Morgunblaðið - 11.02.2009, Page 32
32 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009
Fjölmargar minn-
ingar hafa streymt um
hugann síðan amma
Lóa kvaddi þessa jarð-
vist aðfaranótt 12. jan-
úar. Ég kvaddi hana í síðasta sinn
fimmtudaginn 8. janúar. Það er svo
skrýtið að þegar að stundinni kom þá
vissi ég ekki hvað ég ætti að segja.
Það eina sem ég gat sagt var „hæ
amma, þetta er Haukur“. Hún tók í
höndina á mér og lagði á vanga sinn
og sagði „Haukur, elsku ömmustrák-
urinn minn“ og lengra var það ekki.
Ég á eftir að muna þessa stund
meðan ég lifi.
Flestar minningarnar eru frá því
við bjuggum saman á Ölduslóðinni.
Amma var mjög flink í eldhúsinu og
leyfði okkur systkinunum oft að
hjálpa sér við baksturinn. Ég kynntist
fyrstu handtökunum í bakstri hjá
henni þar sem við stóðum saman við
gamla, gula eldhúsborðið og hnoðuð-
um smákökur eða kleinur af miklum
móð. Þar sem við bjuggum í sama
húsi þá var samgangurinn mikill og
lítill greinarmunur gerður á hennar
og okkar heimili enda opið á milli og
við gátum valsað um eins og okkur
sýndist.
Amma var mjög orðheppin og
slengdi oft fram skemmtilegum setn-
ingum sem eru sem greyptar í hug-
ann og verða notaðar um ókomna tíð
við ýmis tækifæri. Hún hafði mjög
gaman af að segja sögur af því sem
gerðist í gamladaga og hvernig lífið
gekk fyrir sig þegar hún var barn og
nýflutt til Hafnarfjarðar. Þóttt hún
hafi flutt mjög ung í Fjörðinn og orðið
mjög gömul þá var hún alltaf Seltirn-
ingur og leiðrétti mann ef manni varð
á að kalla hana Hafnfirðing.
Ég man þegar við gengum saman
niður í Laujabúð til að kaupa í matinn
og þegar hún fylgdi mér í skólann í
fyrsta sinn svo ég rataði leiðina og
þegar ég beið í fanginu á henni við
stofugluggann eftir að mamma kæmi
heim úr vinnunni. Ég man þegar hún
hlýddi mér yfir margföldunartöfluna
og ég var svo hissa að hún þyrfti ekk-
ert blað til að þylja allar tölurnar upp.
Þegar ég varð níu ára sagði amma
mér að þetta væri í síðasta sinn sem
aldur minn væri skrifaður með einum
tölustaf, þetta er eitt af því sem situr
eftir í huganum og þegar hún varð
Ólafía Karlsdóttir
✝ Ólafía Karlsdóttirfæddist í Bakka-
koti á Seltjarnarnesi
2. ágúst 1909. Hún
lést á Hrafnistu í
Hafnarfirði 12. jan-
úar síðastliðinn og fór
útför hennar fram frá
Hafnarfjarðarkirkju
20. janúar.
níutíu og níu ára í
fyrrasumar þá hnippti
ég í hana og sagði að
þetta væri í síðasta
sinn sem aldur hennar
væri skrifaður með
tveimur stöfum, næst
yrðu þeir þrír, við verð-
um víst að halda upp á
það án hennar.
Amma hafði mjög
gaman af börnum og ef
hún vissi af einhverjum
af litlu gríslingunum
okkar systkinanna í
kringum sig þá skimaði
hún í kringum sig og reyndi að plata
þau til að koma og setjast hjá sér, á af-
mælinu hennar náði ég fallegri mynd
af henni með Natalíu í fanginu og nú
sit ég með þessa mynd á borðinu fyrir
framan mig og minnist ömmu meðan
ég skrifa þessa grein. Í lok nóvember
hittist öll fjölskyldan heima hjá
mömmu og pabba í mat, það var í síð-
asta sinn sem ég talaði almennilega
við ömmu.
Þá er bara moldviðrið framundan.
Haukur Magnússon.
Ég hélt alltaf að þegar að því kæmi
að amma Lóa myndi deyja færi öll til-
veran á hliðina. Fjölskyldan myndi
leysast upp í óbærilegri sorg og heim-
urinn yrði aldrei samur. Nú þegar ég
stend á þessum tímamótum þar sem
ég verð að kveðja ástkæra ömmu
mína eru tilfinningarnar fyrst og
fremst ljúfsár söknuður og friður í
sálinni vitandi það að hún mun hafa
verið hvíldinni fegin. Enda hefði varla
verið hægt að biðja um lengri tíma
með ömmu þar sem enginn verður ei-
lífur, þótt hún hafi verið nærri því, á
sínu hundraðasta aldursári. Amma
mín var mér sérstaklega kær.
Ég átti því láni að fagna að alast
upp í návist hennar þar sem við fjöl-
skyldan bjuggum í sama húsi og hún.
Mikill samgangur var á milli litlu fjöl-
skyldunnar á neðri hæðinni og ömmu
sem alltaf var til staðar. Hún var til
staðar þegar maður kom heim í há-
deginu og fékk kakósúpu eða epla-
graut, hún léði manni eyra þegar
maður þurfti að létta á sálinni og átti
alltaf til hlý orð. Þegar fjölskyldan á
neðri hæðinni var orðin of stór fyrir
íbúðina fékk ég herbergi hjá ömmu.
Við vorum ágætar saman þar sem
amma var fljót að hlaupa til aðstoðar
ef myrkfælnin gerði vart við sig um
miðja nótt og sömuleiðis ýtti ég við
henni ef hana dreymdi illa. Þannig
sýndi hún alltaf umhyggju sína og al-
veg fram á síðustu ár ævi sinnar
hringdi hún í mig ef hún hélt að mér
liði ekki nógu vel.
Amma var gædd gríðarlegri kímni-
gáfu og kunni að koma fyrir sig orði.
Af henni lærði ég að tvinna blótsyrði
og beita dönskuslettum. Hún var ein-
staklega kjarnyrt og reyndi ég eftir
fremsta megni að leggja á minnið
flottustu tilsvör hennar en því miður
hafa þau sum skolast til. Amma var
endalaus uppspretta frásagna enda
einstaklega minnug og hafði gaman af
að segja frá. Sögur af löngu látnum
forfeðrum sem og fólki sem stendur
mér nær í tíma voru alltaf jafn vel
framreiddar og áhugaverðar. Hún
var alltaf með ljóðmæli á hraðbergi og
því dramatískari sem þau voru því
meira dálæti hafði hún á þeim. Amma
mín kenndi mér ótal margt og við átt-
um fjölda góðra stunda saman. Ég
var alltaf svo montin af því að eiga
svona góða, skemmtilega og fróða
ömmu. Ég mun sakna þess að geta
ekki slegið á þráðinn til hennar til að
fá álit hennar á framgangi stjórnmála
hér á landi, ég mun sakna góðu ráð-
legginganna og þess að heyra hana
segja svo hlýlega Auðurin mín.
Innilegar þakkir fyrir allt elsku
amma mín og njóttu þess að vera með
vængi á himnum.
Þín
Auður.
Amma, ég mun sakna þín. Þegar ég
fer að rifja upp allar þær góðu minn-
ingar sem ég á um þig er mér þakk-
læti efst í huga. Það er ýmislegt sem
rifjast upp fyrir mér nú þegar þú hef-
ur kvatt mig í hinsta sinn. Hversu
marga ólsen ólsen ætli við höfum spil-
að? Hvað ætli ég hafi borðað mörg
læri hjá þér á sunnudegi? Þau eru ófá,
enda varst þú ótrúlega dugleg við að
bjóða okkur í sunnudagsmat og alltaf
hafðir þú tíma fyrir einn ólsen í við-
bót.
Allur tíminn sem þú hafðir til að
hlusta á mig og allir dagarnir sem þú
hafðir til að passa mig eru mér ómet-
anlegir. Rétt eins og tíminn sem þú
fékkst með langömmubörnum þínum
var þér mikils virði. Það var auðséð og
heyrt á þér þar sem sérstakur tónn
kom í röddina þegar þú spurðir frétta
af stelpunum, líka þegar þú baðst fyr-
ir kveðju til þeirra í hinsta sinn. Það
er undarleg tilfinning að hugsa til
þess að ég fái ekki að heyra rödd þína
hljóma aftur.
En svona er lífið og ég veit að nú er
þreytan horfin úr þér og sjón og
heyrn komin aftur, þú sagðir mér að
það væri það sem þú saknaðir mest.
Það er erfitt að kveðja þig amma, en
ég veit að þú ert komin á betri stað
þar sem guð vakir yfir þér.
Amma, ég mun sakna þín.
Árni Magnússon.
Móðursystir mín elskuleg, Ólafía
Karlsdóttir, er látin á hundraðasta
aldursári. Þá er Guðrún, sem orðin er
101 árs, ein eftir af systkinunum átta,
sem fæddust um og eftir aldamótin
1900.
Síðast heimsótti ég Lóu í desem-
ber, við skáluðum í jólasérríinu og
spjölluðum. Þá sagði hún mér að hún
væri búin að vera hálflasin, nú fengi
hún vonandi bráðum að fara og sagði
mér draum því til staðfestingar. Lóa
var bæði draumspök og skyggn og vel
gefin kona. Hún var líka falleg og
hafði reisn og þokka sem hún hélt til
hinstu stundar.
Við Lóa vorum ekki bara frænkur,
við vorum miklar vinkonur. Hún hélt
algerlega óskertu minni og fylgdist af
áhuga með því sem hún heyrði og hélt
því til haga. Hún hafði sterkar og
ákveðnar skoðanir um menn og mál-
efni. En hún sagði mér líka ótal margt
frá því í gamla daga, sumt bæði fróð-
legt og skemmtilegt en líka margt
sorglegt og erfitt. Hún var búin að lifa
í heila öld og upplifa svo ótrúlegar
framfarir en líka þrengingar að við
sem eftir lifum og yngri erum, barm-
andi okkur vegna kreppunnar, förum
hjá okkur.
Fyrst man ég eftir Lóu frænku í
Suðurgötunni í Hafnarfirðinum þegar
ég kom með mömmu þangað í heim-
sókn lítil stelpa. Fjölskylda mín bjó á
Akureyri og það var ekki oft lagt í því-
líkar langferðir. Þess vegna var það
hið mesta ævintýri að fá að koma suð-
ur og kynnast öllum systkinum
mömmu og þeirra fólki. Amma mín,
Sigríður, bjó hjá Lóu en þær höfðu
haldið heimili saman frá því afi dó, þá
var Lóa tæpra 16 ára. Hún sá svo um
ömmu í 25 ár alveg þangað til hún dó
árið 1959 og fékk hún bestu umönnun
sem hægt var að hugsa sér.
Lóa giftist Hauki Jónssyni tré-
smíðameistara árið 1934. Þau byggðu
sér reisulegt hús við Hringbraut 63
og þar fæddist sólargeislinn þeirra
Sigrún eftir margra ára hjónaband.
Samband þeirra var einstaklega hlýtt
og kærleiksríkt.
Lóa frænka var mikil myndar hús-
móðir, eins og þær systur allar og tók
alltaf höfðinglega á móti gestum. Hún
var líka flink saumakona, lærði ung að
sauma hjá Karólínu, elstu systurinni,
sem var útlærður meistari frá kóngs-
ins Kaupmannahöfn. Þær fóru reynd-
ar utan systurnar til að „forframast“
og komu heim reynslunni ríkari. Allar
nema Lóa. Hún var hjá ömmu, og átti
ekki heimangengt. Hún komst nú
samt til útlanda, þá orðin 72 ára. Hún
heimsótti Þorbjörgu systur sína sem
var gift í Bretlandi og dvaldi hjá henni
2 vikur. Endurtók svo leikinn og fór
út til hennar tvisvar eftir þetta. Fjöl-
skyldan flutti af Hringbrautinni á
Ölduslóð 48 árið 1967. Sigrún fór í
skóla, varð kennari og giftist hún
Magnúsi sínum. Þau hafa búið á Öldu-
slóðinni allan sinn búskap og stækk-
uðu húsið, enda urðu ömmubörnin
þrjú. Mikið var Lóa stolt af þeim enda
mikið efnisfólk, öll gift og búin að
hasla sér völl í lífinu. Nú eru lang-
ömmubörnin hennar orðin fjögur og
eitt á leiðinni.
Við töluðum stundum um fram-
haldslífið og Guð. Hann var vinur
Lóu.
Mig langar að kveðja Lóu mína
með þessu versi Hallgríms Péturs-
sonar:
Minn Jesús, andlátsorðið þitt
í mínu hjarta eg geymi,
sé það og líka síðast mitt,
þá sofna eg burt úr heimi.
Guð blessi minningu Lóu frænku.
Sigrúnu og fjölskyldu hennar sendi
ég innilegar samúðarkveðjur frá mér
og mínu fólki.
Sigríður Guðmundsdóttir.
Meira: mbl.is/minningar
Það lá eftirvænting í loftinu. Það
var sunnudagur og við systurnar sát-
um með hatta í Hafnarfjarðarstrætó.
Við vorum tíu og sjö ára, nýfluttar frá
Vestmannaeyjum.
Tilgangurinn var að heimsækja
ömmu Sigríði sem bjó hjá móðursyst-
ur okkar Lóu, sem kvödd er hér í dag.
Í þá daga var alltaf tími til að heim-
sækja ættingja og sunnudagarnir
voru okkar dagar með ömmu. Þau
Lóa og Haukur tóku okkur alltaf opn-
um örmum og það var engu líkara en
að lenda í ævintýri að fá að taka upp
kartöflur og fara í berjamó með þeim.
Já, Hafnarfjörður var á þessum tíma
langt uppi í sveit!
Lóa móðursystir var vön mikilli
vinnu og hún sótti egg og mjólk út á
Jófríðarstaði. Haukur var listasmiður
og auk þess að smíða húsið þeirra
smíðaði hann alltaf leikföng handa
okkur systrum á jólunum. Skoppara-
kringlurnar hans verða ógleymanleg-
ar.
Okkur hefur alltaf fundist það hafa
verið mesta gæfa Lóu frænku að hafa
eignast hana Sigrúnu, dóttur sína,
þegar hún var um fertugt. Sigrún
reyndist þeim Hauki góð og trygg
dóttir alla tíð.
Lóa hafði einstakt minni og það var
alltaf hægt að leita til hennar þegar
manni fannst vanta upplýsingar frá
einhverju sem gerðist í „gamla daga“.
Skömmu áður en Lóa lést sagði
hún við Siggu að hún bæði Guð á
hverju kvöldi að koma að sækja sig.
Henni varð að ósk sinni aðfaranótt 12.
janúar, orðin södd lífdaga.
Elsku móðursystur okkar kveðjum
við með miklu þakklæti fyrir allt það
góða sem hún gaf okkur í lífinu; ást og
umhyggju. Elskulegri dóttur hennar,
Sigrúnu, og fjölskyldu hennar send-
um við innilegar samúðarkveðjur og
biðjum Guð um styrk þeim til handa.
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(Herdís Andrésdóttir.)
Hvíldu í friði, elsku Lóa okkar,
þínar systurdætur
Sigríður Hrefna og Ólöf Sylvía
Magnúsdætur (Sigga og Olla.)
Við andlát Ólafíu móðursystur
minnar er mér efst í huga þakklæti.
Þakklæti fyrir að hafa notið kærleika
og umhyggju þessarar einstöku
frænku alla tíð.
Lóa gegndi stóru hlutverki í lífi
mínu og minningarnar leita á hugann.
Þegar foreldrar okkar systkina fóru í
ferðalög vorum við hjá Lóu og Hauki í
Hafnarfirði. Sigríður amma okkar bjó
hjá þeim og Karólína móðursystir
sem hafði misst manninn sinn í stríð-
inu bjó í sama húsi. Það væsti svo
sannarlega ekki um okkur.
Lóa og Haukur voru einstaklega
barngóð og dekruðu við okkur í hví-
vetna. Við systurnar vorum teknar
með í kálgarðinn, í berjamó að
ógleymdum jólatrésskemmtununum í
Oddfellow. Haukur, sem var lista-
smiður, smíðaði handa okkur leikföng
sem enn eru notuð. Lóa bakaði handa
okkur pönnukökur og lék á gítar og
söng og las sögur. Hún hafði líka leik-
arahæfileika, lék fyrir okkur Litla og
Stóra og við hlógum okkur máttlaus-
ar. Lóa hafði tekið þátt í leiksýning-
um í Hafnarfirði þar sem ótvíræðir
hæfileikar hennar komu í ljós en hús-
móðurhlutverkið var látið sitja í fyr-
irrúmi svo að ekki varð úr að hún
héldi frekar út á þá braut.
Svo eignuðust Lóa og Haukur
stúlkuna sína, Sigrúnu, og sama ár
eignuðumst við systurnar bróður.
Alltaf vorum við jafn velkomin og allt-
af var jafn glatt á hjalla.
Heimilið var miðstöð stórfjölskyld-
unnar vegna þess að amma var þar en
Lóa var líka einstaklega frændrækin.
Hún fylgdist með öllum í fjölskyld-
unni og var með ólíkindum hversu
minnug hún var á afmælisdaga og at-
burði.
Systkin hennar fóru öll á yngri ár-
um til annarra landa til lengri eða
skemmri dvalar. Fyrsta ferð Lóu var
hins vegar þegar hún heimsótti Þor-
björgu systur sína í Englandi þá orðin
sjötug. Hún naut þess og fór fleiri
ferðir þangað.
Lóa ferðaðist ávallt mikið um land-
ið sitt, sem hún elskaði, og hreifst
stöðugt af þeim undrum sem landið
býr yfir.
Þær Sigrún bjuggu í sama húsi
þangað til Lóa fluttist á Hrafnistu í
Hafnarfirði. Var hún því í daglegu
samneyti við Sigrúnu, tengdasoninn
Magnús og börnin þeirra þrjú sem öll
eru gift og eiga börn. Lóa uppskar
eins og hún sáði, yndislegri fjölskyldu
er ekki hægt að hugsa sér
Verst þótti henni að missa sjónina
sem hún missti endanlega fyrir um
þremur árum. Hún hafði alltaf verið
sérlega sjálfstæð en þrátt fyrir
blinduna var hún ótrúlega sjálf-
bjarga. Hún þurfti þó eðlilega á meiri
aðstoð að halda við daglegar athafnir
og fannst það miður.
Háan aldur bar hún með reisn og
alltaf var stutt í kímnina og hláturinn.
Hún fylgdist með fréttum, lagði mat á
þær og hafði ákveðnar skoðanir án
þess að þær væru ósveigjanlegar.
Alltaf tókst henni að vekja mann til
umhugsunar um eitthvað.
Greind og ímyndunarafl Lóu birtist
ekki síst í draumum hennar sem sum-
ir gætu verið efni í kvikmyndir.
Hún efaðist ekki um að til væri
framhaldslíf, hafði fengið vísbending-
ar um það og var viss um að það sem
tæki við væri gott.
Við Ingimundur og börn okkar
vottum Sigrúnu, Magnúsi og fjöl-
skyldu þeirra innilega samúð.
Blessuð sé minning Ólafíu frænku
minnar.
Sigríður Arnbjarnardóttir.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
HAUKUR GUNNARSSON,
áður Selvogsgrunni 6,
Sóltúni 13,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 3. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 12. febrúar kl. 15.00.
Gunnar Hauksson, Jóhanna Geirsdóttir,
Sigurður Hauksson, Hrefna Steinsdóttir,
Ingibjörg Hauksdóttir, Einar Sveinn Ingólfsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR GUÐMUNDSSON,
Kaplaskjólsvegi 37,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Neskirkju fimmtudaginn
12. febrúar kl. 15.00.
Valgerður Ólafsdóttir, Ásgeir Þormóðsson,
Guðmundur Ólafsson, Fjóla Guðmundsdóttir,
afabörn og langafabörn.