Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 33

Morgunblaðið - 11.02.2009, Side 33
Minningar 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. FEBRÚAR 2009 Góður vinur er fall- inn frá. Það er alltaf erfitt þegar dauðinn ber að garði, en þetta er hluti af lífinu og við þurfum að geta tekist á við það eins og öðru óvæntu sem á lífsleiðinni verður. Við Sæmundur er- um búnir að þekkjast frá barnæsku, en sterk vinatengsl mynduðust á ung- lingsárum og var þá eins og gengur og gerist með unga menn farið á dansleiki um helgar, en Sæmundur var glæsilegur á velli, augnayndi í augum kvenna og dansherra mikill. Þetta var skemmtilegur og minnis- stæður tími og þar að auki ferðuð- umst við mikið á allar útihátíðir sem þá var boðið uppá á sumrin. Sæmund- ur lærði húsasmíði og tók síðan meist- araskóla í húsasmíði í framhaldi. Hann var mjög góður fagmaður og byggði ófáar íbúðir í Reykjavík. Ég var svo lánsamur að fá hann til að byggja íbúðarhús okkar hjóna á Seljabraut. Þetta var raðhús upp á þrjár hæðir, en þá var vaninn að menn byggðu sjálfir sitt hús með að- stoð frá fagmönnum. Sæmundur tók að sér verkið og var ótrúlega góður og nákvæmur fagmaður og stóð við allt sem hann sagði. Hann stjórnaði verk- inu frá upphafi og notaði mig sem handlangara. Alla samninga sá hann um, en þetta verk tók tvö ár og var unnið á kvöldin og um helgar, allir sem að verkinu komu voru í sinni föstu vinnu. Á þessum tíma lærði ég hversu góður fagmaður og heilsteypt- ur vinur Sæmundur í raun var. Fljótlega upp úr 1980 fór Sæmund- Sæmundur Sigursteinsson ✝ Sæmundur Sig-ursteinsson fædd- ist 5. nóvember 1944. Hann lést á heimili sínu 15. desember síð- astliðinn og var útför hans gerð frá Grinda- víkurkirkju 27. des- ember. ur í matreiðslunám og fékk réttindi sem skipskokkur. Hann fór af og til sem kokkur á togurum og líkaði það vel, enda var Sigur- steinn faðir hans sjó- maður og þannig var Sæmundi í blóð borið að stunda sjóinn. Sam- bandið milli mín og Sæmundar minnkaði með árunum, en við vorum þó alltaf í sam- bandi, þannig að við fengum fréttir af hvor öðrum eins og gengur og gerist. Sæ- mundur hringdi í mig nokkrum dög- um fyrir andlátið, þar talaði hann mikið um ástandið í þjóðfélaginu og aðstæður sem hann var kominn í og hversu erfitt lífið er þegar maður upplifir að allar eignir manns eru frystar frá hendi bankans, hann gæti ekki einu sinni borgað sína reikninga þó nóg væri inni á bankabók sem bankinn hafði fryst. Þetta er ein af þessum óvæntu uppákomum sem við getum lent í á lífsleiðinni og getur ver- ið miserfitt fyrir fólk að takast á við. Sæmundur, kæri vinur, við kveðjum þig í hinsta sinn, en í minningunni munt þú alltaf lifa. Guð geymi þig. Kristján G. Kristjánsson og fjölskylda. Látinn er um aldur fram kær skólafélagi. Leiðir okkar lágu saman fyrir rúmum fimmtíu árum á skóla- setrinu Reykholti í Borgarfirði. Reykholt var einn af héraðsskólum landsins og komu nemendur hvaðan- æva af landinu og dvöldu þar vetr- arlangt á heimavist. Skólinn var því eins og stórt heimili. Nemendur deildu saman herbergjum yfirleitt fjórir saman en á einstaka herbergj- um allt upp í sex. Það reyndi því á að- lögunarhæfnina og tillitssemina. Við Sæmundur vorum bekkjarfélagar í tvo vetur. Tókust með okkur ágætis kynni og vinátta. Hann var hress, líf- legur og hæfilega stríðinn en hafði þægilega nærveru og sóttust því margir eftir félagsskap hans. Við Sæmundur hittumst mest á förnum vegi eftir að skólanum lauk en ætíð fagnaðarfundir þegar það gerð- ist. Við vissum þó hvaða stefnu hann hafði markað sér í lífinu og hvaða starfsvettvang hann valið sér. Hann stofnaði ekki fjölskyldu og var eina barn foreldra sinna. Hann var fé- lagslyndur og kunni vel við sig í marg- menni. Hann kom gjarnan þangað sem hann vissi af kunningjum. Nefna má staði þar sem ég hitti hann oft svo sem Múlakaffi, Umferðarmiðstöðina og sundlaugarnar. Hann var sjálf- stæðismaður og hafði gaman af að taka þar þátt í starfi og fór gjarnan í haustferðir sem flokkurinn stóð fyrir. Þar hitti ég hann seinast í október þegar farið var að Skógum. Þegar fólk hefur lagt að baki skóla- göngu tekur gjarna við stofnun fjöl- skyldu og uppeldi barna sem tekur þá upp þann tíma sem fólk hefur yfir að ráða. Þegar barnauppeldið er að baki gefst meiri tími til að rifja upp og rækta vináttusamböndin frá æskuár- unum. Það höfum við Reykhyltingar frá þessum tíma gert undanfarin ár. Sæmundur hefur tekið þátt í þessu af fullum krafti og alltaf mætt og tekið þátt í félagsskapnum. Um þessa jólahátíð hefur hugurinn gjarna leitað til vinar míns Sæmund- ar og samvista okkar fyrr og síðar. Þetta varð til þess að til varð lítið ljóð sem ég læt verða lokakveðju með þessum minningarorðum. Gengur með festu að Gull ljómna hliðinu garpurinn Sæmi frá jarðneska sviðinu. Liðsmaður gerist í ljósengla skaranum lífið það missti af guðshimna faranum. Söknum nú vinar og sameinum hugi hér, syrgjum öll drenginn sem frá okkur horfinn er. Lágt grátum þann sem að leystist frá þrautunum líf heldur áfram á himnesku brautunum. Fyrir hönd skólafélaganna frá Reykholti sendi ég samúðarkveðjur til allra aðstandenda Sæmundar Sig- ursteinssonar. Snorri Bjarnason. Dagbjört Hanna Jónsdóttir eða Hanna frænka er gengin á vit feðranna eftir stutta sjúkralegu. Sjúkra- lega Hönnu var svo stutt að ég náði ekki að koma heim frá Þýskalandi áður en hún dó. Hanna var alin upp í Elliðaey á Breiðafirði og eyjafólkið er hraust fólk. Hún var ekki mikið á sjúkra- húsum um ævina. Fimm sinnum skrapp hún inn á spítala að eignast barn. Hanna frænka var ekki bara ein- hver venjuleg frænka mín. Mamma og Hanna voru systkinabörn í báðar ættir og ólust fyrstu ár ævinnar sam- an upp í Elliðaey. Svo var Hanna mamma hennar Rannveigar, bestu vinkonu minnar frá því að ég man eftir mér. Þegar við Rannveig vorum stelpur var ég mikið heima hjá henni á Silfurgötunni. Þegar mamma var að vinna átti ég alltaf athvarf að fara heim með Rannveigu og ef mamma hennar var líka að vinna þá var Kristín amma Rannveigar heima og gaf okkur að drekka þegar við kom- um inn úr kuldanum. Þó Hanna ynni alla tíð utan heim- ilis, lengst af í Kaupfélaginu og í bankanum að því er mig minnir, þá var hún mikil og góð húsmóðir. Það Dagbjört Hanna Jónsdóttir ✝ Dagbjört HannaJónsdóttir fæddist Stykkishólmi 24. ágúst 1934. Hún lést á sjúkrahúsinu í Stykk- ishólmi 19. desember síðastliðinn og fór út- för hennar fram frá Stykkishólmskirkju 29. desember. var alltaf svo fínt að koma á heimilið og hún eldaði mjög góðan mat og bakaði eftir íslensk- um og dönskum upp- skriftum, en í Dan- mörku hafði hún dvalið sem ung stúlka. Kannski var það ekki síst Hanna sem hafði þau áhrif á mig að ég þyrfti að kynnast heiminum áður en ég settist endanlega að á Íslandi. Hún hvatti og studdi Rannveigu í að fara til Danmerkur, í lýðháskóla í Svíþjóð og til Englands á unglingsár- unum. Þá ákvað ég að fara eftir stúd- entspróf til útlanda, sem ég gerði og ílengdist og er þar enn. Hanna var sterk kona og hún skil- ur eftir sig stórt skarð en ég er þakk- lát fyrir að hafa fengið að kynnast henni og hún var örugglega ein af mínum fyrirmyndum í uppvextinum. Elsku Rannveig, Guðrún, Guð- mundur, Selma, Lea og Sigurður Amlin, ég votta ykkur samúð mína og megi almættið gefa ykkur styrk til að takast á við þennan mikla missi. Hrafnhildur Hrafnkelsdóttir. Í dimmasta skammdeginu kvaddi kær frænka mín þetta jarðlíf og hélt á vit nýrra heima, eftir að hafa barist við illvígan sjúkdóm sem engu eirir og læknavísindin ráða ekki við nema takmarkað. Upp í hugann koma minningar úr barnæsku okkar systra og Hönnu. Árið 1935 var ör- lagadagur í lífi systranna í Elliðaey Auðar og Hönnu. Faðir þeirra fórst þá í hræðilegu sjóslysi við annan mann sem einnig átti tvær ungar dætur. Þennan dag, 14. desember, gerði aftakaveður um allt land. Þá urðu mörg börn föðurlaus. Auður var þá fimm ára en Hanna á öðru ári. Það hafa því verið sorgarjól þetta árið í Elliðaey. En lífið heldur áfram. Kristín flutti með dætur sínar til Stykkishólms næsta sumar og þá í nýbyggt hús við Skólastíg sem hún nefndi Vinaminni, en þá voru ekki komin númer á húsin eins og nú er. Auðvitað sáum við eftir þeim, en það var bót í máli að Hanna fékk að koma í heimsókn á sumrin. Okkur fannst hún vera orðin mikil kaupstaðardama komin í falleg föt, sem mamma hennar saumaði á hana, en hún var mikil saumakona og vann við sauma, og sá þannig fyrir dætr- um sínum. Í minningunni var alltaf sólskin, fuglarnir komnir, ritan farin að lita björgin, æðarfuglinn sestur upp, lundinn út um allan sjó og svo að sjálfsögðu krían, sumarið var komið, og þá kom Hanna frænka í heim- sókn. Við lékum okkur alla daga, komum okkur upp búi um alla eyju, engin tilbúin leikföng, allt heimafengið úr fjörunni, eða leggir og kjálkar, allt tiltækt sem hentaði okkar búskap- arsýsli. Þá má ekki gleyma sílaveið- um, veiðarfærin voru beygður títu- prjónn og snæri. Ef ekki viðraði til útileikja lögðum við undir okkur efri hæðina í húsinu og lékum leikrit sem samin voru á staðnum. Að kvöldi settist amma okkar við rúmstokkinn og fór með bænirnar með okkur. Síð- an krossaði hún fyrir útihurðina, þá vorum við örugg, ekkert illt gat kom- ið fyrir. Við Elliðaeyjarsystur þökkum Hönnu samfylgdina, og óskum henni góðrar heimkomu, þar sem tekið verður á móti henni af ástvinum. Sigga og börnunum þeirra vottum við innilega samúð, og biðjum góðan Guð að styrkja og vernda þau í sorg- inni. Unnur Lára. Elsku litli frændi. Við kveðjum þig, Anton Breki okkar, eft- ir stutta en góða stund með okkur. Aldrei fáum við svör. „Af hverju svo fljótt?“ Því biðjum við Guð að geyma þig og líta eftir þér. Styrkur okkar mun vera hjá foreldrum þínum og fjölskyldu. Guð blessi þig Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) María, Þorsteinn og Guðrún Jóna. Elsku litli fallegi drengurinn okkar. Vegir Drottins eru órannsakanlegir. Allt frá því að við fyrst fengum að vita af tilvist þinni færðir þú okkur mikla gleði og hamingju. Sú staðreynd að fjölgun yrði í þess- um gamla og sterka vinahópi okkar var stórkostleg. Tvö kríli voru á leið- inni, þú og vinkona okkar. Allar þær fallegu minningar sem við eigum um þær stundir sem við fengum að njóta með þér eru okkur dýrmætar. Minningin um brosmildan góðan dreng sem bræddi hjörtu okkar. Þér munum við aldrei gleyma. Það að hafa fengið að fylgjast með þér vaxa og dafna, þó í þennan stutta tíma, er okkur ómetanlegt. Elsku Anton Breki, við vitum að þú ert á góðum stað og að þín bíður stórt og mikilvægt hlutverk. Við þökkum fyrir þann tíma sem við fengum með þér hér og trúum að við hittumst á ný annars staðar, á öðrum tíma. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Elsku Ester og Siffi okkar. Hugur okkar og hjarta er með ykkur og fjöl- skyldum ykkar. Ykkar vinkonur, Bryndís, Guðný, Helga Guð- rún, Margrét Hrönn, Ólafía Kristín og Svanhvít Laxdal. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Nú kveð ég elsku yndislega fallega frænda minn og bið engla alheimsins að umvefja hann. Elsku Ester, Siffi og fjölskylda, megi almættið styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Aðalheiður Jörgensen Elsku litli kútur, rosalega söknum við þín mikið. Ég man það eins og það hafi gerst í gær þegar við mamma þín sögðum hvor annarri frá því að við værum óléttar. Við vorum svo spennt- ar alla meðgönguna og leiddum hvor aðra í gegnum þetta tímabil alveg frá byrjun til enda. Við eyddum svoleiðis klukkutímunum saman í að tala um litlu gullin okkar og hvað við værum spenntar að fá að sjá þau og hvernig þau myndu líta út og hvernig skap- gerð þau ættu eftir að bera og svo Anton Breki Sigurþórsson ✝ Anton Breki Sig-urþórsson fæddist á Landspítalanum í Reykjavík 9. desember 2007. Hann lést föstu- daginn 23. janúar síð- astliðinn og var jarð- sunginn frá Kefla- víkurkirkju 30. janúar. framvegis. Við áttum svo oft samtöl þar sem við báðum til Guðs að við yrðum það heppn- ar að fá að upplifa þessa yndislegu til- finningu að eignast barnið okkar. Svo fæddist Anton Breki 9. desember og ég var svo spennt að koma og sjá hann og fá að halda á honum. Okkur Kidda fannst hann svo lítill og sætur, fengum að halda á honum og knúsa hann og gátum ekki beðið eftir að litla prinsessan okkar kæmi í heim- inn. Svo kemur litla vinkonan 15. des- ember og mikið vorum við þakklátar fyrir að fá þessi fallegu heilbrigðu börn. Okkur fannst við svo lánsamar og þökkuðum svo oft fyrir hvað allt gekk vel hjá okkur. Aldrei grunaði mig nokkurn tímann að þú yrðir tek- inn svona snemma frá okkur. Svo stór og sterkur og hraustur og ákveðinn lítill gaur. Þú og Katrín áttuð að vera vinir um ókomna tíð. Þið voruð svo samferða í öllu og við mamma þín allt- af svo spenntar að sjá hve vel þið döfnuðuð. Ég er þakklát fyrir þær yndislegu samverustundir sem við áttum saman. Katrín Zíta gleymir aldrei litla vini sínum sem er núna engill á himninum og vakir yfir okkur. Við elskum þig að eilífu, elsku litli vin- ur okkar. Ingibjörg, Kristinn og Katrín Zíta. Elsku litli frændi. Við söknum þín svo mikið því við elskuðum þig svo mikið. Við grátum dag og nótt yfir því að þú sért farinn. Þú fékkst lítinn tíma til að skoða heiminn en þú fékkst þó að sjá þennan fallega heim í eitt ár. Við munum allt- af geyma minningarnar um afmælið þitt og þegar við pössuðum þig. Þú varst fallegi litli frændi okkar, elsku Anton Breki. Óteljandi kossar frá okkur. Dagur Andri og Sólveig Halla. Elsku Anton Breki. Það er erfitt að koma orðum á blað um alla þá gleði sem þú gafst okkur á þinni stuttu ævi. Þú fæddist í þennan heim fyrir rúmu ári og auðvitað voru allir vissir um það að þú myndir eiga bjarta ævi framundan. Því er svo erf- itt að skilja það hvers vegna svona lít- ill og heilbrigður drengur er tekinn frá okkur og við skilin eftir með brost- in hjörtu. Þú áttir stórkostlega for- eldra sem gáfu þér alla þá ást sem þau áttu. Í þeirri miklu sorg sem við glímum við núna skulum við passa upp á þau, styrkja og veita þeim alla þá ást og umhyggju sem við getum. Við vitum að þinn ástkæri langafi (Ingimundur) tekur á móti þér með sinn hlýja faðm, því að hann missti af því að njóta þín á jörðu niðri. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum.) Með kveðju og þúsund kossum. Lóa Björk og Einar Þór. Dvel ég í draumahöll og dagana lofa. Litlar mýs um löndin öll liggja nú og sofa. Sígur ró á djúp og dal dýr til hvílu ganga. Einnig sofna skolli skal með skottið undir vanga. (Þýð. Kristján frá Djúpalæk.) Þetta litla lag sungum við svo oft saman eftir yndislegar sam- verustundir í ungbarnasundinu. Þetta lag mun ávallt vera í hjarta mínu til þín, vinur minn. Þín Katrín Zíta. HINSTA KVEÐJA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.