Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 22

Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 22
22 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 HIN stóru pólitísku tíðindi liðna daga eru í reynd ekki að Jóhanna Sigurðardóttir hafi verið gerð að forsætis- ráðherra þó að vissu- lega sé það vænn áfangi. Stórtíðindin eru heldur ekki tilraun Jóhönnu til að slá skjaldborg um heimilin heldur vel heppnuð skjaldborg sem vinstri- stjórnin slær nú um hagsmuni útrás- arvíkinganna. Snemma í stjórn- armyndunarferlinu tóku framsóknarmenn að sér það vafa- sama hlutverk að slá út af borðinu allar hugmyndir um að eigur yrðu kyrrsettar. Samfylkingin tók þá undir þau falsrök að þetta væri vita- skuld ekki hægt vegna stjórn- arskrárvarinna réttinda. Þar með gat andað léttar það dúsín íslenskra fjölskyldna sem sam- viskusamlega skaut hundruðum milljarða undan um leið og það kom íslensku hagkerfi á kaldan klaka. Það er vitaskuld frá- leitt að hér megi í skjóli efnahagsörðugleika víkja öllum mannrétt- indum til hliðar. Ennþá fráleitara er að í land- inu skuli vera sá for- réttindahópur að mann- réttindi hans skuli varin framar mannréttindum allra ann- arra. Alkunna er að við rannsókn venjulegra brota, sem oftast snerta örfáar krónur, er heimilt að skerða tímabundið stjórnarskrárvarin rétt- indi brotaþola. Það er gert með gæsluvarðhaldi og upptöku ýmissa eigna sem vandlega er rökstutt með vísan í lög. Vitaskuld er hægt að hreyfa við lögvörðum réttindum stórtækari brotamanna með sama hætti ef pólitískur vilji er fyrir hendi. Innan íslenska flokkakerfisins eru aftur á móti sáralitlar líkur til að sá pólitíski vilji skapist. Fjórflokkurinn er allur samspyrtur og margflæktur hagsmunum þeirra afla sem farið hafa með og fara enn með fjárhags- legt forræði atvinnuvega lands- manna. Fáir stjórnmálamenn eru svo lítilssigldir að hafa ekki þegið einn eða fleiri styrki frá útrásarvík- ingunum blessuðum. Meiru varðar þó að sömu víkingar hafa um áratugi haft fjárhagslega heilsu sjálfra flokksvélanna í landinu í hendi sér. Bjarni Harðarson skrifar um aðgerðir nýrrar ríkisstjórnar Bjarni Harðarson »… í stjórnarmynd- unarferlinu tóku framsóknarmenn að sér að slá út af borðinu allar hugmyndir um að eigur yrðu kyrrsettar. Sam- fylkingin tók undir … Höfundur er bóksali og fyrrverandi félagi í Framsóknarflokki. Fjórflokkurinn og skjaldborgin um vini hans ÞAÐ dylst engum að í hönd fara erfiðir tímar, hvort heldur fyrir heimilin í land- inu, fyrirtæki eða hið opinbera. Strætó bs. hefur ekki farið var- hluta af þessu ástandi því gríðarlegar kostn- aðarhækkanir hafa orðið í rekstri byggða- samlagsins síðustu mánuði í kjölfar falls krónunnar sem setur sveitarfélögin sem standa að rekstri almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu í erfiða stöðu. Aðhald í rekstri sveitarfélaganna hefur sjaldan verið mikilvægara en um leið þarf að standa vörð um grunnþjónustu á borð við almenn- ingssamgöngur. Sveitarfélögin náðu við gerð rekstraráætlunar Strætó bs. fyrir árið 2009 samkomulagi um að auka útgjöld sín til byggða- samlagsins um 10% á þessu ári auk þess að leggja 100 milljónir inn sem eingreiðslu vegna halla síðasta árs. Jafnframt var ákveðið að halda gjaldskrá óbreyttri, en hún hefur ekki hækkað frá ársbyrjun 2007 þrátt fyrir mikla verð- bólgu á tímabilinu. En þótt ákveðið hafi verið að hækka fram- lög sveitarfélaganna til Strætó bs. var ljóst að það myndi ekki duga til að standa undir rekstri Strætó í óbreyttri mynd. Því var nauðsynlegt að grípa til að- gerða. Höfum hugfast að tekjur af farmiðasölu Strætó bs. duga fyrir um fimmtungi rekstrarkostnaðar, en afganginn greiða sveitarfélögin með beinum framlögum sem munu nema um tveimur og hálfum millj- arði á þessu ári. Þetta eru miklir fjármunir og afar brýnt fyrir sveit- arfélögin og íbúa þeirra að þeir dugi til að standa undir rekstri Strætó bs. Það er ekki forsvaranlegt að byggðasamlagið safni skuldum til viðbótar með hallarekstri og til- heyrandi fjármagnskostnaði fyrir sveitarfélögin um ókomin ár. Stöndum vörð um annatímann Í ljósi þessa var ákveðið að leita leiða til að draga úr kostnaði með eins litlum áhrifum á notendur al- menningssamgangna og kostur væri. Lausnin varð að nýta ítarleg- ar mælingar Strætó á notkun al- mennings á strætisvagnakerfinu til að laga þjónustu Strætó bs. betur að eftirspurn. Langstærstur hluti notenda Strætó nýtir sér ferðir vagnanna á annatímum að morgni og síðdegis virka daga og því mik- ilvægt að standa vörð um þjón- ustuna á þessum tímum dags. Mun færri taka hins vegar strætó yfir miðjan daginn, á kvöldin og um helgar og því mögulegt að laga þjónustuna að eftirspurn með því að draga úr tíðni ferða á þessum tím- um á flestum strætóleiðum. Ákvörðunin um þjónustuaðlögun var kynnt þegar rekstraráætlun Strætó bs. fyrir árið 2009 var sam- þykkt í nóvember á síðasta ári og kom til framkvæmda nú 1. febrúar. Í stuttu máli felast breytingarnar í að allar helstu leiðir, að leiðum 1 og 6 undanskildum, aka nú á hálftíma fresti utan annatíma og ákveðnar leiðir aka á klukkutíma fresti. Jafn- framt er dregið úr tíðni á kvöldin og um helgar. Nánari upplýsingar um þessar breytingar má finna á strætó.is. Það er okkur sem viljum hag al- menningssamgangna sem mestan á höfuðborgarsvæðinu lítið fagnaðar- efni að þurfa að grípa til slíkra að- gerða og sér í lagi ekki á tímum sem þessum þegar sífellt fleiri sjá sér hag í að nýta sér þjónustu Strætó. Hins vegar er ábyrgð okkar sem förum með almannafé mikil og ekki verjandi að missa útgjöld úr böndunum, hver sem málaflokk- urinn er. Besti kosturinn valinn Þrátt fyrir almenna kröfu um að- hald í öllum rekstri sveitarfélag- anna voru framlög til Strætó bs. aukin milli ára sem sýnir staðfestu okkar í að halda áfram úti öflugum almenningssamgöngum á höf- uðborgarsvæðinu. Grunnþjónusta Strætó er tryggð með því að veita áfram öfluga þjónustu á annatímum þegar sem flestir þurfa á henni að halda. Áfram er veitt þjónusta utan annatíma, þrátt fyrir að draga hafi þurft úr tíðni. Þjónustutími Strætó styttist ekki að undanskildum tveimur klukkutímum á sunnudags- morgnum, starfsfólk Strætó heldur vinnu sinni og gjaldskráin hækkar ekki. Við í stjórn Strætó bs. glímd- um við erfiða stöðu þegar rekstr- aráætlun fyrir árið 2009 var ákveðin en ég er þess engu að síður fullviss að besti kosturinn í stöðunni hafi verið valinn. Grunnþjónusta Strætó tryggð í erfiðu árferði Jórunn Frímanns- dóttir skrifar um rekstur Strætó » Þrátt fyrir kröfu um aðhald í rekstri voru framlög til Strætó auk- in, sem sýnir staðfestu sveitarfélaganna í að halda úti öflugum al- menningssamgöngum. Jórunn Frímannsdóttir Höfundur er borgarfulltrúi og stjórnarformaður Strætó bs. VIÐ í Frjálslynda flokknum viljum bregðast við þeirri hroðalegu stöðu sem þjóðin er í með því að gjörbreyta fisk- veiðikerfinu. Margir mætir sérfræðingar telja að upphaf hörm- unga okkar sé gjafa- kvótakerfinu að kenna. Við í Frjálslynda flokknum viljum innkalla allar veiðiheimildir á Íslandsmiðum og leigja út á sann- gjarnan hátt og tryggja nýliðun í sjávarútvegi. Við viljum frjálsar handfæraveiðar og smærri báta yf- ir sumartímann. Við viljum að allur fiskur verði seldur á innlendum fiskmörkuðum. Við viljum aðskilja veiðar og vinnslu – það þarf að tryggja að allur afli komi að landi, þar á meðal hryggir og hausar af frystitogurum. Það þarf að auka veiðiheimildir á þorski, síld og flestum öðrum bolfisksteg- undum. Við getum auðveldlega aukið gjaldeyristekjur þjóð- arinnar um 80 millj- arða með því að veiða meira og nýta betur það sem veitt er úr hafinu. Leiguverð á aflaheimildum er ekki í neinum takti við fisk- verð upp úr sjó eða af- urðaverð á unnum fiski. Að hluta til er því um að kenna að nú má geyma 33% af kvóta á milli ára. Því þarf að breyta strax. Fjöldi báta og skipa þarf nú að stoppa vegna hárrar leigu, sérstaklega á þorski, sem hefur skelfilegar afleiðingar fyrir fólk í sjávarútvegi og sjáv- arbyggðum. Auðvitað þurfum við að veiða hval og við þurfum að virða mannréttindi íslenskra sjó- manna. Kvótakerfið er ónýtt og óréttlátt og brýtur í bága við álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna og íslensku þjóðinni til skammar hvernig við stöndum að því. Skjótvirkasta aðgerðin til að vinna bug á því atvinnuleysi sem ógnar íslensku samfélagi er að auka sjávaraflann. Með því drögum við stórlega úr atvinnuleysi, eflum tekjumöguleika fólks og aukum bjartsýni. Það er engin áhætta tek- in með því að auka veiðarnar enda þarf þjóðin núna á öllum mögu- leikum að halda til að efla útflutn- ing sinn og gjaldeyristekjur. Við þurfum að virkja fallvötn og orku í iðrum jarðar, við þurfum að nýta alla okkar möguleika til að skapa atvinnu og gjaldeyristekjur. Grétar Mar Jónsson skrifar um fiskveiðikerfið » Skjótvirkasta að- gerðin til að vinna bug á því atvinnuleysi sem ógnar íslensku samfélagi er að auka sjávaraflann. Grétar Mar Jónsson Höfundur er þingmaður Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi. Frjálslyndi flokkurinn vill hefjast handa um breytingar EIN ER sú nýjung í netheimum sem á ensku heitir „face- book“. Það er nafn á samskiptavettvangi sem gerir mönnum kleift að safna að sér „pennavinum“, skrifast á og skiptast á skoð- unum á lýðnetinu. Þetta fyrirbæri nýtur nú svo mikilla vinsælda að sumir liggja yfir þessu tímunum saman. Fréttir berast af því, að fyr- irtæki og stofnanir hafi orðið að loka fyrir þessi samskipti, svo að starfs- fólkið gleymdi sér ekki. Margir hafa velt því fyrir sér hvað „facebook“ ætti að heita á íslensku. Flestir nota lík- lega enska heitið, en aðrir hafa reynt að finna íslenskt orð í staðinn. Við sem sitjum í tölvuorðanefnd höfum haft þetta viðfangsefni til umræðu um nokkurt skeið og fengið fréttir af til- lögum sem fram hafa komið frá hin- um og þessum utan nefndarinnar. Meðal slíkra tillagna eru: fésbók, nef- skinna, smettiskrudda, snjáld- urskinna og sviðsbók. Eflaust hafa fleiri hugmyndir verið viðraðar, en líklega er ekkert íslenskt heiti farið að festast í sessi enn sem komið er. Fyrir nokkru kom fram sú hug- mynd í nefndinni að nota orðið vina- mót um „facebook“. Það orð hefir vanist vel okkar á milli, og við teljum nú tímabært að kynna það almenn- ingi. Orðið vinamót skýrir sig sjálft og er raunar gamall kunningi sem marg- ir þekkja úr Ölerindum sr. Hallgríms Péturssonar, þó líklega sem tvö orð. Næstfyrsta erindið er á þessa leið: Vitjað hef ég á vina mót, sem nú á sér, reynt af mörgum hýrleg hót. Vel sé þeim sem veitti mér. Annað verkefni sem nefndin hefir glímt við að undanförnu er að finna sæmilegt sagnorð um það sem oft er nú kallað að gúggla (á vefnum), þ.e. leita að orði eða orðasambandi með leitarvél sem nefnist Google. Þetta út- lenda heiti á sér kynlega sögu sem verður ekki rakin hér, en erfitt hefir reynst að sníða það til, svo að vel fari í íslensku máli. Nú hefir okkur dottið í hug að nota mætti ís- lensku sögnina glöggva um að ‘leita með Go- ogle’. Hún hefir þann kost, ef kost skyldi kalla, að vera hljóðlík útlenda orðinu og ná jafnframt býsna vel þeirri merkingu sem um ræðir. Þetta kann að koma á óvart, því að nú á dögum er sögnin nær eingöngu notuð aft- urbeygileg, þ.e. í sambandinu glöggva sig (á e-u). En skammt er síðan hún hafði mun víðtækara notk- unarsvið, og mætti vel halda því við. Frá 18. og 19. öld eru mörg dæmi um glöggva e-ð, þar sem merkingin er upphaflega að ‘gera e-ð glöggt, eða glöggvara (gleggra) en það var áður’. Sá sem leitar með Google, má búast við að finna það sem hann leitar að. Það er oftast einhvers staðar úti í myrkrinu, en þá þarf að glöggva það, fá það skýrt fram, gera það glöggt. Lesendum til glöggvunar má benda á skýringar (undir glöggva) í Orðabók Blöndals (1920-1924) og Ís- lenskri orðabók (2002). Notk- unardæmi má finna á netinu í rit- málssafni Orðabókar Háskólans (Árnastofnun). Hér er komið á framfæri tveimur hugmyndum sem við í tölvuorða- nefndinni teljum vert að gefa gaum. Ef til vill verða þær aðeins til þess, að aðrar og betri tillögur líti dagsins ljós, og þá er það ekki verra. Í tölvuorðanefnd, öðru nafni Orða- nefnd Skýrslutæknifélagsins, eiga sæti: Sigrún Helgadóttir (formaður), Baldur Jónsson, Þorsteinn Sæ- mundsson og Örn Kaldalóns. Baldur Jónsson skrifar um nýyrði »Hér er komið á fram- færi tveimur hug- myndum sem við í tölvu- orðanefndinni teljum vert að gefa gaum. Baldur Jónsson Baldur Jónsson er málfræðingur Orð til umhugsunar ÁSKRIFTASÍMI 569 1100

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.