratugina, m.a. síma- skák sem var mjög vinsæl. Þá var gjarnan teflt frá kvöldi og fram eftir nóttu, að sögn Gylfa og Áskels. Það var ódýrara að hringja á milli landshluta á nóttunni en mótherjarnir voru í Reykjavík og víðar. Síðustu 30 ár hafa Akureyringar og Aust- firðingar tekið þátt í landskeppni við Fær- eyinga fyrir Íslands hönd, en hún fer fram annað hvert ár, Akureyringar hafa tvívegis haldið alþjóðlegt mót, skákmeistaramót Ak- ureyrar hefur verið haldið árlega síðan 1938 og í næsta mánuði verður haldinn á Akureyri síð- ari hluti Íslandsmóts skákfélaga í Brekku- skóla, svo eitthvað sé nefnt. Þar verða kepp- endur hátt í 400 með varamönnum. Nóg er því um að vera hjá akureyrskum skákmönnum. Áhuginn er mikill og í afmæl- ishófi síðdegis í gær gerði Sigrún Björk Jak- obsdóttir bæjarstjóri að sínum lokaorðum klausu úr skýrslu frá 1920 sem Hálfdán Hall- dórsson ritaði, en þar segir: „... og það sem mestu varðar, – áhugi félagsmanna er með engum ellimörkum, heldur vel vakandi og horfir hátt fram á leið. Spáir það góðu um framtíð félagsins.“ Þetta sagði bæjarstjóri einnig eiga vel við í dag. Víst er að áhugi ungu kynslóðarinnar er mikill. „Þeir gætu eflaust teflt allan sólarhringinn. Það þarf stundum að reka þá heim þegar æf- ingarnar eru búnar!“ sagði Gylfi formaður um þá Jón Kristin og Mikael Jóhann. Níutíu ára og enn í fullu fjöri Haldið var upp á 90 ára af- mæli Skákfélags Akureyrar í gær en félagið var stofnað 10. febrúar 1919. Skákin er vin- sæl sem fyrr, ekki síst á meðal yngri kynslóðarinnar. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Skák og ... Mikael Jóhann Karlsson, til vinstri, og Jón Kristinn Þorgeirsson hafa báðir orðið Íslandsmeistarar í skólaskák. Gylfi Þórhallsson er formaður Skákfélags Akureyrar og Ulker Gasanova, sem einnig fylgist með, var í fyrra valin í stúlknalandslið Íslands í skák. Símaskák var vinsæl fyrstu ára- tugina og þá var gjarnan teflt frá kvöldi og fram eftir nóttu Þegar dagarnir lengjast og sól hækkar á lofti léttast sporin hjá fólki. Ekki síst hjá þeim sem svo mikið eiga undir sól og regni eins og bændunum. Þetta á meðal annars við um kornræktina og þá sem rækta matjurtir. Hvorttveggja er vaxandi þáttur í þeim öfluga land- búnaði og atvinnulífi sem hér er. Mjólkurframleiðsla og garðyrkja vega langmest í atvinnulífinu í þess- um byggðum. Einnig er ferðaþjón- ustan vaxandi, iðnaður og sauð- fjárrækt styrkja afkomuna einnig töluvert.    Útiræktað grænmeti er enn verið að senda á markað og mun það endast þar til um miðjan mars en hér er átt við hvítkál, rauðkál og gulrætur. Neytendur hafa kunnað vel að meta íslenskt grænmeti enda laust við öll spilliefni. Þá má spyrja: Er ekki rétt að auka framleiðsluna þannig að við Íslendingar ræktum mest af þessum hollu matvælum sjálf? Nóg framboð er af vinnufúsum höndum. Eins má segja um korn- ræktina. Nú er landssamband bak- arameistara að auglýsa brauð bakað úr íslensku korni. Frábært hjá þeim samtökum. Auðvitað eiga Íslend- ingar að vera sjálfum sér nógir um sem flestar tegundir matvæla. Nóg er til af frjósömu landi þótt mikið sé búið að taka undir frístundahús og skógrækt. Fæðuöryggi okkar þarf að vera tryggt.    Atvinnuleysi er nú orðið allnokkurt í uppsveitum Árnessýslu eins og víð- ast annars staðar. Næg verkefni hafa verið í vetur í límtrésverksmiðj- unni á Flúðum fyrir 15 manns og nokkur verkefni framundan. Það sama má segja um Yleiningu í Reyk- holti þar sem framleiddar eru einangrunarplötur til húsaklæðn- inga en þessar verksmiðjur eru oft- ast tengdar sömu verkefnunum.    Laxveiði í Stóru-Laxá verður með breyttu sniði í sumar frá því sem verið hefur. Nú hefst veiði ekki fyrr en 1. júlí í stað 20. júní. Þá verður veiði ekki leyfð á svæði IV, efsta svæðinu, eftir 1. september. Ekki er lengur leyfð veiði í hinu fagra og stórbrotna Laxárgljúfri enda er það varasamt og erfitt yfirferðar. Lax- inn á þar að hafa sitt griðland og finnst mörgum tími til kominn. Þá má enginn veiða meira en tvo laxa í september á svæðum I-1I og III og skylda er að sleppa öllum laxi sem er yfir 70 sm. Ekki verður leyfð veiði í klak eftir 1. október en allnokkur klakveiði hefur verið stunduð í ánni í október um langt árabil. Allt er þetta gert með meiri friðun í huga og þar með von um meiri laxgengd í ána. Þá verður veiðieftirlit hert frá því sem verið hefur.    Unnið er við lokafrágang reiðhallar sem hestamannafélögin Smári og Logi eru að byggja á Flúðum. Ætl- unin er að taka hana í notkun bráð- lega. Nánast öll vinna við bygg- inguna hefur verið unnin í sjálfboðavinnu af félagsmönnum af miklum áhuga og elju. Ekki er vafi á að reiðhöllin mun nýtast vel, svo sem við að auka færni og þekkingu unga fólksins á hestamennsku, eða sem fjölnota menningarhús líkt og svo víða er.    Tuttugu ára draumur margra áhugamanna um bættar samgöngur í uppsveitum Árnessýslu verður að veruleika, en ákveðið hefur verið að ný brú verði byggð yfir Hvítá hjá Bræðratungu á þessu ári. Með brúnni tengjast þorpin Flúðir og Reykholt, sem eru tvö af þéttbýlustu svæðunum í héraðinu, og mun það eflaust bæta mannlíf, verslun og ferðaþjónustu hér til framtíðar. Lengi hafa verið hugmyndir um brú á þessum stað og margir orðnir langeygir eftir byggingu hennar. Það var svo fyrir framgöngu dug- mikilla þingmanna Sunnlendinga að tókst að koma brúnni inn á fjárlög þessa árs og víst er að margir eiga eftir að fagna þegar framkvæmdir hefjast við byggingu þessa mann- virkis. Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Skák Haldið var í Flúðaskóla skákmót til minningar um Halldór Gestsson húsvörð sem lést í fyrra. Hann var duglegur að kenna nemendum skák. Næstir á myndinni eru Jón Gunnar og Bjarki. FLÚÐIR Eftir Sigurð Sigmundsson úr bæjarlífinu Sigrún Björk Jakobsdóttir bæjarstjóri og Gylfi Þórhallsson, formaður Skákfélags Akureyrar, gengu í gær frá yfirlýsingu um samstarf undir heitinu Æskan að tafli. Félagið mun sjá um skákþjálfun barna og unglinga og bæjarfélagið út- vegar nauðsynlega aðstöðu og rekstr- arstyrk. KEA kemur einnig að verkefninu með fjárstyrk og vona forráðamenn Skákfélagsins að fleiri bætist í hópinn á afmælisárinu. Skákfélagið mun leggja áherslu á að grunnskólanemendur á Akureyri fái að kynnast skáklistinni og gefist kostur á að þjálfa hæfileika sína á skáksviðinu. Félagið mun leggja áherslu á þjálfun fyr- ir jafnt skemmra sem lengra komna og auðvelda þeim iðkendum sem skara fram úr að reyna sig við jafnaldra sína annars staðar á landinu. Markmiðið er að Akureyringar eigi áfram Íslands- meistara í barna- og unglingaflokkum og eigi sigurstranglega keppendur á Ís- landsmóti grunnskólasveita. Akureyrsk æska að tafli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.