Morgunblaðið - 11.02.2009, Síða 19
smáauglýsingar
mbl.is
Daglegt líf 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009
Sem foreldrar viljum við gera allt sem viðgetum til þess að tryggja öryggi og vel-líðan barna okkar. Að vera foreldri fel-ur í sér margháttað hlutverk og maður
er alltaf að læra eitthvað nýtt. Tækninni fleygir
fram og það er ekki auðvelt að fylgjast með öll-
um nýjungunum. Eftir sem áður þurfum við að
fylgjast með og kenna börnum okkar (eða biðja
þau að kenna okkur!). Stundum virðist sem fólk
sýni ákveðið hömluleysi í framkomu á netinu og
þá gjarnan undir dulnefni.
Í fyrsta lagi verður að átta sig á því hægt er
að rekja úr hvaða tölvu skrif koma.
Í öðru lagi að á netinu berum við sömu
ábyrgð og í annars konar samskiptum við
fólk. Allt sem þú gerir á netinu endurspeglar
hver þú ert, og er það einmitt eitt af heil-
ræðum SAFT, sem er vakningarverkefni um
jákvæða og örugga netnotkun barna og ung-
linga á netinu og tengdum miðlum.
Meiðandi skrif og
alvarlegar afleiðingar
Einelti er alvarlegt mál, og meiðandi skrif og
áreitni á netinu geta haft alvarlegar og langvar-
andi afleiðingar. Afleiðingar eineltis geta verið
lélegt sjálfstraust, depurð, þunglyndi og
skömm. Stöldrum því við þegar stríðni ber á
góma og sláum hana ekki út af borðinu sem
strákapör eða saklaust grín. Ef einelti er látið
óátalið getur það undið upp á sig og orðið mjög
alvarlegt.
Þegar börnin eru lítil kennum við þeim al-
mennar kurteisisreglur svo sem að benda ekki
á fólk í búðum og koma með ónærgætnar at-
hugasemdir eða ræða opinskátt náin fjöl-
skyldumál við ókunnuga. Þegar þau verða eldri
og fara að nota netið má segja að við þurfum að
uppfæra þessa þekkingu. Við skulum ekki ætla
börnum að átta sig endilega á því að það sem
birt er á netinu verði ekki tekið til baka eða að
hver sem er geti séð það sem þau skrifi á til
dæmis leikjasíðum og spjallborðum. Við þurfum
að ræða við þau hvað er leyfilegt að gera á net-
inu og vera með þeim að vafra á netinu. Ef
barnið okkar hefur skrifað meiðandi at-
hugasemdir um aðra getum við sest niður með
því og rætt um það hvernig því sjálfu myndi
líða ef skrifað væri svona um það sjálft. Börn
eru oft fljót að bregðast við en orð særa, bæði
skrifuð og sögð, og áhrif þeirra aldrei alveg af-
máð þótt beðist sé afsökunar.
Auk þess að efla með þeim samhygð og virð-
ingu getum við dregið úr líkum þess að börnin
okkar stríði eða leggi aðra í einelti á netinu með
ýmsum aðferðum. Það getur virst flókið að
fylgjast með og leiða börn okkar í gegnum þann
frumskóg sem netið er en á vefsíðu SAFT
(www.saft.is) má finna hagnýtar og aðgengileg-
ar upplýsingar handa foreldrum. Gleymum ekki
öllu því góða sem netið hefur upp á að bjóða
sem við getum notið með börnum okkar um leið
og við brýnum fyrir þeim umferðarreglurnar
þarna jafnt sem annars staðar.
hollráð um heilsuna
Framkoma barna á netinu
Morgunblaðið/ÞÖK
Jenný Ingudóttir, MPH, verkefnisstjóri
hjá Lýðheilsustöð
Davíð Hjálmar Haraldsson skrif-ar: „Þessi vísa er að sjálfsögðu
ekki samin af neinu sérstöku tilefni;
þetta er bara spuni. Sjái lesendur
tengingu við ákveðna menn eða at-
burði er þar eingöngu um hug-
arburð að ræða.“ Og auðvitað
fylgir vísa:
Hommar ganga í híalíni og drögtum
og hrífast síst af yngismeyjum nöktum,
en kostuleg er kynhneigð þessa perra
sem kápu stal af dómsmálaráðherra.
Hjálmar Freysteinsson fylgdist
einnig með því, þegar Össur Skarp-
héðinsson iðnaðarráðherra hafði
með sér á brott úr Stjórnarráðinu
kápu Rögnu Árnadóttur dóms-
málaráðherra. Og telur að það
hefði getað verið verra:
Össur dæma ekki skal
eða duldar hvatir hans,
úr því karlinn ekki stal
undirfötum ráðherrans.
Loks leggur Hreiðar Karlsson,
fyrrv. kaupfélagsstjóri á Húsavík,
orð í belg:
Að hann skorti föt og fé
flesta í augun stingur.
Ætla mætti að Össur sé
orðinn klæðskiptingur.
VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is
Af kápu og
ráðherra
www.markid.is sími 553 5320 Ármúla 40
Rýmumlagerinnfyrirnýrrihjólasendingu
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
90
20
7
FJÖLÞJÁLFAR
fráaðeins
kr.49.900
HLAUPABÖND
fráaðeins
kr.149.900